Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 66
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
BÍLASMIÐURINN:
Komdu að bílnum heitum á
morgnana
Fyrirtækið Bílasmiðurinn var stofnað árið 1980 af Leifi Þorleifssyni
bifreiðasmíðameistara og verður
því 40 ára á næsta ári. Fyrstu
árin var fyrirtækið í Lágmúla 7 en
fluttist í eigið húsnæði á Bíldshöfða
16 nokkrum árum síðar þegar
Ártúnshöfðinn var að byggjast upp
sem nýtt iðnaðarhverfi.
Í dag er reksturinn í öruggum
höndum barna Leifs, þeirra Páls Þórs
og Erlu. Aðalstarfsemi fyrirtækisins
er verslun og þjónusta með vörur
tengdar atvinnubifreiðum og tækjum,
ásamt iðnvörum fyrir alls kyns smíði
til lands og sjávar. Afar fjölbreytt
vöruúrval er að finna í versluninni
og þar sem aðalstarfsemi þess
fer fram. Fyrirtækið leggur mikinn
metnað og áherslu á hágæðavöru
og að veita fyrirtaks þjónustu og
ráðgjöf. Eitt af meginmarkmiðum er
að geta boðið vörur sem ekki fást
víða annars staðar, á sanngjörnu
verði sem er oft lægra en á sömu
eða sambærilegri vöru erlendis. Mikil
áhersla er lögð á að versla við evrópsk
framleiðslufyrirtæki og birgja til að
tryggja góð og hagstæð kjör fyrir
viðskiptavini. Þá hefur Bílasmiðurinn
hf. söluumboð fyrir allmörg
heimsþekkt vörumerki í greininni.
Skafan fær frí með Webasto
hágæða forhiturum/miðstöðvum
F orhitararnir frá WEBASTO hafa
sparað bílsköfurnar og hlýjað
mörgum landanum á köldum
vetrarmorgnum þegar hrímið
leggst á bílrúðurnar. Að ræsa
kalda bíl vél get ur verið jafns lít
andi og 500 kílómetra akst ur, en
forhitarinn nær upp rétta hita stig
inu og eyk ur á þæg indi farþega.
Auk þess að gera bíl inn heit an og
nota leg an á köld um morgn um
dreg ur hann einnig úr bens ín eyðslu
og bæt ir end ingu vél ar inn ar.
Bíla smiður inn sel ur for hit ara frá
þýska fram leiðand an um Weba
sto. Forhitararnir eru mjög vinsælir í
NorðurEvrópu og hefur Bílasmiðurinn
selt þessi tæki frá upphafi. Margir eru
búnir að átta sig á þeim þægindunum
sem fylgja forhitara.
Þess má geta að tæknin til að
stýra forhitaranum er orðin svo
háþróuð í dag að jafnvel má ræsa
hann í gegn um snjallsím ann ef svo
ber und ir. Hægt er að velja um allt
að fjórar gerðir af stýringum til þess
að kveikja á Webastobílahitaranum,
fjarstýringu , fjarstýringu með
tímarofa, appi í farsíma og eða því
allra nýjasta, Thermo Connect, sem
er ný appstýring. En með henni er
notandinn í raunsambandi við bílinn
og sér staðsetningu, ástand og
hitastig í innanrými hans. Webasto
Thermo connect er jafnframt með
innbyggðan „Geofence“ sem lætur
eigandann vita ef bílinn bíllinn er
færður úr stað. Webastoforhitara
er hægt að setja í flestar bifreiðir
óháð því hvort þær ganga fyrir
bensín eða dísilolíu, beinskiptar eða
með sjálfskiptingu.
Bílasmiðurinn rekur sérhæft
verkstæði fyrir ísetningu og viðgerðir
á Webastoforhiturum ásamt
varahlutaþjónustu. Ísetning á
Webastoforhiturum er gerð eftir
leiðbeiningum frá Webasto sem þýsk
yfirvöld hafa samþykkt og vottað.
Bílasmiðurinn hefur verið
umboðsaðili fyrir Webasto í 40 ár eða
allt frá upphafi, ásamt öðrum búnaði.
Starfsfólk Bílasmiðsins býr yfir alhliða
þekkingu á margs konar íhlutum og
búnaði og er ávallt reiðubúið til að að
deila þeirri þekkingu og veita ráðgjöf
sé eftir því óskað.
Nýjasta nýtt frá Webasto eru svo
heimahleðslustöðvar fyrir rafbílinn,
Webasto pure. Glæsileg hönnun sem
eftir er tekið. Góð vara á góðu verði.
Bílasmiðurinn hf. er að
Bíldshöfða 16, Reykjavík.
Nánari upplýsingar má finna á
bilasmidurinn.is
Sími: 567-2330
Vefpóstur:
bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
Fylgstu með á Facebook:
Bílasmiðurinn hf. og Recaro Ísland
Twitter: Bílasmiðurinn hf
Mynd: Eyþór Árnason