Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 97
FÓKUS 9722. nóvember 2019
að tala um typpin þeirra og
hluti sem geta komið upp
í tengslum við typpið, svo
sem sársauka og hreinlæti.
Það er sjaldan sem þeir fá
rými til að tala um typpið
sitt,“ segir hún.
Beint typpi
Sigga Dögg stóð einmitt fyrir
viðburðinum Typpatal fyrir
stuttu þar sem gestum gafst
kostur á að fræðast um allt
mögulegt sem tengist typp-
inu, senda inn nafnlausar
spurningar og hlæja aðeins.
Í aðdraganda Typpatals stóð
Sigga Dögg fyrir tveimur
könnunum um typpið; einn
spurningalista fyrir konur og
einn fyrir karla. Alls svöruðu
um 1.700 manns könnunun-
um. Þar kom ýmislegt í ljós
en eitt kom Siggu Dögg í opna
skjöldu.
„Eitt sem ég hafði engan
veginn séð fyrir hvað það eru
margir sem vilja hafa typpið sitt
beinna. Þarna staldraði ég við.
Ég fann að ég þarf að fara dýpra
í upplifun manna af sínu eigin
typpi. Þeir eru ekkert mikið að
ræða þetta og þetta er enn þá svo-
lítið tabú. Ég búin að vera með
fyrirlestra í ólíkum heimshornum
þar sem ég hef komið inn á við-
burðinn Typpatal og fólki, meira
að segja í mínum geira, hefur þótt
það
mjög djarft. Það þykir sjálfsagt
að halda píkuviðburði en þetta
er viðkvæmara. Ég fékk til dæm-
is tölvupóst frá mæðrum þegar
ég setti könnunina í gang og þær
höfðu áhyggjur af því að ég myndi
misnota upplýsingarnar eða nota
þær í niðrandi tilgangi. Þetta voru
margir tölvupóstar. Ég hef aldrei
upplifað það áður að fólk efist
um heilindi mín. Ég myndi aldrei
nota slíkar upplýsingar til að gera
grín eða níða einhvern. Ég vil ekki
vinna þannig og ég trúi ekki að
ég vinni þannig. Þannig að þetta
snertir viðkvæma taug, typpa-
talið.“
Sigga Dögg ætlar að endurtaka
Typpatal eftir áramót og hefur
verið bókuð í ýmis fyrirtæki með
smækkaða útgáfu af því. Hún
hefur þurft að þola ákveðna mót-
stöðu frá ákveðnum skólastjórn-
endum og kennurum varðandi
kynfræðslu sína og fékk að vita
það um daginn að ákveðinn
kennari hefði sagt við nem-
endur að ekki ætti að taka
mark á kynfræðslunni henn-
ar. Hún væri bara bull.
„Ég náttúrlega bregst við
slíkri mótstöðu með að vera
áfram sýnileg og vera í góðu sam-
bandi við krakkana. Unglingar
á Íslandi hafa mikið aðgengi að
mér, þau vita það og nýta sér það
óspart. Það er mjög dýrmætt.
Þegar ég mæti mótstöðu þá finn
ég fyrir svo miklu meiri stuðn-
ingi, sem vegur mikið þyngra en
hið neikvæða. Það er leiðinlegt
og glatað að lenda í mótvindi, en
mér finnst ég fá miklu meiri með-
byr en mótbyr.“
Sigga Dögg hefur einnig ferð-
ast vítt og breitt um heiminn og
kennt öðrum kynfræðingum að
nota húmor í kynfræðslu. Þá ætl-
ar hún að endurútgefa bókina
Kjaftað um kynlíf á næsta ári, gefa
út Litlu bókina um blæðingar og
halda stórt túr- og píkupartí. En
fær hún aldrei leið á kynlífstalinu?
„Nei,“ segir hún ákveðin. „En
ég þarf alveg að hvíla mig inni
á milli og ég geri það alveg. Ég
passa að eiga tíma þar sem ég
bóka enga fundi, held enga fyrir-
lestra, svara ekki síma og kíki
varla á tölvupóstinn. Þá nýt ég
þess bara að vera heima að baka
bananabrauð og horfa á sjón-
varpið.“ n
„Í nóvember er til dæmis haldið
upp á sjálfsfróunarlausan nóv-
ember sem reynist mörgum erfiður.
Svo tekur við „destroy dick december“.
Vel heppnað Sigga Dögg hélt
viðburðinn Typptal á dögunum.
Brot úr bókinni Daði: Nóg að gera Sigga Dögg slær
ekki slöku við. MYND: SAGA SIG
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N