Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 105
25. október 2019KYNNINGARBLAÐÖryggisblaðið
SECURITAS:
Öryggishnappur Securitas –
Öryggi þegar á reynir
Öryggishnappur Securitas er hjálpartæki sem eykur öryggi fólks innan veggja
heimilisins, en með notkun hans er
fljótlegt og auðvelt að gera viðvart
ef eitthvað kemur upp á.
Öryggi öllum stundum
Að hlakka til morgundagsins og
horfa björtum augum á það sem
er framundan er ofarlega í hugum
allra. Flest langar okkur til að eiga
ánægjulegt líf með ástvinum,
ættingjum og vinum. Það að horfa
á börnin sín og barnabörn vaxa
og verða að fullgildum meðlimum
samfélagsins veitir okkur ómælda
ánægju og hugarró. Íbúum á besta
aldri á Íslandi mun á næstu árum
fjölga mikið. Hluti af þessum hóp
verður líkamlega vel á sig kominn
og mun geta notið lífsins til fulls
þrátt fyrir hækkandi aldur. Þessi
virki hópur vill hafa áhrif á sitt
líf, áhugamál og samfélagsleg
verðmæti. Hluti þessa hóps mun
þurfa meiri aðstoð en vill á sama
hátt og aðrir geta haft áhrif á líf sitt.
„Það er sama hvar einstaklingar
eru staddir á lífsleiðinni, hvort
viðkomandi er orðinn aldraður
eða býr við skert lífsgæði, þá
vilja allir vera öruggir á heimilum
sínum,“ segir Elsa Einarsdóttir,
sölustjóri Securitas. „Vegna
líkamlegra breytinga sem fylgja
hækkandi aldri, skertri heilsu eða
hreyfifærni skerðist jafnvægi
fólks og viðbrögð verða seinni.
Aðstandendur þessa hóps hafa
oft verulega áhyggjur af fólkinu
sínu, jafnvel þeim sem eru við
góða heilsu. Þeir vilja draga úr
óhöppum og slysum og auka
öryggi síns fólks sem frekast er
unnt. Með aðgát og fyrirbyggjandi
aðgerðum á heimilinu er hægt að
draga úr slysum og óhöppum eldri
einstaklinga og þeirra sem búa við
skerta getu,“ segir Elsa.
Öryggishnappur Securitas
„Öryggishnappurinn gagnast vel
þegar að hnappþegi dettur, veikist
skyndilega eða þarf aðstoð vegna
líkamlegra einkenna án tafar. Um
leið og ýtt er á hnappinn opnast
talsamband við sérþjálfað starfsfólk
á stjórnstöð Securitas,“ segir Elsa.
Viðbrögð frá öryggishnöppum
eru flokkuð sem forgangsboð
og þeim er sinnt án tafar.
Öryggisverðir Securitas bregðast
við boðunum, koma á staðinn,
grípa til þeirra aðgerða sem þörf
er á hverju sinni. Öryggisverðir
Securitas eru vel þjálfaðir í öllum
viðbrögðum, margir þeirra hafa
menntun sjúkraflutningamanna
sem gerir þá sérstaklega hæfa
til að aðstoða hnappþega í
neyð. Þessi sérstaka þjálfun
öryggisvarða Securitas er lykilatriði
fyrstu mínútur eftir að kallað
hefur verið á aðstoð, rétt og fljótt
viðbragð hefur mikil áhrif á þann
tíma sem endurhæfing tekur til
að komast aftur af stað ef óhapp
á sér stað. Þetta viðbragð getur í
einhverjum tilvikum skilið milli lífs
og dauða. „Securitas er með 12
bíla í hverfum borgarinnar, sem
allir eru til taks allan sólarhringinn
alla daga ársins,“ segir Elsa.
„Það er alltaf stutt í næsta
bíl og öryggisvörð sama hvar
hnappþeginn býr og því er hjálpin
fljót að berast.“
Öryggishnappurinn er borinn
um háls eða um úlnlið eftir því
hvað hverjum og einum þykir
þægilegt. Tæknimenn Securitas
setja allan búnað upp og kenna á
hnappinn. „Það er afar einfalt að
nota hnappinn, ýtt er á hnappinn
og boð sendast til stjórnstöðvar
Securitas og þá myndast
talsamband stjórnstöðvar
við hnappþegann,“ segir Elsa.
Hnappþeginn getur gert vart við
sig og upplýst um hvort aðstoðar
er þörf eða ekki. Ef að ýtt er á
hnappinn og ekki næst samband
við hnappþega er tafarlaust
sendur öryggisvörður á staðinn.
Aukið öryggi með öryggiskerfi
Með öryggishnappnum er hægt að
setja upp einfalt öryggiskerfi sem
eykur enn á öryggi hnappþega og
aðstandenda hans. Reykskynjarar
ásamt vatnsskynjurum eru oft
nauðsynleg öryggistæki hjá þeim
sem glíma við t.d. minnisleysi og
elliglöp. Einnig er hægt að setja
upp hreyfiskynjara sem nema
óeðlilega umgengni í húsnæðinu
og láta vita þegar slíkt gerist.
Öryggiskerfi sem bjóða upp á
app fylla aðstandendur ró um að
allt sé í lagi hjá ættingjum sínum.
Kostnaðurinn við slík öryggiskerfi
er sáralítill þegar horft er til
gagnsemi þeirra og öryggis þeirra
sem maður elskar.
Lyklar að heimilum hnappþega
eru geymdir í öruggum geymslum
í stjórnstöð Securitas. Þegar
öryggisvörður fer í útkall til
hnappþega er ástand hnappþega
metið, kallað er á sjúkrabíl ef þess
gerist þörf, haft er samband við
ættingja og hnappþega sinnt eins
alúðlega og hægt er.
Hnappþegar Securitas eru
heimsóttir tvisvar sinnum á ári.
Í þeim heimsóknum er gengið
úr skugga um að allur búnaður
virki sem skyldi og upplýsingar
um breytingar á heilsufari
og því tengdar eru skráðar.
Þessar upplýsingar nýtast vel
ef hnappþegi þarf að fara á
sjúkrahús, þá verður öll meðferð
skilvirkari og hægt er að bregðast
skjótt við í alvarlegum atvikum.
Sjúkratryggingar Íslands og
öryggishnappur
Sjúkratryggingar Íslands
niðurgreiða mánaðargjöld vegna
öryggishnapps hjá þeim sem
uppfylla ákveðin skilyrði. Í þeim
tilfellum sendir læknir viðkomandi
einstaklings læknisvottorð til
Sjúkratrygginga. Eftir samþykkt
niðurgreiðslunnar velur hnappþegi
þjónustufyrirtæki. Securitas
á farsælan feril í þjónustu og
aðstoð við hnappþega í tugi
ára, og þjónustar í dag á þriðja
þúsund hnappþega. Hnappþegar
Securitas eru afar ánægðir með
þjónustuna og viðbragðið.
Öryggishnappurinn er þó ekki
eingöngu fyrir þá sem njóta
niðurgreiðslu Sjúkratrygginga
Íslands. Allir geta fengið
öryggishnapp sem þess óska.
Það er einfalt að sækja um
öryggishnapp, það er eitt símtal til
Securitas sem tekur við beiðninni
og meðhöndlar hana þar til að
hnappurinn hefur verið settur upp
hjá viðkomandi.
Í öruggum höndum með
Securitas
Með öryggishnapp Securitas
er þeim sem eldri eru eða þeim
sem ekki njóta fullrar færni,
veittur farsæll tími, tími sem
þeir geta notið með fjölskyldu,
ættingjum og vinum, tími til að
njóta afmælisdaganna og að
vera með elskunni sinni heima hjá
sér. Öryggishnappur Securitas er
öruggt skjól þegar á reynir.
Elsa ásamt hópi öryggisráðgjafa sem sinna
málefnum hnappþega / Mynd: Eyþór Árnason