Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Side 2
ÖBl
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
1. TÖLUBLAÐ
9. ÁRGANGUR 1996
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot og útlit:
Fjóla Guðmundsdóttir
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
FRÁ ÞÓRSMÖRK
Anna Viðarsdóttir
Aðrar ljósm.:
Gerður Arnórsdóttir,
Hafliði Hjartarson o.fl.
Frá ritstjóra
Með þessu tölublaði Fréttabréfs Öryrkjabandalags Islands er upp
runninn níundi árgangur þess og með því eru eintökin 33 orðin
og síðurnar samtals 1324. Von og raunar vissa ritstjóra sú að einhverju
hafi á hverri tíð verið skilað í efni til ávinnings, fróðleiks eða hreinlega
hugarléttis. Ekki síður er haft í huga að heim-
ildagildi hafi efnið til framtíðarinnar, þegar fletta
þarf upp einstökum atriðum í baráttusögu umliðinna
ára eða minnast ákveðinna áfanga eða átaka á langri
leið. Vissa ritstjóra raunar sú einnig að fjölmargar
góðar greinar, sem hinir ýmsu höfundar hafa skenkt
blaðinu á þessum umliðnu árum, hafi ekki einungis
haft sitt góða dægurgildi, heldur hafi mjög víða
verið horft vel á veg fram. Auðvitað hlýtur efnisval slíks blaðs ævinlega
að einkennast að verulegu leyti af atburðum líðandi stundar, ákveðnum
atvikum sem almennri þróun mála. Vamarbaráttan nú um stundir hefur
óneitanlega sett sitt mikla mark á blaðið, en um leið skal í engu dregið
úr því hver nauðsyn er á vökulli varðstöðu um þau velferðargildi sem
mestu ntunu skipta um allar aðstæður og ævikjör okkar fólks. Hins
vegar skyldi þess vel gætt að við föllum ekki um of í þann farveg, að
dægurþrasið eitt hafi öll völd, dægurþrasið smækkar oft og víkur til
hliðar áherzlum okkar og markmiðum í meginmálum. Hin kalda
markaðshyggja auðgildis sækir alltof víða að, formerki hennar oft
frelsistengd, en grannt að gáð er það frelsi fjármuna en ekki fólks sem
felst að baki. Þeim grimmu gildum sem gægjast fram svo víða þarf að
bægja frá sem bezt, svo áfram megi sönn samhjálparsjónarmið setja
mark sitt á mál öll. Nú er skuggaríkt skammdegismyrkrið á rækilegu
undanhaldi og óðunt birtir yfir og bros sólarinnar bera yl í sál. Til vors
er horft vonglöðum huga. Megi vonarbirta vorsins verma allt þjóðlíf
okkar svo við megum horfa til heillaríkrar tíðar, þar sem velferðar-
markmið eiga sinn örugga sess.
Helgi Seljan.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra.................................2
Hallalaus fjárlög.............................3
Náms- og kynnisferð...........................4
Hlerað........6, 17, 30, 33, 37, 39, 42, 43, 45, 48
Gluggað í góðan fróðleik......................7
SPOEX sótt heim...............................8
Rauði borðinn.................................9
Samstöðuhátíð á Akureyri..................... 10
Ávarp Olafar á Samstöðuhátíð.................11
Alþjóðaendurhæfingarsambandið................ 13
Aldarfjórðungsafbragðsiðja................... 15
Alnæmissamtökin sótt heim.................... 16
Kynning á skýrslu............................18
Til heilla unnið af alúð og kærleika.........20
Perlan.......................................23
Af stjórnarvettvangi.........................24
Áskorun MS félagsins.........................25
Málefni fatlaðra.............................26
Maður þekktu sjálfan þig.....................27
Að búa við exem.............................28
Molar til meltingar.........................28
Ur vísnabanka Böðvars.......................29
Múrar.......................................31
Gátuvísur Magnúsar..........................31
Viðtal við Jónu Sveinsdóttur................32
Alþjóðlega hjálpartækjasýningin.............34
Ráðstefna um samstarf.......................35
Gluggað í glögg rit og gott betur...........36
Hripað hjá Hrafni...........................38
Iðjuberg formlega opnað.....................40
Bæklingur um meginreglurnar.................40
Athugasemd við leiðréttingu.................41
Kynning.....................................41
Ber er hver að baki nema sér bróður eigi....42
Gjáin.......................................43
FEPEDA......................................46
Leiðin látil Hjartaverndar..................47
Túskildingsóperan...........................47
Innlitið....................................48
NFR, Nordisk Förening
för Rehabilitering..........................49
I brennidepli...............................51
2