Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Side 24
Af stjórnarvettvangi
Fundur var haldinn í stjórn Öryrkjabandalags íslands
þann ll.desember á liðnu ári og hófst kl. 16,30 á
Grand Hótel Reykjavík.
Formaður stjórnar, Ólöf Ríkarðsdóttir, setti fund og
stjómaði honum. Hún bauð nýja stjórn velkomna til starfa,
sér í lagi þau fjögur sem nú væru þar fyrsta sinni: Heidi
Kristiansen, Jóhannes Agústsson, Nínu Hjaltadóttur og
Vilborgu Traustadóttur.
Framsaga formanns var svo um helztu verkefni hjá
bandalaginu frá því aðalfundur var haldinn. Hún greindi
frá því að ályktanir aðalfundar
hefðu víða verið kynntar vel
s.s. hjá ráðherrum, þingnefnd-
um og þingflokkum.
Aðalstarfið hefði snúið að
varnarbaráttu varðandi fjár-
lagafumvarpið og mætti til
sanns vegar færa að nokkuð
hefði áunnizt þó hvergi nærri
væri nóg. Ólöf kvað öllum
aðildarfélögum hafa verið sent
erindi þar sem vikið hefði verið
að helztu áherzluatriðum. Hún
ræddi sérstaklega um afteng-
ingu launa og bóta og kvað það áhyggjuefni allra mest ef af
yrði, því þá væri það geðþótti valdsmanna sem einn réði.
Taldi þessa gjörð vera hreint mannréttindabrot, ef lífeyris-
þegar ættu ekki að fylgja almennri launaþróun í landinu.
Ólöf sagði frá fundum með heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra og þingnefndum: fjárlaganefnd, félagsmálanefnd
og heilbrigðis- og trygginganefnd. Þar voru þessi atriði öll
rædd ítarlega og mótmælum við skerðingaráformum á
framfæri komið.
Félagsmálaráðherra, Páli Péturssyni, var skrifað
sérstaklega með beiðni um að hann stæði að kynningu
á Alþingi á meginreglum SÞ um jafna þátttöku fatlaðra,
helzt í kringum alþjóðadag fatlaðra 3.des. Félags-
málaráðherra hafði svarað og kvaðst myndu taka þetta til
umræðu í tengslum við almenna umræðu um málefni
fatlaðra á nýju ári.
Allmiklar umræður urðu um meginmál Ólafar s.s. um
skerðingu bóta vegna fjármagnstekna svo og um aftengingu
bóta og launa.
Helgi Seljan kynnti umsagnir bandalagsins á liðnu hausti
um lagafrumvörp og reglugerðir. Lagði áherzlu á það hve
mikils virði væri að mega koma þannig að málum. bæði til
að koma sjónarmiðum bandalagsins á framfæri svo og að
komast betur inn í og fylgjast meir með málum. Laga-
frumvörpin voru um framhaldsskóla og skaðabótarétt,
þingsályktun um fjölskyldustefnu og reglugerðardrög um
sérkennslu og sérfræðiþjónustu við grunnskóla.
Ólöf Ríkarðsdóttir kynnti spurningalista Öryrkjabanda-
lags Danmerkur sem sendur hafði verið til margra þjóðlanda
- spurt um réttindi og kjör öryrkja og almennt ástand mála
þeirra. Þetta hafði verið kynnt í framkvæmdastjóm og þær
Ásgerður höfðu svo svarað spurningunum sem voru í
mörgum liðum með einkunnastiganum 0-6.
Bifreiðakaupalán voru næst á dagskrá, þar sem Ólöf
greindi glöggt frá framvindu mála. Hún minnti á
mótmæli hörð við samþykkt meirihluta tryggingaráðs um
afnám þessara lánveitinga frá og með næstu áramótum. Hún
minnti á þátt tryggingaráðherra sem lýst hefði yfir því að
hún vildi láta tryggingaráð endurskoða meirihlutaafstöðu
sína. Sagði og frá fundi með formanni tryggingaráðs, Bolla
Héðinssyni, sem þær Guð-
ríður Ólafsdóttir, formaður
Sjálfsbjargar hefðu setið.
Haukur Þórðarson upp-
lýsti að nefnd þar sem hann
átti sæti hefði einmitt unnið
að samræmingu reglna um
styrki og lán til bifreiðakaupa,
þegar þessi ákvörðun trygg-
ingaráðs hefði yfir dunið.
Nefndin hefði einmitt verið
upplýst um það af hálfu
starfsfólks T.R. að afgreiðslu
lánanna fylgdi ekki mikil
vinna innan stofnunarinnar.
Haukur upplýsti að enn væri allt óljóst um heildar-
upphæð til bifreiðakaupastyrkja á næsta ári.
Ásgerður Ingimarsdóttir greindi frá fyrirhugaðri sam-
stöðuhátíð á Akureyri 14.des. Þar yrði afhent jólatré frá
Öryrkjabandalaginu við hátíðlega athöfn og tíminn að öðru
leyti nýttur til viðræðna við svæðisráð og starfsfólk
svæðisskrifstofu.
Hún minnti og á alþjóðadag fatlaðra - 3. des. - kvað
bandalagið hafa auglýst myndarlega þar í kring sín mest
brennandi baráttumál nú. Árangurslaust hefði verið reynt
að komast inn í Dagsljós RUV enda yrði útvarpsráði skrifað
þar um.
r
sgerður minnti um leið á hátíð Sjálfsbjargar í
Háskólabíó þar sem ferlimál hefði hæst borið. Við-
urkenning veitt fyrir leikþátt sem þar var fluttur, sömuleiðis
til Reykjavíkurborgar fyrir átak í ferlimálum. Einnig hefði
Hala-leikhópurinn frumsýnt Túskildingsóperuna í
aðdraganda alþjóðadagsins.
Að lokum minnti Helgi Seljan á meðferð fjármuna
Framkvæmdasjóðs fatlaðra, mikla skerðingu þeirra, svo og
lýsti hann áhyggjum sínum yfir takmörkuðum fjármunum
til framkvæmda á vegum félaga bandalagsins á næsta ári,
en tími væri til kominn að þessi félög með sína mikilvægu
þjónustu fyrir sína fötlunarhópa fengju ríflega aðstoð af
hálfu ríkisvaldsins við þá víðtæku starfsemi sem hið
opinbera þyrfti annars að fullu að fjármagna, jafnt fram-
kvæmdir sem rekstur.
Fundarmenn neyttu í lokin góðs málsverðar og formaður
sleit fundi kl. 19,20 með einlægum óskum um gleðileg jól
og gæfuríkt komandi ár. H.S.
24