Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1996, Side 36
Gluggað í glögg rit
og gott betur
Umönnun sjúklinga er meg-
inefni 4. tbl. Fréttabréfs
Parkinsonsamtakanna 1995.
Séra Jónas Gíslason vígslubiskup
hefur þar þýtt efni erlends bæklings
sem kemur inn á ýmis vandamál park-
inson - sjúklinga samfara innlögnum
á almenn sjúkrahús - á aðrar deildir
en taugadeild. Þessi atriði varða lyf,
vandamál gagnvart öðrum lyfjum,
snöggar breytingar á ástandinu, þörf
mikillar þolinmæði, talerfiðleika,
borðhald o.fl. I lokin er þeirri áskorun
beinttil starfsfólks sjúkrahúsa: Hlust-
ið á aðstandendurna. Þeir þekkja
venjulega sjúklinginn bezt og eiga
trúnað hans.
*
Samtök psoriasis- og exem-
sjúklinga gefa út glæsilegt frétta-
bréf þar sem um margt er mæta vel
fjallað. Helga Ingólfsdóttir er ritstjóri
fréttabréfsins. Af mörgu athyglisverðu
í ritinu, m.a. þýddri grein sem hér er
birt fleirum til fróðleiks, þá staldrar
ritstjóri alveg sérstaklega við svör
tveggja ágætra psoriasisþolenda við
spurningunni um áhrif psoriasis á
sköpunargáfuna, en í framhaldi af
hugleiðingu bandarísks rithöfundar
hér um svara spurningunni þeir Jón
úr Vör skáld og Hafliði Vilhelmsson
rithöfundur sem báðir svara á einkar
eftirtektarverðan og skemmtilegan
hátt s.s. þeirra er von og vísa. Eins er
spurt hvort til sé eitthvað sem nefna
mætti psoriasis - persónuleika og því
svara þrír félagsmenn og einn húð-
læknir og ekki bera þau svör með sér
að svarendur kannist við neitt slíkt.
Athygli vekja fréttir af landsbyggð-
inni, frá Akureyri, Stykkishólmi,
Akranesi, Borgamesi, Suðurlandi og
Vestfjörðum, sem sýna gott starf svo
víða.
Eins og áður hefur verið hér um
getið hefur Geðverndarfélag
Islands gefið árlega út þemahefti
svokallað um ákveðið, afmarkað efni.
Nú á liðnu ári var þemaheftið helgað
síþreytu, en síþreytufár hefur breiðst
mjög út um hinn vestræna heim og
enn hefur ekki tekizt að finna orsök-
ina. í þemahefti þessu er að finna afar
fróðlegar greinar sem gott er að kynna
sér fyrir alla. Sverrir Bergmann, lækn-
ir fjallar um síþreytu almennt, Sig-
urður Thorlacius, læknir fjallar um
vefjagigt og síþreytu, Eiríkur Líndal,
sálfræðingur urn sálrænar hliðar sí-
þreytu og Jón G. Stefánsson, læknir
er svo með almennar vangaveltur um
síþreytu. Þar kemur m.a. fram að ein-
kennandi fyrir síþreytu er, að hún
byrjar skyndilega og er í fyrstu eins
og kvef eða inflúensa. Það þreytist
enginn á að lesa þessar ljósu og
glöggu greinar. í orðsendingu til fé-
lagsmanna er svo vakin athygli á
þeirri yfirlýsingu núv. heilbrigðisráð-
herra að 10. okt. 1995 skyldi vera
alþjóðadagur geðheilbrigðis á Islandi.
*
Eins og fram kom svo ljóslega á
baksíðu síðasta tölublaðs hefur
Heyrnarhjálp nú flutt frá Klappar-
stígnum yfir á Snorrabraut 29 í
Reykjavík. Frá þessari nýju ágætu
aðstöðu mun sérstaklega greint.
*
egar greint var frá Degi hvíta
stafsins í síðasta tölublaði kom
þar fram að sérstök nefnd hefði verið
sett á laggirnar að tilhlutan félags-
málaráðherra til að vinna að stefnu-
mótun í málefnum blindra og sjón-
skertra. Nefndin skilaði áfangaáliti
um hlutverk Blindrafélagsins sem
almennrar þjónustumiðstöðvar fyrir
blinda og sjónskerta og mælti þar með
tvöföldun framlags til Blindrafélags-
ins með tilliti til enn víðtækara þjón-
ustuhlutverks þess. Félagsmálaráð-
herra brást þann veg við að hækka
framlagið sem nam 2/3 af tillögum
nefndarinnar eða um 2 milljónir
króna. Geta skal þess sem gert er vel.
*
✓
Isíðasta tölublaði liðins árs af SIBS
fréttum greinir framkvæmdastjóri
Reykjalundar, Björn Ástmundsson,
frábættri rekstrarstöðu Reykjalundar
þar sem leiðrétting allnokkur hafi
fengizt á síðasta ári á daggjöldum
Reykjalundar og Hleinar. Er það
öllum fagnaðarefni sem vilja sjá end-
urhæfingarstarfið þar sem allra blóm-
legast. Haukur Þórðarson, form. SIBS
fjallar um endurskoðun þá sem yfir
stendur á innra skipulagi og upp-
byggingu SIBS og segir þar að sér-
stakur landsfundur muni haldinn sem
leggi endanlegar tillögur fyrir þingið
á næsta hausti. Margt fleira efni er í
ritinu m.a. viðtal við Geir Þorsteins-
son, sem í aldarfjórðung hefur starfað
í eldhúsinu á Reykjalundi og stjórnar
þar nú og hefur gert mörg undangeng-
in ár.
36