Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Síða 32
Helgi Hróðmarsson, starfsmaður Samvinnunefndar
Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags íslands:
Heimsókn umboðsmanns fatlaðra hjá
Sameinuðu þjóðunum vegna kynningar
á meginreglum Sameinuðu þjóðanna
MEGINREGLUR SAMEINUÐU
ÞJÓÐANNA f MÁLEFNUM
s FATLAÐRA
Aallsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna árið 1992 fór fram
umræða sem markaði enda-
lok áratugs fatlaðra. Á þinginu var
m.a. samþykkt ályktun þess efnis að
3. desember ár hvert skyldi helgaður
umræðu um málefni fatlaðra. Á
þinginu voru
einnig samþykkt-
ar reglur sem
miða að jöfnum
tækifærum fatlaðs
fólks á við aðra
þjóðfélagsþegna.
Þær hafa verið
nefndar megin-
reglur Sameinuðu
þjóðanna. Regl-
““ urnar voru kynnt-
ar í fyrsta skipti opinberlega í júní
1994 á alþjóðlegri ráðstefnu sem
Landssamtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag íslands stóðu að í
samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar.
Reglurnar eru ekki lög en eru hins-
vegar tilmæli Sameinuðu þjóðanna til
aðildarlanda sinna um áherslur í mál-
efnum fatlaðra. Þannig eru settar sið-
ferðilegar skyldur á aðildarlöndin.
Samtök fatlaðra víða um heim hafa
síðan vænst þess að reglurnar séu und-
anfari alþjóðalaga eða öðlist stöðu
alþjóðasáttmála líkt og Barnasáttmáli
Sameinuðu þjóðanna. Þáhvetjaregl-
urnar ennfremur til þess að litið sé á
málefni fatlaðra sem mannréttindamál
og beri að fara með sem slík.
Helgi
Hróðmarsson
EMBÆTTI UMBOÐSMANNS
FATLAÐRA
1 meginreglunum er sérstakur kafli
um eftirlit með reglunum. Þar segir
að skipa eigi sérstakan umboðsmann
til starfa í þrjú ár. í mars 1994 bauð
Boutros Boutros-Ghali, þáverandi
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, Bengt Lindqvist að taka starfið
að sér. Bengt hélt síðan sína fyrstu
ræðu sem umboðsmaður fatlaðra hjá
Sameinuðu þjóðunum á alþjóðlegu
ráðstefnunni í Reykjavík í júní 1994.
Bengt er fyrrverandi félagsmálaráð-
herra Svíþjóðar og hefur mjög viða-
mikla reynslu og þekkingu á alþjóð-
legu samstarfi og málefnum fatlaðra.
Með umboðsmanni starfar fastanefnd
sérfræðinga, en í nefndinni eiga sæti
fulltrúar samtaka fatlaðra. Hlutverk
umboðsmanns er að fylgjast með
framgangi meginreglnanna og vera
framkvæmdastjóra til ráðgjafar um
stöðu fatlaðs fólks.
RÁÐSTEFNA UM
MEGINREGLURNAR
Blindrafélagið, Landssamtökin
Þroskahjálp, Mannréttindaskrifstofa
Islands og Öryrkjabandalag Islands
stóðu að komu Bengt Lindqvist hing-
að til lands í desember síðastliðnum.
Eftirtaldir áttu sæti í undirbúnings-
nefnd: Ásta B. Þorsteinsdóttir fyrr-
verandi formaður Landssamtakanna
Þroskahjálpar, Bjarney Friðriksdóttir
frá Mannréttindaskrifstofu Islands,
Friðrik Sigurðsson framkvæmdastjóri
Landssamtakanna Þroskahjálpar,
Garðar Sverrisson varaformaður
Öryrkjabandalags Islands, Gísli
Helgason forstöðumaður, Helgi
Hjörvar formaður Blindrafélagsins,
og Helgi Hróðmarsson starfsmaður
Samvinnunefndar Þroskahjálpar og
Öryrkjabandalags.
I tilefni af komu Bengts héldu
ofangreind samtök ráðstefnu um
meginreglur Sameinuðu þjóðanna
þriðjudaginn 9. desember sl. á Hótel
Sögu þar sem Bengt Lindqvist var
aðalfyrirlesari. Bengt fjallaði um
reglur Sameinuðu þjóðanna í mál-
efnum fatlaðra; bakgrunn, hug-
myndafræði og framkvæmd. Eftir
hádegi sama dag var framlag íslend-
inga. Margrét Margeirsdóttir,
deildarstjóri málefna fatlaðra í félags-
málaráðuneytinu, fjallaði um hvað
íslensk stjórnvöld hafa gert til að
uppfylla reglurnar; Ragnar Aðal-
steinsson, hrl. fjallaði um reglurnar
og mannréttindi og Helgi Hjörvar,
formaður Blindrafélagsins fjallaði
um reglurnar og hagsmunasamtök
fatlaðra. Ráðstefnustjóri var Ásta B.
Þorsteinsdóttir. Þá störfuðu einnig á
ráðstefnunni eftirtaldir vinnuhópar:
Frá heimsókninni á Bessastöðum.
32