Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Síða 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
3. tbl. 13. árgangur
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
HELGI SELJAN
Setning:
RAGNA ATLADÓTTIR
Umbrot og útlit:
GUÐMUNDUR EINARSSON
Prentun:
STEINDÓRSPRENT-GUTENBERG
Mynd á forsíðu:
RÚNA STÍNA ÁSGRÍMSDÓTTIR
RÉTTARDAGUR Á STRÖNDUM
Frá ritstjóra
Senn haustar að og húmskuggarnir lengjast. Veðrabrigðin verða æ
gleggri eftir gott sumar sólu vermdra daga. Hver tíð á sína töfra ef við
náum að nema þá. Haustlitir skóganna heilla okkur í himneskum lit-
brigðum sínum, en fallandi lauf á foldu færa þó með sér
vísan vetrarblæ. Framundan er ærinn annatími á okkar
félagslega vettvangi, haust og vetur öðru fremur sá starfs-
tími sem mestu skiptir hjá hagsmunafélögum eins og
Öryrkjabandalagi Islands. Fjárlagafrumvarp lítur dagsins
ljós og boðskapur þess varðar enga meir en öryrkja, því
þar er að finna þá heildartölu fjármuna sem allri afkomu
ráða hjá fjölda fólks. Frumvörp varðandi yfirfærslu máleíha fatlaðra til
sveitarfélaga fá sína verðugu umfjöllun og þar þarf vel að standa vaktina
þar sem aðalatriðið er það að hagsmunum fatlaðra sé fullborgið til fram-
tíðar.
Hæstiréttur mun kveða upp sinn dóm í máli Öryrkjabandalagsins gegn
ríkisvaldinu vegna tengingar makatekna við greiðslur frá Trygginga-
stofnun og hans með óþreyju og vissri vongleði beðið svo víða úti í sam-
félaginu. Þannig mætti áfram tíðindi telja.
Félögin okkar fara í gang með sitt verkadrjúga vetrarstarf og vissulega
er þar margt þarft verkið unnið og upp byggt til farsælli framtíðarhags.
Öryrkjabandalagið kallar til aðalfundar síns síðla í október og þar koma
öll okkar aðildarfélög jafnt að ákvarðanatöku allri.
Ævarandi er kjarabaráttan og ætíð efst á baugi en mörg þýðingarmikil
mál bíða umQöllunar og afgreiðslu.
Göngum heil til vænna verka svo vetrartíðin nýtist sem best, þannig að
uppskera vordaga verði sem heillaríkust.
Helgi Seljan.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra....................................2
Yfirfærslan á ekki hljómgrunn innan ÖBI..........3
Fundur um yfirfærslu.............................4
Kynning og þakkir................................5
Brosið...........................................5
Hann studdi marga................................6
Fréttir frá Átaki...............................11
Danmerkurferð BUSLara...........................12
Hlerað......4, 5, 13, 15,22,31,33,41,43,47, 48,51
Frá samtökum lungnasjúklinga....................14
Heimsókn í Ásgarð...............................16
Hryggrauf.......................................17
Félag áhugafólks um Downs-heilkenni.............18
Mannréttindaskrifstofa Islands..................19
Bókarkynning....................................20
Frá Heyrnarhjálp................................21
Atvinna með stuðningi...........................21
Skyggnst um í Skálatúni.........................22
Dýrmæti djáknastarfsins.........................24
Síðbúinn kærleikur..............................24
Frá Námssjóði Sigríðar..........................25
Tvær snjallar...................................25
Stefnumótun í endurhæfingu......................26
Nýr framkvæmdastjóri stjórnar SÍBS..............27
Að stikla á þúfum...............................28
Frá Félagi heyrnarlausra........................31
Michael J. Fox..................................32
Um sjálfstyrkingarnámskeið.......................33
Mobility International...........................34
Nefndarálit......................................36
Skýjadans........................................37
Dulítil saga.....................................38
Frá Tölvumiðstöð fatlaðra........................40
Sitthvað um skattamál............................41
Sögur af smáfólki................................42
Kynning framkvæmdastjóra.........................43
Engin aldursmörk.................................44
í ljóðum.........................................45
Fyrir áratug aðeins..............................46
Þjónusta við fatlaða.............................47
Félag heyrnarlausra..............................47
Ur vísnasafni Ólafar.............................47
Sjúkdómssaga.....................................48
Heiðursfélagi Parkinsonsamtakanna................49
Staka............................................49
Morgunstund......................................49
Ur safni Friðgeirs...............................49
Með brest í boga.................................50
Nýjar gestaíbúðir................................50
Nýir formenn og framkvæmdastjórar................51
Heimilið Mýrarási 2..............................51
Sjálfsbjörg hættir afgreiðslu P-merkja...........52
Fundaferð um Austurland..........................52
Fáránleg heimsmet................................53
Frá Umsjónarfélagi einhverfra....................53
Frá Gigtarfélagi Islands.........................53
I brennidepli....................................54
2