Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Page 53
Fáránleg
heimsmet
Hann Gísli Helgason segir að á
veraldarvefnum sé að finna
ótrúlegustu hluti s.s. vefsíðu með fá-
ránlegustu heimsmetum sem sett hafa
verið án þess að menn ætluðu sér það.
Sendi hann blaðinu eitt slíkra dæma
svohljóðandi:
Fjórir náungar ákváðu að fara á
jeppa og dorga í gegnum ís á vatni
einu í grenndinni.
Þeir tóku með sér byssur til öryggis
og einn hafði veiðihundinn sinn með
sér og svo voru þeir auðvitað með alls
kyns hafurtask í bílnum.
Þegar þeir voru búnir að vera dá-
góða stund úti á ísilögðu vatninu voru
þeir orðnir leiðir á að höggva vakir í
ísinn og ákváðu að auðvelda sér
leikinn og sprengja með dýnamiti.
Einn sótti dýnamittúbu í jeppann og
kastaði henni eins langt og hann gat.
Um leið tók veiðihundurinn á rás og
náði í túpuna. Mennirnir sáu sér til
skelfingar hvar hundurinn kom hlaup-
andi með túpuna í kjaftinum og
stefndi hann beint á jeppann. Þeir
stukku allir upp í jeppann og gripu til
byssanna og miðuðu þeim á hundinn
og ætluðu að skjóta hann. Þegar
hundurinn sá hvað til stóð, herti hann
sprettinn og faldi sig undir jeppanum.
Ekki hefur síðan spurst til mannanna,
hundsins eða jeppans. Og hæfir hér
amen eftir efninu.
Frá Umsjónar-
félagi einhverfra
Hún Astrós Sverrisdóttir fyrrver-
andi formaður Umsjónarfélags
einhverfra sendi hingað hlýjar kveðjur
á vörmum vordögum og urn leið
greindi hún frá nýrri stjórn félagsins
sem kjörin var á aðalfundi félagsins
30. maí sl. Hana skipa: Formaður
Eiríkur Þorláksson, gjaldkeri Sigrún
Birgisdóttir, ritari Rakel Garðarsdóttir
og meðstjórnendur þau Kristín Asta
Halldórsdóttir og Þröstur Sverrisson.
I varastjórn eru Sabine Marth og
Helga Björg Jónasardóttir.
Aðsetur félagsins er að Tryggvagötu
26 eins og hér hefur áður komið fram.
Nýrri stjórn er alls velfarnaðar
árnað.
H.S.
Gigtarfélagsmenn ráða ráðum síniim.
Frá Gigtarfélagi
, íslands
Amildum maídögum liðins vors kom mæt skýrsla hingað á borð frá
Gigtarfélaginu, ársskýrsla félagsins fyrir árið 1999. Þar kennir
margra mætra fróðleiksmola, sem full ástæða er til að fyrir fleiri sjónir
fái komið en félaganna einna og verður þó hér aðeins á stærstu molunum
stiklað.
Félögum fjölgaði um rúm 9% á árinu og nú eru félagar 4105, enda annað
stærsta aðildarfélag ÖBÍ. Deildir eru í þrem landshlutum; Norðurlandi eystra,
Austurlandi og Suðurlandi. Sagt er frá nýjum áhugahóp er stofnaður var á
árinu, Sjögren hópurinn svokallaður og í gangi er undirbúningur að stofnun
áhugahóps um barnagigt.
Samkvæmt sérstökum samningi við Samvinnuferðir Landsýn nýttu þau
ferðatilboð nokkuð á þriðja hundrað félaga. Sagt er frá styrkjum úr Þor-
bjargarsjóði, en tilgangurinn að styrkja ungt fólk til menntunar. A rannsóknar-
stofu í gigtarsjúkdómum eru stærstu verkefnin varðandi rauða úlfa og iktsýki.
Grein er gjörð fyrir aðild að erlendu samstarfi s.s. að Norræna gigtarráðinu
sem varð 10 ára á síðasta ári.
Málþing urn gigtarsjúkdóma var haldið á alþjóðagigtardeginum 12. október
og tókst afar vel.
Getið er afar góðra gjafa sem félaginu hafa borist og þakkaðar eru hlýjum
huga. í öðru lagi er svo fróðleikur um gigtarmiðstöðina en gigtlækninga-
stöðin hefur verið starfrækt í 15 ár. I sjúkraþjálfun á stöðinni voru ríflega
12.000 meðferðir á árinu en í iðjuþjálfun 4450 svo umfangið er gífurlega
mikið.
Stefnt er að því að iðjuþjálfar verði á Akureyri mánaðarlega í ár og í undir-
búningi að þjónustan verði veitt í öðrum landshlutum.
Gigtarlína G.í. - símaráðgjöf fyrir gigtarsjúka tók til starfa í september 1999
og fyrir áramót höfðu 200 manns samband við línuna, en þar situr teymi fag-
fólks fyrir svörum.
Greint er frá afliendingu gullmerkja félagsins en frá því sagt hér áður.
Að lokuni er sagt frá 10 fræðslufundum og 11 námskeiðum, flest um vefja-
gigt, en einnig um slitgigt, sjálfshjálp og slökun. Svo er frá því greint að tíma-
ritið Gigtin hafi komið út tvisvar á árinu. Þekkur fróðleikur er þakkaður
framkvæmdastjóranum, Emil Thóroddsen og ljóst að félagið er vel vakandi og
virkt í málefnum gigtsjúkra , það er ekki bara fjallað um hlutina, það er fram-
kvæmt.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
53