Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 23

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 23
ur sammála um það núna, að mótið kunni að verða tvísýnna en oft áður — að það verði jafnvel ekki fyrr en í síð- ustu leikjum þess sem úrslitin verða ráðin. íþróttablaðið fjallar nú til gamans um hvert og eitt lið sem leikur í 1. deildinni og hugleiðir möguleika þeirra. Akranes Sami maður þjálfar nú Akranesliðið og tvö undanfarin ár, Englendingurinn George Kirby. Er þetta raunar fjórða árið sem Kirby þjálfar Skagamenn, og ætlar sér örugglega að leika sama leik og jafnan áður — að skila þeim af sér að hausti sem íslandsmeisturum. Gamalt máltæki segir að allt sé þegar þrennt sé, og örugglega verður róðurinn erfiður fyrir Akurnesinga í ár. Það er fremur sjaldgæft að liði, bæði hérlendis sem og ytra, takist að halda meistaratitli mörg ár í röð. Akranesliðið hefur þó alla burði til þess að ná langt í sumar. Það er að mestu skipað sömu mönnum og léku Guðmundur í landsleik í fyrra. Tvísýnt íslandsmót — sagöi Guðmundur Þorbjörnsson Ég á von á því að mótið verði tví- sýnna nú en oftast áður, sagði hinn marksækni miðherji Valsliðsins, Guðmundur Þorbjörnsson, í viðtali við fþróttablaðið. — Ég á t.d. alls ekki von á því að eitt eða tvö lið skeri sig fljótlega úr og nái afgerandi for- ystu í mótinu, eins og verið hefur undanfarin ár, heldur er líklegt að flestir leikir mótsins verði miklir baráttuleikir og úrslitin stundum á annan veg, en menn hafa ef til vill átt von á fyrirfram. Þannig eru nú topp- liðin í deildinni aiis ekki viss um sigur í leikjum við hin neðri, og báðir ný- Iiðamir: Þróttur og KA verða örugg- lega erfiðir viðfangs — fyrsti leikur Þróttaranna, er þeir tóku stig af fs- landsmeisturum Akraness staðfestir þetta. Guðmundur sagði að mikill áhugi væri ríkjandi meðal Valsmanna. — Við vorum búnir að ná okkur mjög vel á strik í vor, en urðum þá fyrir óhöppum, er tveir af fastamönnunum í liðinu meiddust, þeir Magnús Bergs og Hálfdan Örlygsson. Við þetta kom smáafturkippur, en ég held, að nú séum við komnir á skriðinn aftur. Við eigum í raun og veru nógan mannskap, sérstaklega varnarmenn. Valsmenn hafa nú ungverskan þjálfara og var Guðmundur að því spurður, hvort miklar breytingar hefðu orðið á þjálfun liðsins er hann tók við því. — Það hefur ekki orðið nein meginbreyting, sagði Guðmundur. — Ungverjinn og Yuri, sem við höfum haft undanfarin tvö ár, virðast leggja sömu atriði til grundvallar við þjálf- unina, en því er ekki að neita, að Ungverjinn nálgast markmiðin eftir nokkrum öðrum leiðum en dr. Yuri gerði. Ég er mjög ánægður með hann sem þjálfara — hann gengur beint til verks og afskaplega lítill tími fer til spillis við æfingarnar. Þegar leitað var álits Guðmundar á því hvaða lið myndu berjast um fs- landsmeistaratitilinn í sumar vitnaði hann til þess sem fram kom í upphafi, að baráttan yrði tvísýn. — Ætli það verði ekki Valur, Akranes og Vík- ingur, sagði hann, — en fleiri lið, t.d. Vestmannaeyjar og Fram eiga einnig góða möguleika á að blanda sér verulega í baráttuna. 23

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.