Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 41

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 41
leikmönnum, þar sem hluti leikmanna þeirra hafði fengið matareitrun og voru margir þeirra illa haldnir. Ekki tókst að ljúka leiknum, þar sem tveir leikmenn Belga meiddust í leiknum, þannig að einungis voru 6 orðnir eftir, er líða tók á síðari hálfleikinn og leikurinn því flautaður af. Með þessu var þátttöku Belga lokið, en héldu heim með lið sitt næsta morgun og var mikil eftirsjá í þeim. Belgar voru að þessu sinni með mjög ungt og skemmtilegt lið, sem gaman hefði verið að leika gegn. Þess má geta að Belgar unnu þetta mót á s.l. ári. Allir leikir Belga í keppninni voru úrskurðaðir tapaðir með 3—0 og unnum við þar með okkar fyrsta leik í úrslita- keppni UEFA án þess að leika. Júgóslavar og Ungverjar gerðu síðan jafntefli í markalausum leik, þannig að leikur okkar við Júgóslava, sem fram fór 9. maí réð úrslitum um það hvort liðið, þ.e.a.s. Júgóslavar eða Ungverjar komust áfram í 4. liða úrslitin. Það er skemmst frá að segja, að leik- urinn fór fram við mjög slæmar að- stæður, sem jafnvel að margra dómi voru þannig, að rétt hefði verið að færa leikinn á annan völl. Svaðið var slíkt fyrir framan mörkin, að markverðirnir stóðu í ökla í drullu og annað var eftir því. Framan af var leikurinn jafn, en í hálfleik var staðan 1-0 fyrir Júgóslava, en við áttum góð tækifæri í byrjun til að taka forystuna, sem ekki tókst að nýta. Júgóslavar bættu við öðru marki í síðari hálfleik, en á 21. mín. skoraði Benedikt Merki 31. UEFA keppni unglinga 16—18 ára. (Mynd Helgi Dan.) Frá leiknum gegn Wales í Reykjavík 4. okt. 1977, en honum lauk með jafntefli 1—1, en íslendingar sigruðu Wales síðar 1—0 og tryggðu sér rétt til þátttöku í úrslita- keppninni í Póllandi. Á myndinni er Arnór Guðjohnsen, að reyna „hjólhesta- spyrnu“, en af örðum leikmönnum íslands má sjá Benedikt Guðmundsson (5) og Benedikt Guðbjartsson. Guðmundsson eftir hornspyrnu. Mín. síðar bættu Júgóslavar við 3ja markinu og gerði það út um leikinn. Fjórða markið kom svo nokkru síðar. Ég hef aldrei séð þreyttara lið ganga af velli, en íslenska liðið eftir þennan leik. Feik- menn höfðu barist til síðasta blóð- dropa, ef þannig má að orði komast og þeir töpuðu gegn ofurefli með sæmd. í úrslitakeppninni unnu Júgóslavar síðan Skota á vítaspyrnukeppni eftir að leik lauk með jafnvefli 2-2. Sovétmenn unnu Pólverja 2—0. í úr- slitum mættust því Sovétmenn og Júgóslavar og sigruðu þeir fyrrnefndu með 3—0 og unnu þar með það ein- stæða afrek að fá ekki á sig mark í allri úrslitakeppninni. I keppninni um 3ja sætið unnu Pólverjar Skota með 2—0, en Pólverjar voru af mörgum taldir vera með skemmtilegasta liðið í keppninni. Rétt er að geta þess, að Rafn Hjalta- lín dómari frá Akureyri var meðal dómara í keppninni. Var hann einn af 6 dómurum sem valdir voru til að dæma úrslitaleikina og var hann m.a. línu- vörður í úrslitaleiknum. Það er hægt að skrifa langt mál um þessa keppni, undirbúning íslenska liðsins, þær aðstæður sem við búum við og bera þetta síðan saman við það, sem aðrar þjóðir geta boðið uppá og gera fyrir sína leikmenn. Allur samanburður verður að sjálfsögðu mjög neikvæður fyrir okkur. Það eitt, að komast í 16 liða úrslit þessarar keppni er meira afrek, en menn almennt átta sig. Margir forystu- menn knattspyrnumála í Evrópu hafa rætt þessi mál við mig, bæði nú og undanförnum mótum, og látið í ljós undrun sína yfir þessum einstæða árangri Islendinga. Það er ljóst, að ef við ætlum að ná lengra, verður að gera stórt átak í þess- um málum. Ekki einungis hjá KSÍ heldur einnig hjá knattspyrnufélögum um land allt. I vissum tilfellum stönd- um við knattspyrnulega langt að baki þeim þjóðum, sem við leikum gegn, eins og t.d. í sambandi við knattmeð- ferð, leikskipulag o.fl., en í sambandi við baráttu og dugnað mætti margir læra af okkur. Undirbúningur undir þessa keppni var í höndum unglinganefndar KSt, en þjálfarinn Fárus Foftsson bar hita og þunga þess starfs. Lárus hefur náð ein- stæðum árangri með unglingalandslið- ið, en þetta er 3. liðið sem hann leiðir í úrslitakeppni á þrem árum. Mér er til efs að nokkur þjálfari í Evrópu geti státað af slíku. Keppni þessi fer fram á mjög óheppilegum tíma fyrir okkar drengi. Þeir eru velflestir á kafi í próf- um á þessum tíma og margir þeirra tóku jafnvel tvö til þrjú próf á dag síð- ustu dagana áður en farið var út og sumir höfðu með sér námsbækurnar til Framhald á bls. 85 41 L

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.