Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Page 61
ÁHRIF ALDURS OG BURÐARTÍMA 59
8. Tafla. Margföldunarstuðlar til leiðréttinqar á aldursáhrifum.
Table 8. Multiplication constants for correcting aqe effect.
Aldur , ár Age ,year Kg mjólk Milk yield Kg mjólkurfita Milk fat yield Fituprósenta Fat percentage Hæsta dagsnyt kg Maximum daily yield kg
3 1.22 1.20 0.98 1.20
4 1.09 1.07 0.98 1.08
5 1.02 1.01 0.99 1.03
6 1.00 1.00 1.00 1.00
7 1.00 1.00 1.00 1.00
>8 1.01 1.03 1.01 1.01
rannsókn mjög áþekk aldursáhrif fyrir fim-
prósentu og hér er fundin. Ólafur JÓNSSON
(1966), sem kannaði breytingar á fituprósentu
skýrslufærðra kúa í Eyjafirði, fann aftur á
móti hverfandi lítil aldursáhrif á fituprósent-
una.
Hjá norskum kúm fann Syrstad (1965)
hæstu fituprósentu á öðm mjólkurskeiði, en
í nýrri rannsókn hefur hann (Syrstad 1975)
fundið hæstu fituprósentu við heldur hærri
aldur, en aftur á móti fall í fituprósentu hjá
eldri kúm.
Mestri hæstu dagsnyt virðast kýrnar ná við
líkan aldur og hæstum ársafurðum, enda
löngu þekkt, að allsterk fylgni er milli þessara
tveggja mælinga á afkastagetu gripanna
(Þórður G. Sigurjónsson, 1973). Hæsta
dagsnyt hjá þriggja ára gömlum kúm er um
3,4 kg lægri en hæsta dagsnyt hjá sjö ára
gömlum kúm. Hæsta dagsnyt hjá þriggja ára
gömlum kúm er ýmist frá fyrsta eða öðm
mjólkurskeiði.
Fundið er í fjölda rannsókna, að áhrif
aldurs á afurðamagn eru fremur margfeldis-
áhrif en samlagningaráhrif (Syrstad, 1965
Magnús B. Jónsson, 1968, Fimland et.al.,
1972, Miller, 1973). Þannig aukast afurðir
hlutfallslega jafnt við háar og lágar afurðir
með aldri.
Til að reyna að leggja mat á þetta var
gerð fervikagreining á óvegnum meðaltöl-
um milli búa og aldursflokka og víxláhrif-
um þessara þátta. Sú greining sýndi minni
víxláhrif, þegar margföldunarstuðlar voru
notaðir, og einnig, að aldursáhrifum var bet-
ur eytt með þeim en samliggjandi smðlum.
Líkar aðferðir notuðu Searle og Hender-
SON (1960) til að meta mismunandi aðferðir
til að leiðrétta afurðatölur.
I rannsóknum á afurðatölum í Bandaríkj-
unum fundu Searle og Henderson (1960),
að bezt leiðrétting náðist fyrir aldursáhrifum,
þegar notaðir voru stuðlar, sem voru fall af
meðalafurðum búsins (h) (þ. e. á forminu
a+b-h). HiCKMAN (1973) bendir á, að
slíkir stuðlar hafi þó einkum reynzt eiga við,
þegar leiðrétt er fyrir aldursáhrifum hjá
fyrstakálfskvígum.
Til að reikna margföldunarsmðlana fyrir
aldursáhrif var nomð eftirfarandi formúla,
sem Syrstad (1965) hefur birt:
xfc + (c± -c)
þar sem Xt er meðaltal stofnsins, cm
er smðull hópsins, sem leiðrétta skal að,
c- stuðull hópsins, sem leiðrétta skal, og
C vegið meðaltál smðlanna.
Ákveðið var að leiðrétta að afurðum hjá
kúm í hæsmm afurðum, þ. e. að sex til sjö