Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Page 71

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Page 71
ÁHRIF ALDURS OG BURÐARTÍMA 69 Stuðlar fyrir áhrif aldurs fyrir einstaka landshluta og ár eru sýndir í 12. töflu. Há- marksafurðir kúnna í öllum landshlutum eru við sex eða sjö ára aldur, en þar sem þetta eru þeir stuðlar, sem metnir eru með mestri skekkju, þá er tekið meðáltal þessara tveggja aldursára og við ákvörðun á margföldunar- stuðlunum leiðrétt að því meðaltali. Þegar aldursáhrifin eru metin á þennan hátt, má sjá í töflunni, að enginn munur kemur fram milli landshluta. Þær sveiflur, sem fram koma, eru milli ára innan sama landshluta. Þessar niðurstöður benda mjög ákveðið til, að með sameiginlegum aldursleiðréttingar- stuð'um fyrir allt landið megi eyða megin- hiuta af áhrifum aldurs á afurðir kúnna. Ahrif burðartíma á afurðir, flokkuð á sama hátt, eru sýnd í 13. töflu. I öllum landshlutum bera flestar kýr í aprílmánuði, og eru því stuðlarnir miðaðir við leiðréttingu að afurðum aprílbæra. I 13. töflu sést, að sveiflan á burðartímastuðlunum er mun meiri en á aldursleiðréttingarstuðlunum. Tilviljunarskekkjan á burðartímasmðlunum er að vísu eitthvað hærri. Tilviljunarskekkja á burðartímastuðlum er þannig á bilinu 30— 80 kg eða í margföldunarstuðlum 0,02. í þeirri sveiflu, sem fram kemur í stuðlunum, virðist erfitt að greina nokkurn skýran mun milli landshluta. Sé hann einhver, lýsir hann sér í fremur meiri áhrifum burðartímans á afurðir kúnna á Norðurlandi en á Suður- landi. Munur milli ára innan sama landshluta er aftur á móti verulegur, eins og sést í 13. töflu. Þessar niðurstöður sýna það mjög skýrt, að það, sem hér er verið að meta sem áhrif burðartíma á afurðir, er aðeins að mjög tak- mörkuðu leyti föst áhrif. Hér eru sennilega sterkust áhrif af mismunandi fóðri og fóðrun eftir árstímum, sem verða breytileg frá ári til árs. Hluti þeirra áhrifa verður bundinn við ákveðin landssvæði, en stór hluti við ein- stök bú. Þá geta sveiflur í árangri sæðingarstarf- seminnar verkað svo, að fram komi burðar- tímaáhrif, sem geta orðið mismunandi frá ári til árs. Af 13. töflu má sjá, að burðartímaáhrifin virðast vera meiri árið 1975 en árið 1974. Munurinn milli ára er auk þess mun aug- ljósari á Norðurlandi en á Suður- og Vesmr- landi. Vitað er, að þættir eins og smitandi veiruskita í kúm á Norðurlandi vorið 1975 og óþurrkar á Suður- og Vesturlandi sumarið 1975 höfðu allnokkur áhrif á afurðir, sem að hluta til má vænta, að komi fram í burðar- tímaáhrifum. Þessar niðurstöður benda til, að ekki sé annað hægt en nota sameiginlega burðartíma- stuðla fyrir allt landið. Aftur á móti sýna þær um leið, að burðartímaleiðréttingin er verulega óömgg, og þyrfti að leita annarra aðferða til að geta leiðrétt betur fyrir áhrif- um burðartímans á afurðir. UMRÆÐUR OG ÁLYKTANIR. I þessari rannsókn hefur verið sýnt fram á veruleg áhrif aldurs kúnna og burðartíma á afurðir þeirra. Saman skýra þessir þættir með því reiknilíkani, sem notað hefur verið til að meta áhrif þeirra, um 18% af heildarbreyti- leikanum í afurðamagni hjá kúm innan bús. Aðferð, sem mikið er nomð til að meta áhrif einstakra þátta, er að nota sem mat á þau skýrihluta einstakra þátta í reiknilíkaninu 2 (R^) (Searle, 1971). Þegar þessi aðferð er nomð, kemur í ljós, að aldurinn skýrir 12,88% af breytileika og burðartími 6,86%. Eins og áður er nefnt, eru þessir þættir nokk- uð samtvinnaðir í gögnunum, þannig, að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.