Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Page 73

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1977, Page 73
um var svo mikill, að hann hafði áhrif á af- kvæmadóm á nautum. Með leiðréttingu á afurðatölum er að því stefnt að gera þær óháðar þeim þáttum, sem leiðrétt er fyrir, og fá þannig öruggara mat á erfðaeðli einstaklingsins út frá svipfari hans. Ef gert er ráð fyrir, að með leiðréttingu megi eyða 20% af breytileika í afurðamagni og að arfgengi á leiðréttum tölum sé 0,20, þá eykst öryggi í úrvali, þegar byggt er á einu afurðaári, um 12%, en í afkvæmadóm, sem byggður væri. á 50 dætrum, mundi öryggið aukast um 3,5%. Á þessu sést glöggt, að langsamlega mest er að vinna með leiðrétt- ingunum við mat á einstaklingum, þegar litið er á breytileikann sem tilviljunarkennd- an. Miklu alvarlegri eru hin kerfisbundnu áhrif þáttanna, sem geta valdið því að mat á arfgerðina verður skekkt. Á það má t. d. benda, að veruleg fylgni er milli burðartíma hjá sömu kú ár eftir ár, þannig að röng burðartímaleiðrétting getur magnazt upp, þegar farið er að nota meðaltal fleiri ára. I slíku meðaltali verða aldursáhrif aftur á móti að verulegum hluta tilviljunaráhrif. Alvarlegust skekkja getur þó orðið við af- kvæmadóm á nautum, ef dreifing dætranna á burðarmánuði er verulega ójöfn eða aldurs- tímadreifing mismunandi milli nauta, eins og oft á sér stað í reynd. Þessi rannsókn gefur ákveðnar vísbend- ingar um, að ársafurðir hafi verulega van- kanta sem mælikvarða á afurðasemi gripanna. Þegar ársafurðir eru notaðar, virðist sem í þeim séu bundin veruleg „skýrsluáhrif”, sem hafa verið skýrð hér að framan. Þessi áhrif virðast m. a. geta skýrt verulegan hluta af þeim víxláhrifum, sem koma fram í afurða- tölunum milli aldurs og burðartíma. Það, sem gerir þessi víxláhrif enn alvarlegri, er, að þeirra gætir mest hjá yngstu kúnum, sem einmitt eru þær kýr, er afkvæmadómurinn á nautum hverju sinni er byggður á. ÁHRIF ALDURS OG BURÐARTÍMA 71 Mun betri mælikvarði á afurðagem grip- anna er mjólkurskeiðsnyt. Hammond (1958) mælti með þeirri aðferð hér á landi með til- liti til afkvæmarannsókna og þá sérstaklega á afurðum fyrsta mjólkurskeiðs. Eftir það var farið að leggja saman afurðir fyrstakálfs- kvígna fyrstu 43 virkurnar eftir burð, um leið og skýrslur voru gerðar upp. Uppgjör skýrslnanna í tölvu gefur enn meiri mögu- leika nákvæmari og fljótari afkvæmadóms á nautum eftir afurðum yfir mjólkurskeið. Búnaðarfélag Islands hefur því í undirbún- ingi slíka könnun á nyt kvígna á fyrsta mjólk- urskeiði og notkun framlengingarstuðla, sem mundi flýta afkvæmadóminum enn meir. Með því að nota mjólkurskeiðsnyt eru allar upplýsingar um fyrsta mjólkurskeið nýttar, með því að nota ársnyt nýtist sára- lítill hluti vitneskju frá fyrsta mjólkurskeiði, vegna þess að upplýsingarnar eru fyrst not- aðar við afkvæmadóm, þegar fyrsta heila skýrsluárið fæst. Oftast nær fæst þannig heila skýrsluárið á því ári, sem kýrin ber öðrum kálfi. Með þessari breytingu ætti afkvæma- dómur að fást að minnsta kosti hálfu ári fyrr en með núverandi kerfi. Með notkun á framlengingarstuðlum fyrir afurðir fyrsta- kálfskvígna á bæði að mega auka öryggi afkvæmadómsins og einnig flýta dómi um nautin. Rannsóknir, sem Auran (1976) hefur gert í Noregi, benda eindregið til, að slíka stuðla megi finna með tiltölulega ein- földum aðferðum, en jafnframt, að stuðlarn- ir séu óöruggir. Ætla má, að fyrir mjólkurskeiðsnyt megi einnig fá öruggari leiðréttingarstuðla fyrir aldursáhrifum, þar sem hið innibyggða samband milli aldurs og burðartíma á árs- afurðum væri rofið. Sá þáttur, sem ætla má, að þarfnist mestra rannsókna, áður en unnt er að leggja mjólk- urskeiðsnyt til grundvallar við afkvæmadóm, er að finna, hver sé heppilegasti samanburð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Íslenskar landbúnaðarrannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskar landbúnaðarrannsóknir
https://timarit.is/publication/1499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.