Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Blaðsíða 134
132 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
NÆRINGARÞÖRF TIL VAXTAR
Vaxtarauki lamba verður fítu- og orku-
auðugri, því eldri sem lömbin verða.
Orkuþörfin í hvert kg vaxtarauka eykst
því með aldrinum og er einnig meiri hjá
feitum lömbum en mögrum.
3. TAFLA.
Næringarþörf lamba til vaxtar (Breirem, 1947).
TABLE 3.
The feed. requirements of lambs for growth
(Breirem, 1947).
Aldur (mán.) Age of lambs (months) FE/kg vaxtarauka Feed units/kg growth
1 1.4
2 1.5
3 1.8
4 2.1
5 2.5
6 2.9
7 3.3
8 3.4
9-12 3.5
Nú er oftast gert ráð fyrir, að fullvaxið fé
þurfi 4 FE fyrir hvert kíló, sem það
þyngist.
Þegar reikna á átmagn á beitilandi hjá
lömbum, sem ganga undir mæðrum
sínum, er ekki unnt að nota ofannefndar
tölur beint, vegna þess að fóðrið, sem fer til
mjólkurmyndunar, nýtist ekki að fullu.
Breirem (1947) gerir ráð fyrir, að orkan,
sem nýtist til mjólkurmyndunar, gefi
25—30% minni orku til lambanna en sú
orka, sem lömbin taka sjálf beint í fóðri.
Með tilliti iil þessa gerði Breirem tillögu
um, að um 2 FE þurfi fyrir hvert kg þyngd-
arauka hjá lömbum fram til 5 mánaða
aldurs.
Innlendar rannsóknir (GUNNAR Ólafs-
son, 1973) sýna, að próteínmagn í ís-
lenzkum beitargróðri er nægilegt til vaxtar
og viðhalds sauðfé um sumarmánuðina.
Að vetrarlagi er það aftur á móti svo lítið,
að það nægir jafnvel ekki til viðhalds.
Hér á eftir eru sýnd fjögur dæmi um
útreikninga á mismunandi fæðuþörfsauð-
fjár á beit eftir þyngd og þyngdaraukningu
ærinnar, frjósemi, þyngdaraukningu lamb-
anna og lengd beitartímans.
1. dæmi:
Forsendur:
90 beitardagar.
Ærin vegur 50 kg við upphaf beitartíma og
þyngist um 10 kg. Lambafjöldi 130 eftir
100 ær. Lömbin vega 10 kg í upphafi og
þyngjast um 25 kg á beitartímanum.
Ær:
Viðhaldsfóður: 0.57 FE X 90 = 51.3 FE
Til þyngingar: 4.0 FE x 10 = 40.0 FE
Lömb:
Viðhaldsfóður:
Til þyngingar:
91.3 FE
0.35FE X 90 = 31.5 FE
2.0 FE x 25 = 50.0 FE
81.5 FE
Heildarnæringarþörf fyrir 1.3 lömb/
á = 81.5 X 1.3 = 106.0 FE
Heildarnæringarþörf fyrir á með 1.3
lömb = 197.3 FE., 2.19 FE./dag.
2. dæmi:
Forsendur:
70 beitardagar.
Ærin vegur 50 kg við upphaf beitartímans
og þyngist um 8 kg. Lambafjöldi 130 eftir
100 ær. Lömbin vega 10 kg í upphafi og
þyngjast um 20 kg á beitartímanum.
Ær:
Viðhaldsfóður: 0.57 FE X 70 = 39.9 FE
Til þyngingar: 4.0 FE X 8 = 31.0FE
71.9 FE