Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1980, Blaðsíða 137
ÍSL. LANDBÚN.
j. agr. res. icel. 1980 12,2: 135-138
Mælingar og útreikningar af gróðurkortum
Bjarni Gunnarsson
Verkfrœðistofan Hnit h/f
Reykjavík.
Lokaþáttur í ákvörðun á beitarþoli er
mælingar á flatarmáli af gróðurkortunum.
Þessar mælingar eru nú gerðar með
tölvutengdum flatarmálsmæli, - hnitara
(digitizer).
Þessi tækni er tiltölulega nýkomin til
sögu, og hún hefur m. a. þann kost um-
fram eldri aðferðir, að jafnharðan má leið-
rétta það, sem með þarf. Þannig er flatar-
mál leiðrétt fyrir halla og gróðurlendi um-
reiknað til 100% þekju. Þá má tengja út-
komur flatarmálsmælinganna tölulegum
upplýsingum um uppskeru og nýtanlega
uppskeru hvers gróðurhverfis á ha. og
einnig ræktunarhæfni lands á byggða-
kortunum. Tölvuútskrift veitir eftirfar-
andi vitneskju: gróðurfélög, leiðrétt flat-
armál hvers þeirra, gróðurþekju um-
reiknaða í 100%, heildaruppskeru og nýt-
anlega uppskeru og þar með beitarþol. A
byggðakortum er einnig reiknað út
flatarmál ræktanlegs lands og lands, sem
er svo grýtt, að torvelt eða ókleift er að
rækta það. Mælingarnar eru gerðar eftir
hæðarbeltum með 200 m hæðarmun:
0-200 m, 200-400 m o. s. frv.
Forrit að þessum útreikningum var
unnið á verkfræðiskrifstofunni Hniti h/f,
sem einnig gerir mælingarnar af kortun-
um. Tækjabúnaður er sýndur á myndum
x-y, og lýsing á aðferðinni fer hér á eftir.
Þessi lýsing á flatarmálsmælingum af
gróðurkortum skiptist í eftirfararídi kafla:
I. tölvuútbúnað,
II. geymd gögn,
III. gerð flatarmálsmælinga,
IV. um niðurstöður.
I. Tölvubúnaðurinn, sem notaður er við
flatarmálsmælingar af gróðurkortunum,
er eftirfarandi:
1. tölva, ásamt tölvuskjá (Nova 3 frá
DATA GENERAL, 24 K-orð),
2. tölvustýrt teikniborð,
3. hnitari, sem er í aðalatriðum eftir-
farandi einingar:
1) sjónvarpsupptökuvél og skjár til að
stækka hluta af kortinu 5 til 18
sinnum,
2) stjórnborð (stýripinni og talna-
borð) til að færa teiknihausinn, þ. e.
sjónvarpsupptökuvélina, eftir lok-
uðu ferlunum, þ. e. markalínum
reita, sem sjást stækkaðir á skjánum
(innstillingarnákvæmni hnitarans
er V199 mm),
4. tölvuprentari, sem er notaður við
prentun niðurstaðna flatarmálsmæl-
inganna (töflur).