Bændablaðið - 08.10.2020, Síða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 20208
FRÉTTIR
Ullin nýtist í fjölbreytta
hönnun og handverk
Í Hönnunarsafni Íslands á
Garðatorgi í Garðabæ stendur
nú yfir sýningin 100% ull þar sem
þátttakendur koma frá ólíkum
sviðum hönnunar og handverks.
Sýnendurnir eiga það sameigin-
legt að vinna af hugvitssemi með
íslensku ullina í sínum afurðum.
Sýningin stendur til 15. nóvem
ber þar sem hægt er að sjá vörur
úr íslenskri ull, hinu klassíska og
náttúrulega efni sem býður upp á
marga möguleika. Sýnendur eru
Ásthildur Magnúsdóttir vefari,
Magnea Einarsdóttir fatahönnuður,
verslunin Kormákur & Skjöldur,
fyrirtækið Kula by Bryndís, sem
sérhæfir sig í hljóðvistarlausnum,
samstarfsverkefnið Ró
ásamt ullarvinnslu
fyrirtækinu Ístex.
Sýningarstjórar eru
Birgir Örn Jónsson og
Signý Þórhallsdóttir.
Ullin mikilvægur
gjaldmiðill
Í kynningu frá Hönnunar
safni Íslands segir eft
irfarandi: Ullarvinnsla
hefur löngum verið
samofin handverks og
iðnaðarsögu þjóðar
innar. Í dag telur íslenski
sauðfjárstofninn hálfa
milljón kindur. Um 750
tonn af ull eru nýtt í ullar
framleiðslu á hverju ári.
Ullarvörur voru um langt
skeið ein helsta útflutn
ingsvara Íslendinga og á miðöldum
var vaðmál, sem ofið var úr ull og
mælt í álnum, mikilvægur gjald
miðill. Enn í dag er talað um að
komast í álnir í þeirri merkingu að
verða efnaður.
Vinnsla á ull fór fram á heimil
um samhliða bústörfum til loka 19.
aldar þegar hún færðist yfir í vél
væddar
verk smiðjur. Á 20. öld var blómleg
framleiðsla á fatnaði og vefnað
arvöru á Íslandi. Með breyttri
heimsmynd færðist slík fram
leiðsla til annarra heimshluta
þar sem framleiðslukostnaður er
lægri. Í dag sér fyrirtækið Ístex
um að þvo, meðhöndla og spinna
um 99% af allri íslenskri ull en
minni og sérhæfðari ullarvinnslur
eins og Uppspuni og Þingborg hafa
skotið upp kollinum á seinni árum.
/ehg
Fire blight leggst á plöntur af rósaætt og getur leikið þær mjög illa.
MAST rannsakar plöntusjúkdóma:
Ólíklega eldibrandur
Í sumar kom upp sjúkdómur í
plöntum sem mögulega var talinn
vera það sem kallast Fire blight,
eða eldibrandur, eins og sjúk-
dómurinn var kallaður. Niðurstaða
rannsókn Mast sýna að líklega er
ekki um þann sjúkdóm að ræða
þrátt fyrir að hann finnist víða í
nágrannalöndum okkar.
Brynjar Rafn Ómarsson, fag
sviðsstjóri eftirlits með plöntuheil
brigði, segir að eftir að umræða
um sjúkdóminn kom upp hafi
Matvælastofnun tekið svoköll
uð hrað eð strimlapróf af sýktum
sýnum í Reykjavík, austur á Selfoss
og upp í Borgarnes, sem er svæði
sem þeir fengu tilkynningar um að
smit gæti verið að finna. „Strimlapróf
að þessu tagi eru mjög sértæk og öll
sýnin 22 sem við tókum reyndust
vera neikvæð hvað varðar þennan
ákveðna sjúkdóm og því líklegt að
ekki sé um Fire blight að ræða.“
Sýni verða send til Noregs
Þar sem strimlapróf eins og Mast not
aði skimar eingöngu fyrir ákveðnum
sjúkdómum er ekki útilokað að um
annan sjúkdóm en eldibrand sé að
ræða.
Að söng Brynjars gefur augaleið
að það er eitthvað að hrjá plönturnar
þótt það sé ekki akkúrat Fire blight.
„Hugmyndir er að senda sýni til
nákvæmrar greiningar til Noregs
næsta vor. Ástæðan fyrir því að það
er ekki gert í ár er að það var tals
vert liðið á sumarið og því fylgir
skriffinnska að fá leyfi til að senda
sýkta plöntuhluta til greininga milli
landa og það ferli tekur nokkrar
vikur. Það skekkti tímarammann og
sú greining ekki orðið nógu mark
viss. Við ákváðum því að hafa vaðið
fyrir neðan okkur og sækja um leyf
ið tímanlega og senda sýnin út til
greiningar næsta vor eða snemma
næsta sumar.“
Ekki í viðauka reglugerða um
innflutning plantna
„Fire blight er ekki, frekar en ýmsir
aðrir plöntusjúkdómar, sérstaklega
tilgreindur á Íslandi sem vandamál
og ekki í viðauka við reglugerð
um innflutning á plöntum. Hann er
það í nágrannalöndum okkar og á
varúðarlista EPPO, European and
Mediterranean Plant Protection
Organization, sem fylgist með
plöntuheilbrigði og útbreiðslu
plöntusjúkdóma í Evrópu og full
ástæða til að hafa auga með honum.“
/VH
Brynjar Rafn Ómarsson, fagsviðs-
stjóri eftirlits með plöntuheilbrigði. Herrafataverslun Kormáks og Skjald-ar fékk árið 2018 fatahönnuðinn Gunnar Hilmarsson til liðs við sig til að framleiða vaðmál úr íslenskri ull.
Á sýningunni 100% ull er efniv
iðurinn sýndur
í ýmsum litum og útfærslum.
Þóra Sigurbjörnsdóttir,
sérfræðingur hjá
Hönnunarsafni Íslands,
var að undirbúa komu
nemenda af miðstigi í
grunnskóla í Garðabæ
sem vefja ullarbandi um
greinar sem safnað er
saman á sýningunni.
Samkomutakmarkanir vegna COVID-19 hafa áhrif á handverkssýningu í Eyjafirði:
Sýningu í Hlíðarbæ breytt í minni
sýningar og netverslun
„Stemningin á þeim viðburðum
sem við höfum haldið í Hlíðarbæ í
Eyjafirði hefur verið virkilega góð.
Þetta hafa verið mjög fallegar sýn-
ingar og handverkið og vörurnar
fengið að njóta sín. Hlíðarbær er
mátulega stórt hús og það mynd-
ast þarna mjög jákvætt, hlýtt
og notalegt andrúmloft,“ segir
Sigrún Björg Aradóttir, sem ásamt
Kristínu B. Bjarnadóttur stendur í
brúnni í félagsskapnum Norðlensk
hönnun og handverk.
Þær hafa staðið fyrir sýningum
þar sem saman koma hönnuðir, hand
verksfólk og matargerðarfólk.
Sýningin í Hlíðarbæ breytist í
minni sýningar og netverslun
Til stóð að halda sýningu 16 smáfyr
irtækja í Hlíðarbæ nú um komandi
helgi en vegna hertra samkomutak
markana í upphafi vikunnar varð
kúvending þar á.
„Við vorum undirbúnar fyrir
allt sem gat gerst, nema bara ekki
20 manna samkomuhámark, það
ráðum við ekki við,“ segir Kristín
og bætir við að sem betur fer sé
hönnunar og handverksfólk svo
skapandi og fljótt að hugsa. Nú
þegar hafi orðið til minni viðburðir
í stað Hlíðarbæjarsýningarinnar, auk
þess sem boðið verður upp á vörur
sýnenda í netverslunum sem finna má
á heimasíðu Norðlenskrar hönnunar
og handverks. Sýningin í Hlíðarbæ
átti að verða þriðja sýningin af þessu
tagi sem þær stöllur setja sameig
inlega upp, en tvær sýningar voru
haldnar á liðnu ári og tókust einstak
lega vel að sögn Sigrúnar. Í kjölfar
ið bárust fyrirspurnir frá fólki sem
vildi gjarnan taka þátt enda mikil
gróska í hönnun og handverki hér á
Norðurlandi og það hefur myndast
skemmtilegt og hvetjandi andrúms
loft á milli sýnenda og gesta. Allir
hjálpast að, nýjar hugmyndir verða
til og tengslanetið styrkist.
„Stefnan hjá okkur er fyrst og
fremst að gefa listafólki og frum
kvöðlum á þessu sviði tækifæri á að
kynna sig, stækka og eflast,“ segir
hún.
Nokkrir sýnendur sem ætluðu að
vera í Hlíðarbæ standa fyrir opnum
húsum og taka á móti fólki undir
ströngum viðmiðum sóttvarna á
nokkrum stöðum um næstu helgi.
Bryndís Fanný Halldórsdóttir hjá
Línuland og Sigrún Björg Aradóttir
hjá Agndofa hönnunarhús verða
í Njarðarnesi 2 á Akureyri. Opið
verður í Sigluvík á Svalbarðaströnd
í samvinnu við Flóamarkaðinn og
Gistiheimilið í Sigluvík en þar verða
þær Guðríður Baldvinsdóttir með
Mórúnir – jurtalitun og handverk,
Hulda Ólafsdóttir með Hjartalag,
Kristín S. Bjarnadóttir með Blúndur
og blóm og Ragna Erlingsdóttir með
Rrabarbara.
Einnig bjóða þó nokkrir sýnenda
fólki upp á að nálgast vörur í gegn
um netverslun en nánari upplýsingar
má finna á vef eða Facebooksíðum
norðlenskrar hönnunar. /MÞÞ
Kristín S. Bjarnadóttir hjá Blúndum og blómum sem ásamt Sigrúnu Björgu
Aradóttur hjá Agndofa hönnunarhúsi hugðust efna til sýningar í Hlíðarbæ
um helgina. Vegna hertra samkomutakmarkana leita þær annarra leiða.