Bændablaðið - 08.10.2020, Qupperneq 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202018
FRÉTTIR
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur af stað verkefnastjórn við mótun landbúnaðarstefnu fyrir Ísland:
Tillaga á að liggja fyrir í lok mars 2021
Í september var kynnt skipan
Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
í verkefnisstjórn um landbúnað-
arstefnu fyrir Ísland. Gert er ráð
fyrir að tillaga að landbúnaðar-
stefnu fyrir Ísland muni liggja
fyrir þann 31. mars 2021.
Vakti nokkra athygli að í verkefn-
isstjórninni sitji ekki í forsæti sér-
fræðingar úr landbúnaðargeiranum
heldur Björn Bjarnason, fyrrver-
andi ráðherra og þingmaður, ásamt
Hlédísi Sveinsdóttur, ráðgjafa og
verkefnastjóra.
Byggt á greiningarskýrslu KPMG
um framtíð landbúnaðar
Ýmsir hafa gagnrýnt í gegnum tíð-
ina að ekki skuli vera ný fastmótuð
stefna um íslenskan landbúnað sem
taki meira mið af nútímanum en það
sem felst í lögum um stuðning við
landbúnað og í búvörusamningum.
Í tengslum við vinnu samráðshóps
um endurskoðun búvörusamninga
lét ráðherra KPMG vinna sviðs-
myndagreiningu um framtíð land-
búnaðarins til ársins 2040. Þar er
miðað við tölur um stöðu landbún-
aðar fram til 2018. Í framhaldinu var
talið nauðsynlegt að móta heildstæða
stefnu greinarinnar, landbúnaðar-
stefnu fyrir Ísland. Á grunni þessa
ákvað ráðherra að setja vinnu við
mótun stefnunnar formlega af stað.
„Metnaðarfull vinna sem hefur
skapað grundvöll fyrir því að
móta landbúnaðarstefnu“
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra segir um til-
urð þessarar nýju verkefnisstjórnar
að á undanförnum misserum hafi
átt sér stað metnaðarfull vinna sem
hefur skapað grundvöll fyrir því að
móta landbúnaðarstefnu fyrir Ísland,
m.a. með sviðsmyndagreiningu
KPMG um framtíð landbúnaðarins
árið 2040.
„Af þeirri greiningu er ljóst að
íslenskur landbúnaður stendur að
mörgu leyti á krossgötum. Því er ég
sannfærður um nú sé rétti tíminn til
að fara í þessa vinnu og skapa sam-
eiginlega sýn og áherslur til framtíð-
ar. Móta það hvernig við ætlum að
takast á við það verkefni að Ísland
verði leiðandi í framleiðslu á heil-
næmum landbúnaðarafurðum, en á
sama tíma horfa til þess að íslenskur
landbúnaður er ekki aðeins fram-
leiðsluferill á matvælum heldur hvílir
greinin á breiðari grunni. Það er því
allra hagur að við förum í þá vinnu að
móta landbúnaðarstefnu fyrir Ísland:
bændur, neytendur, smásöluaðila,
framleiðendur og stjórnvöld,“ segir
Kristján Þór.
Ekki fyrsta
sviðsmyndaframsetningin
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
reynt er að búa til sviðsmyndir um
mögulega þróun byggðar og þar með
landbúnaðarmála á Íslandi. Þar hafa
vaknað spurningar um hversu mikið
sé á slíkri sviðsmyndaaðferðafræði
byggjandi varðandi stefnumótun.
Eins hversu miklum opinberum fjár-
munum stjórnvöld eru tilbúin að eyða
í spunavinnu af þeim toga.
Skýrslan „Sveitalíf 2025“ er
ágætt dæmi um það, en hún var
byggð á sviðsmyndaspuna um mögu-
lega framtíð, en að auki ræðum og
skýrslum allt frá 1976 til 2006.
Grunnurinn að henni er vinna
sem Guðni Ágústsson, þáverandi
landbúnaðarráðherra (1999–2007),
lét hefja, en stöðvaði síðan útgáfu á
vegna mikillar óánægju ráðherrans
með vinnubrögð. Eigi að síður var
lokið við að setja saman þessa skýrslu
í febrúar 2007 og hefur Bændablaðið
fengið af henni afrit. Sterk tengsl
eru við framkvæmd þeirrar
skýrslu og vinnu við nýju
skýrslu KPMG þar sem ver-
kefnastjórinn er sá sami.
Hefðbundin innlend
landbúnaðarframleiðsla
sé að mestu horfin?
Á köflum eru sviðsmyndir
í skýrslunni frá 2007 afar
sérstök lesning og skrifaðar
í stíl við vísindaskáldsögu
eða völvuspá þar sem
sögumaður lýsir á ýktan
hátt orðnum hlutum langt
inni í framtíðinni. Þar fer
sögumaður oft á kostum en
sýn hans hefur þó á köflum
reynst afar fjarri þeim
veruleika sem Íslendingar
hafa síðan upplifað. Ekki
er þar öll framtíðarsýn
í sviðsmyndaframsetn-
ingunni sérlega upp-
byggileg og kannski ekki skrítið að
þáverandi landbúnaðarráðherra hafi
verið brugðið. Enda er sviðsmyndin í
raun byggð á fjórum sögum þar sem
í einni sögunni er m.a. lýst áhrifum
þess að opnað hafi verið fyrir óheftan
innflutning matvæla og hefðbundin
innlend landbúnaðarframleiðsla sé að
mestu horfin. Þá segir á einum stað:
„Bændum hefur fækkað verulega
og meginhluti þeirra eru leigutakar
á jörðum og stunda þeir búskap í
hjáverkum með öðrum störfum eða
starfa sem landbúnaðarverkamenn á
verksmiðjubúum sem reist hafa verið
í kjölfar samþjöppunar. Talað er um
þessi verksmiðjubú sem minni mest
á lítil iðnaðarhverfi og stingi í stúf
við umhverfið. Í tengslum við þessa
þróun hefur afurðastöðvum fækkað
og ein afurðastöð starfrækt í landinu
árið 2025.“
Aðild að ESB og kúabúum
fækkar í 20
Í sviðsmynd fyrir 2011 er sagt að
Ísland hafi sótt um aðild að ESB og
hafi verið tekið inn í bandalagið ári
síðar. Þar með hafi verið heimilaður
kvótalaus influtningur á öllum land-
búnaðarafurðum frá ESB-löndunum.
Þá hafi evra verið tekin upp 2012.
Síðan segir:
„Undir lok árs 2025 eru fyrirtæki
í mjólkurframleiðlsu orðin 20 og
eru þau mynduð af klösum mjólk-
urbænda. Fjárbændur eru orðnir 100
á sama tíma og hafa meðalbú stækk-
að verulega og eru nú að jafnaði um
3.000 ærgildi hvert um sig.“
Þá má líka sjá lýsingu á því
að álver hafi verið tekið í notkun
í Skagafirði árið 2017 og í kjölfar
þess hafi verið ráðist í gerð jarð-
ganga undir Öxnadalsheiði. Að
jarðgöng undir Hellisheiði hafi
verið opnuð 2018 og að jarðgöng
til Vestmannaeyja hafi verið opnuð
2024. Um atvinnuhætti í dreifbýli
segir í þeirri skýrslu m.a.:
„Nokkur uppstokkun varð
í stjórnsýslunni eftir alþingis-
kosning arnar 2013. Stofnað var eitt
atvinnuvegaráðuneyti
sem sameinaði verkefni þriggja
ráðuneyta undir einn hatt. Í kjöl-
far þess dró úr vægi hefðbundins
landbúnaðar í atvinnustefnu stjórn-
valda. Þetta leiddi meðal annars til
þess að dregið var úr framlögum til
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
og árið 2016 var skólinn seldur
Háskólanum á Bifröst.“
Þar segir einnig að árið áður,
eða 2015, hafi Hólaskóli breytt
um nafn og sé orðin sérhæfður í
náttúrutengdri ferðamennsku. Um
ferðamennsku er sagt að árið 2021
hafi ferðamenn til landsins í fyrsta
og eina skiptið farið yfir milljón,
en farið hafi að bera á neikvæðri
ímynd Íslands á alþjóðavettvangi
árið 2020. Því hafi ferðamönnum
farið að fækka eftir 2021.
Ísland skuli vera leiðandi í
framleiðslu á heilnæmum
landbúnaðarafurðum
Í nýju skýrslu KPMG er lagt upp
með jákvæða stefnumótun, en byggt
á sömu aðferðafræði og áður. Þar
segir m.a. að í stjórnarsáttmála rík-
isstjórnarinnar komi fram að Ísland
skuli vera leiðandi í framleiðslu á
heilnæmum landbúnaðarafurðum.
Þá skuli leggja áherslu á nýsköpun,
vöruþróun, verðmætasköpun, sjálf-
bærni og að velferð búfjárstofna sé
tryggð. Einnig á að stuðla að nátt-
úruvernd og nýjum áherslum í rann-
sóknum og menntun.
Sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra skipaði samráðshóp um
endurskoðun búvörusamninga þann
7. febrúar 2018 í þeim tilgangi að
taka til skoðunar þessi sjónarmið
stjórnvalda og horfa til framtíðar
í málefnum landbúnaðar. Notuð
var sviðsmyndagreining til þess
að skoða mögulegt starfsumhverfi
íslensks landbúnaðar til ársins 2040.
Gerð sviðsmynda hófst á sumar-
mánuðum 2018 og fól í sér breiða
aðkomu aðila úr landbúnaði og
frá neytendum. Samráðshópur um
búvörusamninga var skipaður á eftir
farandi hátt:
Haraldur Benediktsson
og Bryn hildur Pétursdóttir
formenn. Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson og Elín
Heiða Valsdóttir frá Bænda-
samtökum Íslands. Halldór
Árna son frá SA, Jóhanna
Hreinsdóttir frá Samtökum
afurðastöðva, Hafdís Hanna
Ægis dóttir tilnefnd af
umhverfisráðherra, Þórlindur
Kjartansson tilnefndur af land-
búnaðarráðherra.
Með hópnum starfaði
Rebekka Hilmarsdóttir til
hausts 2018 og síðar Ása
Þórhildur Þórðardóttir. Sér-
fræðingar af ráðgjafarsviði
KPMG voru fengnir til þess
að sjá um faglega framkvæmd
verkefnisins undir stjórn Sævars
Kristinssonar. Vinnuferlið fól í
sér gagnaöflun með viðtölum,
netkönnun, opnum fundum á
sex landsvæðum og greiningu
á opinberum gögnum. Haldnar voru
vinnustofur þar sem grunngerð
sviðsmynda um framtíð landbún-
aðar var mótuð og í kjölfarið hófst
úrvinnsla og samantekt niðurstaðna.
Alls tóku um 400 einstaklingar þátt
í verkefninu.
Samvinnuverkefni bænda,
neytenda og atvinnulífs
Með verkefnisstjórninni sem
Kristján Þór skipaði starfa Bryndís
Eiríksdóttir, sérfræðingur í atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu,
og Sigurgeir Þorgeirsson, fyrrver-
andi ráðuneytisstjóri, sem þekkir
mjög vel til landbúnaðarmála. Ekki
eru tilgreindir neinir sérfræðingar
úr landbúnaðargeiranum eða full-
trúar Bændasamtaka Íslands, en
samt tekið fram að mótun landbún-
aðarstefnu sé samvinnuverkefni
stjórnvalda, bænda, neytenda og
atvinnulífs.
Efnt til funda með bændum
og öðrum hagaðilum
Verkefnisstjórn mun efna til funda
með bændum og öðrum hagaðilum
í því skyni að virkja þá til þátttöku
í stefnumótuninni, að því er fram
kemur í tilkynningu ráðuneytis-
ins. Fyrir milligöngu ráðuneytisins
verður stofnað til samráðs við þing-
flokka. Samráð verður haft við full-
trúa Bændasamtaka Íslands, Samtaka
atvinnulífsins, Neytendasamtakanna
og Alþýðusambands Íslands og þeim
gefinn kostur á að fylgjast með fram-
vindu verksins á vinnslustigi.
Samkvæmt skipunarbréfi ver-
kefnisstjórnarinnar skal við mótun
landbúnaðarstefnu litið til eftirfarandi
meginþátta:
Með öflugum landbúnaði verði
Ísland leiðandi í framleiðslu á heil-
næmum landbúnaðarafurðum – sér-
staklega verði hugað að fæðu- og
matvælaöryggi og samkeppnishæfum
rekstrarskilyrðum í sátt við umhverfi
og samfélag.
Byggðafesta verði tryggð
Tryggð verði byggðafesta með nýt-
ingu tækifæra í krafti nýsköpunar og
vöruþróunar sem taki mið af grænum
lausnum, matarmenningu og sjálf-
bærni.
Menntun, rannsóknir og þróun
mótist af hæfilegri samþættingu
fræðilegra viðfangsefna og ráðgjafar
í þágu þeirra sem stunda landbúnað
og vinnslu landbúnaðarafurða.
Með hvötum og stuðningi verði
dregið úr umhverfisáhrifum og stuðl-
að að verndun, endurheimt og nýtingu
landvistkerfa í samræmi við heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun frá árinu 2016.
Tilllaga liggi fyrir í marslok 2021
Gert er ráð fyrir að tillaga að land-
búnaðarstefnu fyrir Ísland muni liggja
fyrir þann 31. mars 2021.
Skýrsla KPMG heitir „Íslenskur
landbúnaður 2040 – sviðsmyndir
um mögulega framtíð landbúnaðar
á Íslandi“. Þar eru settar fram fjór-
ar sviðsmyndir, eða eins og segir í
skýrslunni:
„Þær draga fram óvissuna í þeim
drifkröftum sem taldir eru hafa mest
áhrif hverju sinni. Virði sviðsmynd-
anna felst í að þær birta ólík sjón-
arhorn sem geta verið andstæð óskum
okkar og skoðunum, en einmitt þannig
örva þær umræður og vonandi aðgerð-
ir.“ Þá segir að lykilspurningin sem
unnið var með hafi verið:
„Hver verður framtíð íslensks
landbúnaðar árið 2040?“
Til að nálgast svar við þessari
spurningu voru rýndir ýmsir óvissir
drifkraftar en að lokum staldrað við
tvo. Það varðar annars vegar viðhorf
neytenda og hvort kauphegðun byggi
á verði eða gæðum landbúnaðar-
afurða. Hins vegar var það mismun-
andi aðkoma stjórnvalda að íslenskum
landbúnaði.
Opinn markaður, Beint frá býli,
Stöðnun og Gróska
Sviðsmyndunum var gefið nafn í takt
við þá þróun á hverju sviði. Ein sviðs-
myndin heitir „Opinn markaður“.
Um hann segir í skýrslunni:
„Starfsumhverfið einkennist
af mikilli samkeppni í landbúnaði
innan lands og erlendis frá og hörð
verð samkeppni knýr framleiðendur
til að auka skilvirkni. Ísland er opinn
markaður á grundvelli tollfrelsissamn-
inga á landbúnaðarvörum víða um
heim. Bændum hefur fækkað í flest-
um greinum landbúnaðar en bú hafa
samhliða stækkað.
Önnur sviðsmynd er nefnd „Beint
frá býli“ en um hana er sagt:
„Smáir og stórir framleiðendur
í landbúnaði þrífast vel. Samband
neytenda og framleiðenda er sterkt
og verslun beint frá býli er algeng í
nærsamfélaginu. Íslenskir bændur eru
lífsstíls- og ástríðubændur sem fram-
leiða hágæða afurðir og neytendur eru
tilbúnir að greiða verð í samræmi við
gæði vörunnar.“
Þriðja sviðsmyndin heitir
„Stöðnun“ en þar segir:
„Aðgerðir stjórnvalda felast í
niðurgreiðslum landbúnaðarvara til
þess að mæta kröfum neytenda um
lágt verð á matvælum. Óveruleg
breyting hefur átt sér stað í stærð búa.“
Fjórða sviðsmyndin er kölluð
„Gróska“ en um hana er sagt í skýrslu
KPMG:
„Mikil fjölgun og endurnýjun í
bændastéttinni hefur átt sér stað. Fólk
án bakgrunns í landbúnaði laðast að
sveitinni og getur fengið styrki til þess
að kaupa jarðir og hefja búskap eftir
eigin höfði. Meðalstór bú og smábú
þrífast vel þar sem hreinleiki landbún-
aðar og rekjanleiki afurða byggir undir
traust neytenda til framleiðenda.“
/HKr.
Kristján Þór Júlíusson.