Bændablaðið - 08.10.2020, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 2020 35
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Hlutverk markaðsstofunnar
Icelandic Lamb breyttist í septem-
ber þegar heimild til markaðssetn-
ingar til íslenskra neytenda fékkst
með nýsamþykktum viðauka við
samning Markaðsráðs Kindakjöts
og Atvinnuvegaráðuneytisins
um Aukið virði sauðfjárafurða.
Samkvæmt viðaukanum verð-
ur markaðsstofunni heimilt að
vinna að kynningar- og ímyndar-
málum fyrir sauðfjárrækt undir
formerkjum Icelandic Lamb á
innanlandsmarkaði og unnið að
frekari auðkenningu matvæla úr
sauð fjárafurðum.
Undirbúningur er komin langt
á veg og munu íslenskir neytendur
sjá og heyra fyrstu auglýsingarnar
síðar í haust en sérstök áhersla verð-
ur lögð á viðurkenningu og verndun
sérstöðu íslensks lambakjöts.
Horft til áhuga neytenda á
upprunavottunum
Við undirbúning ímyndaherferðar
til íslenskra neytenda var horft sér-
staklega til niðurstaðna kannana
sem framkvæmdar voru af Maskínu
fyrir Icelandic Lamb fyrr á þessu
ári. Kannað var viðhorf neytenda til
upprunamerkinga á kjötvöru og áhrif
afnáms frystiskyldu á kauphegðun
þeirra. Niðurstöður sýna að áhugi
Íslendinga á upprunamerkingum fer
vaxandi en 89,1% svarenda sögðu
upprunamerkingar á matvöru skipta
sig máli. Íslenskt lambakjöt er fyrsta
og eina íslenska matvaran sem hefur
fengið verndun á afurðaheiti sínu
hérlendis. Icelandic Lamb tók mik-
ilvægt skref í september þegar um-
sókn um „Protected Designation Of
Origin“ upprunavottun fyrir íslenskt
lambakjöt var send til umsagnar hjá
ESB.
Neytendur kjósa
íslenskar matvörur
Nú sem fyrr er mikilvægt að tryggja
íslenskum neytendum auðskiljan-
legar upprunavottanir á íslenskar
kjötvörur. Niðurstöður fyrrnefndrar
könnunar Maskínu á viðhorfi neyt-
enda til innflutts kjöts sýnir að
neytendur séu líklegri til þess að
velja íslenskt lambakjöt fram yfir
innflutt, eða 84,5% svarenda. Til
þess að meta möguleg áhrif verð-
hækkunar á íslensku lambakjöti
kannaði Icelandic Lamb hvort
svarendur væru líklegri til þess að
kaupa innflutt lambakjöt ef það
væri ódýrara en íslenskt. 74,2%
svarenda sögðust frekar kaupa
íslenskt lambakjöt þrátt fyrir til-
komu ódýrari staðgönguvöru en
einungis 12,9% sögðu frekar velja
ódýrara innflutt lambakjöt. Svörin
eru skýr og sýna svart á hvítu vilja
Íslendinga til þess að styðja við
íslenska framleiðslu og að skýrar
upprunamerkingar matvæla séu
þarfar og löngu tímabærar til að
aðgreina íslenskar matvörur frá
vaxandi erlendri samkeppni.
Starfsmenn Icelandic Lamb
horfa bjartsýnir til framtíðar og
hlakka til að takast á við nýjar
áskoranir á innanlandsmarkaði.
Hafliði Halldórsson
Framkvæmdastjóri
Icelandic Lamb
Ríkiskaup kynna eignina Hof 3 í Skagafirði.
Húsakostur, samtals fimm matshlutar, á sér
3,9 ha leigulóð til 50 ára.
Íbúðarhús er byggt árið 1939 og viðbygging
frá 1961, alls um 199,8 m2. Neðri hæð er 114,4
m2 og herbergi í risi eru 51,4 m2 skv. mati.
Íbúð ar húsið þarfnast mikils viðhalds, sér
staklega þak, sökklar, gólf o.fl.
Útihús: Fjárhús 120,3 m2, votheysturn 9,1 m2,
hlaða 49,9 m2 og geymsla 27,4 m2. Fjárhús
voru hlaðin 1954 fyrir 120 kindur. Útihúsin eru
illa farin.
Eignin er fallega staðsett í Hjaltadal í Skaga
firði rétt innan við Hóla og í um 30 km aksturs
leið austan við Sauðárkrók og um 30 km
sunn an við Hofsós.
Allur húsakostur þarfnast viðhalds og endur
bóta, íbúðarhúsið er sæmilegt en önnur hús
léleg eða ónýt.
Húsin eru í útleigu með 6 mánaða uppsagnar
fresti og gert er ráð fyrir að kaupandinn yfir
taki leigusamninginn.
Frekari upplýsingar um eignina má finna á
heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Verð: 14,9 mkr.
Um er að ræða 629,4 m2 skrifstofuhúsnæði á
1. hæð við Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Eignin skiptist í tvö skrifstofurými, annars
vegar 361,8 m2 og hins vegar 267,6 m2.
Samtals 629,4 m2. Gengið er inn um bjarta
tengibyggingu sem er í sameign.
Gott aðgengi er að húsinu og rúmgóð steypt
bílastæði fylgja en stæðin eru ekki sérmerkt.
Frekari upplýsingar um eignina má finna á
heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Lækkað verð: 88,5 mkr.
Urðarvegur 20, 400 Ísafirði, ásamt öllu því sem
eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar
og sameignarréttindi. Birt stærð 236,9 m2.
Stórt og rúmgott raðhús á tveimur hæðum
með innbyggðum bílskúr og fallegu útsýni.
Frekari upplýsingar um eignina má finna á
heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Verð: 44,9 mkr.
Urðarvegur 34, 400 Ísafirði, ásamt öllu því sem
eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar
og sameignarréttindi. Birt stærð er 240.2 m2.
Stórt og rúmgott endaraðhús á tveimur hæðum
á fallegum útsýnisstað.
Frekari upplýsingar um eignina má finna á
heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Verð: 42,9 mkr.
Bjarnarbraut 8, Borgarnesi
- SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI -
Urðarvegur 20, 400 ÍsafirðiHof, Skagafirði, 551 Sauðárkróki
Urðarvegur 34, 400 Ísafirði
Finna má upplýsingar um eignirnar inn á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGNIR TIL SÖLU
© Vemaps.com© Vemaps.com
© Vemaps.com
© Vemaps.com
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn Ríkiskaupa
í síma 530 1400 eða í
gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
ICELANDIC LAMB
Icelandic Lamb:
Markaðssetur lambakjöt
á innanlandsmarkaði
Hafliði Halldórsson.