Bændablaðið - 08.10.2020, Síða 54

Bændablaðið - 08.10.2020, Síða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. október 202054 Í byrjun árs 2020 var von á nýjum SsangYong Korando í Bílabúð Benna, en af ýmsum ástæðum (mest vegna COVID) seinkaði komu bílsins. Nú er bíllinn kom- inn og er með 163 hestafla bens- ínvél, ýmist eindrifs eða fjórhjóla- drifinn. Ég prófaði fjórhjóladrifna sjálfskipta bílinn fyrir skemmstu. Lengri, breiðari með margar nýjungar í samanburði við gamla Korando Bíllinn er nánast ekkert líkur eldri árgerð unum af Korando, á sjálfur 2017 bíl og miða við hann. Þarna hefur kraftmiklu 178 hestafla dísil- vélinni verið skipt út fyrir 163 hest- afla 1,5 lítra bensínvél. Í bílinn er komið mikið af nýtísku þægindum, s.s. bakkmyndavél, GPS leiðsögu- búnaður, hiti í stýrið, hiti og kæling í framsætum, akreinalesari, blindhorn- svari sem gefur ljós í hliðarspegla sem eru líka upphitaðir, læsing á millikassa ásamt fleiru. Ökumótin eru þrjú (normal, sport og winter) og mikill munur er á snerpu og mýkt á milli þessara þriggja ökustillinga. Nýi bíllinn er bæði lengri og breiðari, en farangursrýmið virðist styttra, en í staðinn dýpra niður. Bíllinn er mjög vel hljóðeinangrað- ur og mælist hávaðinn inni í bílnum ekki nema 70,0 db á 90 km hraða, sem er mjög gott. Það er betri mæling en í nokkrum af þeim rafmagnsbílum sem ég hef hávaðamælt á sama hraða og sama vegi. Prufuaksturinn Ég ók bílnum rúmlega 100 km og að honum loknum var mín meðaleyðsla samkvæmt aksturstölvunni 8,7 lítrar á hundraðið. Það er ansi nálægt upp- gefinni eyðslu, sem er 8,3 lítrar á hundraðið á fjórhjóladrifna bílnum (6,9 á eindrifs bílnum). Mest ók ég í „sportstillingunni“ en á henni er snerpan best og kraft- urinn ágætur. Fann samt alveg mun á mínum gamla sem er 15 hestöflum kraftmeiri og togar betur. Bíllinn sem ég prófaði var á 18 tommu felgum og á góðu malbiki var hreint æðislegt að keyra hann, svarar eins og hugur manns í beygjum og alltaf gott grip. Akreinalesarinn virkar þannig að rétt áður en hann flautar á ökumann togar hann sjálfur aðeins í stýrið í þá átt sem á að beygja ef maður nálgast miðlínu eða kantlínu of mikið. Eins og svo oft í reynslukeyrslum mínum keyrði ég malarveginn meðfram Hafravatni til að finna hvernig bíll- inn er á möl. Þar gerði ég mistök sem ég áttaði mig ekki á fyrr en daginn eftir þegar ég prófaði bílinn aftur. Ekki sama í hvaða stillingu bíllinn er á holóttum malarvegi Á 18 tommu felgum með stillt á sport stillinguna var bíllinn óeðli- lega stífur og hastur svo að ég vildi prófa bílinn á 17 tommu felgum sem ég gerði daginn eftir. Þá kom ég inn á mölina með bílinn stilltan á „normal“ akstursstillingu og ætl- aði hreinlega ekki að trúa muninum á því bara að breyta felgunum um tommu. Til baka ók ég svo á „sport“ stillingunni og þá var bíllinn mun stífari og hastari svo að ég fór aðra ferð með stillt á „winter“ still- inguna og þá var hann enn mýkri en í „normal“. Alls fór ég sjö ferðir fram og til baka þarna á holóttum veginum og niðurstaðan var sú að sé ekið á möl er best að hafa bílinn í „normal eða winter“ stillingunum. Munurinn er það mikill og töluverður munur er á mýkt að keyra á 17 tommu felg- unum í stað 18 á malarvegi. Ég á sjálfur 16 tommu felgur með vetrar- dekkjunum mínum sem ég prófaði að setja undir bílinn. Það passar þannig að fyrir þá sem vilja fá enn meiri mýkt í bílinn geta þeir sett 16 tommu felgur undir hann. Verð, plúsar og mínusar Verðið er frá 4.390.000 á eindrifs bílnum, en frá 5.990.000 á fjór- hjóladrifna bílnum. Það verður að kallast mjög gott verð miðað við stöðu gjaldmiðla í dag. Ekki eru margir mínusar en samt smá. Til að vera löglegur í umferð þarf að muna að kveikja ljósin til að fá afturljós á bílinn. Hafa bara ljósatakkann alltaf svoleiðis, þó mælaborðið kvarti þá slekkur bíll- inn sjálfkrafa ljósin eftir nokkrar sekúndur. Í sýningarsal í Bílabúð Benna er ekki varadekk í bílunum, en Benni sjálfur sannfærði mig um að allir bílar yrðu með „varadekks- aumingja“ við afhendingu. Plúsarnir eru margfalt fleiri, en fyrst vil ég nefna gott verð miðað við gengi, mestan mun fann ég á ökumannssætinu sem er mun betra en í gamla, hitann í stýrinu og akreinalesarinn les glettilega ógreinilegar línur. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Nýr SsangYong Korando SsangYong Korando 1,5l. bensín. Myndir /HLJ Fór þennan holukafla við Hafravatn sjö sinnum til að prófa mismunandi fjöðrun og felgur. Sextán tommu vetrarfelgan mín passaði fínt og ágætis bil samt á milli bremsudælu og felgu. Til að afturljós séu kveikt þarf að muna að vera með ljós kveikt (og aldrei slökkva þau í SsangYong). Akreinalesarinn flautar á mann og togar líka í stýrið. Hávaði á 90 inni í bílnum er minni en í mörgum rafmagnsbílum. Hliðarspeglar eru góðir og eru með ljós fyrir blindhornsvara. Lengd 4.450 mm Hæð 1.620 mm Breidd 1.870 mm Helstu mál og upplýsingar

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.