Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 2020 35 Verkefnið Krakkar kokka, sem Matís hefur þróað síðustu tvö ár, er hugsað sem eitt af skrefunum í átt að sjálfbærnimarkmiðum Sam­ einuðu þjóðanna. Nú hefur það tengst Evrópu verk­ efninu WeValueFood, sem hefur það að markmiði að fræða börn meðal annars um sjálfbærni, fæðuauðlind­ ir, umhverfisáhrif, næringu og stað­ bundna matargerð. ViðMetumMat á Íslandi Að sögn Rakelar Halldórsdóttur, verk efna stjóra hjá Matís, var Krakkar kokka fyrst prufukeyrt haustið 2018 í Skagafirði; í Grunnskólanum austan Vatna og í Varmahlíðarskóla og haustið 2019 var verkefnið aftur prufu keyrt og þá hjá Laugarnesskóla í Reykjavík. „Nú hefur Krakkar kokka verið tengt Evrópuverkefni sem við hjá Matís erum að vinna að og heitir WeValueFood, eða „ViðMetumMat“, og er markmið þess að auka matar­ vitund og matarþekkingu evrópskra barna. Það er styrkt af EIT­Food, sem er undirstofnun Evrópusambandsins. Aðildarlöndin þrjú, Ísland, Bretland og Spánn, vinna að þessu markmiði hvert með sínum hætti. Hjá okkur á Íslandi eru nokkr­ ir skólar, bæði í Reykjavík og í Borgarfirði, að vinna að Krakkar kokka þessa haustönn í samstarfi við Matís og Háskóla Íslands sem hluti af Evrópuverkefninu. Þannig fá 11–12 ára börn í þessum skólum fræðslu um fæðuauðlindir Íslands, sjálfbærni, nærumhverfisneyslu, matarhefðir og matreiðslu. Þau heimsækja svo frumframleiðendur á svæðinu (bænd­ ur eða aðra), eða sækja aðföng beint í náttúruna; til að mynda tíndu börn í einum skólanna ber í haust, börn í öðrum skóla náðu í ferska uppskeru úr skólagörðum og börn úr enn öðrum skóla heimsóttu kúabónda á svæði sínu og fengu mjólk með sér. Svo elda börnin máltíð úr því hráefni sem sótt var og allt verkferlið, frá öflun hráefnisins til matreiðslunnar og þess að neyta matarins saman, taka börnin sjálf upp á myndband sem þau klippa til sjálf og skreyta með tónlist, textum og öðru,“ segir Rakel. Mun matarvitund og þekking aukast? Rakel segir að mikið sé lagt upp úr því að vinnan sé skemmtileg og það sé leikur í henni, en úrvinnslan verði á fræðilegum nótum. „Myndböndin eru einkar skemmtileg þar sem þau eru gerð með handbragði og sýn barnanna sjálfra og það er aðdáunar­ vert hvað börn eru orðin slungin í að nota tæknina til að skapa skemmti­ legt og fræðandi efni. Þarna eru börn því að gera fræðsluefni um matar­ auðlindir síns svæðis, hráefnisöflun og eldunaraðferðir, fyrir önnur börn, og það er einmitt það sem börn í dag sækja í, það er að skoða myndbönd af öðrum börnum við leik og skemmtun á YouTube, TikTok og svo framvegis. Háskóli Íslands sér um fram­ kvæmd og úrvinnslu upplýsinga sem safnað er með spurningakönnun sem börnin svara fyrir og eftir fram­ kvæmd verkefnisins, en markmiðið er að fá upplýsingar um hvort mat­ arvitund og þekking barnanna eykst með verkefninu. Sambærileg spurn­ ingakönnun er einnig lögð fyrir börn sem vinna að svipuðum verkefnum í samstarfslöndunum, þó í öðrum útfærslum. Niðurstöður munu gefa okkur hugmyndir um hvaða leiðir eru árangursríkastar í þessu samhengi.“ Lærdómur með skemmtimennt Mennta­ og menningarmálaráðherra er verndari verkefnisins Krakkar kokka. „Það segir mikið um mikil­ vægi menntunar barna á þessu sviði,“ segir Rakel. „Enda getur ekkert sam­ félag þrifist án fæðu og aukin sjálf­ bærni í fæðukerfinu er mikilvæg til framtíðar. Prufukeyrslur á verkefninu Krakkar kokka hafa leitt í ljós að skemmtimennt eins og Krakkar kokka virðist tilvalin leið til að ná til barna í dag enda mikilvægt að uppfræða komandi kynslóð um nærumhverfisneyslu og ábyrga nýtingu fæðuauðlinda, ekki síður en hvernig við matreiðum úr fæðu­ hráefni. Skemmtileg upplifun af vettvangsferðum eykur matarvit­ und barnanna og þekkingu þeirra á uppruna matarins og sjálfbærri og ábyrgri neyslu. Ein spurninganna sem við spyrjum í verkefninu er: „Hvað myndir þú borða ef engin búð væri nálægt?“ Þessi spurning vekur börnin til umhugsunar um hvaða val við höfum ef við getum ekki keypt matinn innpakkaðan úr búðinni, svo sem hvað við getum borðað úr nærumhverfi okkar, hver framleiðir fæðuafurðir á svæðinu og hvað má borða beint úr náttúr­ unni. Verkefnið eykur líka skilning barnanna á samfélagi sínu, því að þau átta sig á því að með því að velja staðbundnar fæðuafurðir erum við að styrkja og styðja okkar eigið samfélag, styðja við framleiðend­ ur á okkar svæði, tryggja atvinnu, minnka mengun þar sem matur­ inn er ekki fluttur langar leiðir til okkar og við förum einnig betur með matinn því við sjáum hvaðan hann kemur og skiljum að vinna og alúð hefur verið lögð í framleiðslu hans, eða að gjöful náttúran hefur ræktað hann fyrir okkur að njóta og vera þakklát fyrir. Við vonumst til að á næstu önnum muni fleiri skólar taka verkefnið upp sem hluta af heimilisfræðikennslu eða sem þverfaglegt verkefni margra greina og við fögnum öllum fyrirspurnum skóla,“ segir Rakel. Verkefn i s lýs ing Krakkar kokka fyrir skóla má finna í gengum vef Matís, en þar eru líka mynd­ bönd skólabarna úr verkefninu. /smh Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is VEL BÚIN Í VETUR! Dynjandi býður upp á vinnu- og vetrarfatnað sem uppfyllir ströngustu kröfur markaðarins. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. Austurvegi 69 800 Selfoss 480 0400 jotunn.is jotunn@jotunn.isLANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA PRONAR PDF 340 (C) Framsláttuvél - Vinnslubreidd: 3,4m með knosara 2.575.000 án vsk. án knosara 1.997.000 án vsk. PRONAR PDT 340 Miðjuhengd sláttuvél. Vinnslubreidd: 3,4m Kr. 1.615.000 án vsk. PRONAR PDD 830 Sláttuvél (fiðrildi) Vinnslubreidd: 2x3m Kr. 3.115.000 án vsk. PRONAR PWP 530 4 stjörnu snúningsvél, lyftutengd. Vinnslubreidd: 5,3m Kr. 1.225.000 án vsk. PRONAR ZKP 420 Einnar stjörnu rakstrarvél. Lyftutengd. Vinnslubreidd: 4,0-4,5m Kr. 875.000 án vsk. PRONAR ZKP 800 Miðjuvél Vinnslubreidd: 7-8m Kr. 3.369.000 án vsk. PRONAR PWP 770 6 stjörnu snúningsvél. Vinnslubreidd: 7,7m Kr. 1.665.000 án vsk. PRONAR PDT 300 Miðjuhengd sláttuvél Vinnslubreidd: 3,0m Kr. 1.495.000 án vsk. *U pp lýs ing ar va rð an di sk ilm ála ve itt ar hj á A flv élu m . Alvöru heyvinnutæki Hausttilboð á Pronar heyvinnutækjum! 2.240.250 án vsk. 1.737.390 án vsk. 1.405.050 án vsk. 2.710.050 án vsk. 2.931.030 án vsk. 1.300.650 án vsk. 761.250 án vsk. 1.627.253 án vsk. 1.065.750 án vsk. Verkefnið Krakkar kokka tengist Evrópuverkefni: Markmiðið að auka matar- vitund og matarþekkingu LÍF&STARF Rakel Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís. Frá þátttöku íslenskra barna í verkefninu Krakkar kokka. • Bárujárn í ýmsum litum • Áfellur úr stáli í ýmsum litum • Stuttur afgreiðslutími • Gott verð • Persónuleg þjónusta Bárujárn og gluggar í miklu úrvali sinus18.is - 18sinus18@gmail.com - 7722643
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.