Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 202034
Gísli Matthías Auðunsson mat
reiðslu meistari hefur nóg að gera.
Hann rekur þrjá veitingastaði,
Skál! í Mathöll Hlemmi og Slippinn
og nýopnaða hamborgarastað
inn ÉTA sem báðir eru staðsettir
í Vest mannaeyjum. Hann er að
leggja loka hönd á matreiðslubók
og aðstoðar nú sauðfjár og græn
metisbændur við að halda kjöt
súpudaginn hátíðlegan.
Síðastliðin ár hefur íslensku
kjötsúpunni verið gert hátt undir
höfði með sérstökum kjötsúpudegi
sem haldinn hefur verið hátíðlegur
fyrsta vetrardag á Skólavörðustíg.
Þar hafa veitingamenn boðið gestum
og gangandi upp á kjötsúpur í hinum
ýmsu útgáfum. Samkomubann
hefur þó sett strik í reikninginn í
ár en Landssamtök sauðfjárbænda
og Sölufélag garðyrkjumanna hafa
nú tekið höndum saman og með
dyggri aðstoð frumkvöðlanna á
Skólavörðustíg verður kjötsúpu-
dagurinn haldinn með breyttu sniði
í ár.
Á Facebook-síðu Lambakjöts
voru kynntar fjórar ólíkar upp-
skriftir að kjötsúpu, en Gísli tók
saman uppskriftirnar. Þjóðin kaus
sína uppáhaldssúpu á Facebook-
síðunni lambakjöt en kosningin
stóð til og með 21. október. Kom
það ekki mörgum á óvart að gamla
góða ömmusúpan varð fyrir valinu.
Gísli mun kenna áhorfendum að
elda súpuna í beinni útsendingu á
Facebook-síðunni Lambakjöt þann
24. október klukkan 13.00. Hann
ætlar að fara yfir hvað þarf að hafa
í huga við val á kjöti, hvaða græn-
meti er nú í árstíð og fara yfir sögu
kjötsúpunnar.
Gísli er spenntur fyrir þessu
verkefni, enda gaman að takast á
við áskoranirnar sem fylgja kór-
ónuveirufaraldursins. „Þetta hefur
verið sérstaklega erfitt fyrir okkur
veitingamenn. Það er mikil óvissa í
greininni og það er gott að fá tæki-
færi til þess að taka þátt í verk efnum
eins og þessum þar sem viðburðum
er ekki frestað heldur haldnir með
breyttu sniði.“ Hann segir mikilvægt
að reyna að bregðast við breyttum
aðstæðum, en veitingastaðirnir
Skál! og ÉTA hafa brugðist fljótt
við og boðið upp á heimsendingu
en um helgina var boðið upp á ÉTA
pop up-viðburð á Skál! þar sem
borgarbúar fengu tækifæri til þess
að smakka hamborgarana sem slógu
í gegn í Vestmannaeyjum í sumar.
„Við verðum bara að reyna að gera
okkar besta og halda í jákvæðnina.
Veitingastaðir og matar-
menning er mikilvægur þáttur
í menningu okkar Íslendinga.
Kjötsúpudagurinn minnir okkur á
matarmenningararfinn okkar, en
mér fannst magnað að sjá viðtök-
ur almennings. Flestir telja sína
súpu besta og var þessi klassíska
súpa vinsælust meðal þeirra sem
kusu. Ég leitaði til áhugamanna
um íslenskan mat þegar ég vann
að uppskriftunum. Ég fékk svör frá
50 einstaklingum og var ekkert svar
eins. Fjölbreytileikinn sem einkenn-
ir þennan þjóðarrétt er einstakur.“
Gísli hlakkar til að elda í beinni
útsetningu og óskar sérstaklega
eftir spurningum frá áhorfendum
eða athugasemdum. „Markmiðið
er að hafa gaman og fagna íslensku
kjötsúpunni. Ég vona að sem flestir
læri eitthvað nýtt og eldi síðan sína
eigin súpu á laugardagskvöld og
haldi kjötsúpudaginn hátíðlegan
heima.“ Hægt verður að fylgjast
með útsendingunni á Facebook-
síðununum Lambakjöt, Íslenskt.is
og á Facebook-síðu Bændablaðsins.
ICELANDIC LAMB
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar-
dekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki
höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur
og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur — hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti
Maxam dekkjanna.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Hagkvæm
dekk fyrir
alvöru kröfur
Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumeistari:
Ætlar að elda kjötsúpu í beinni útsendingu
– Hægt verður að fylgjast með útsendingunni á Facebook-síðununum Lambakjöt, Íslenskt.is og á Facebook-síðu Bændablaðsins
Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumeistari.
Þjóðin kaus sína uppáhaldssúpu á Facebook-síðunni lambakjöt en kosningin
stóð til og með 21. október. Kom það ekki mörgum á óvart að gamla góða
ömmusúpan varð fyrir valinu.
LÍF&STARF
Bænda
5. nóvember
Helga hlaut samfélagsverðlaun Skagafjarðar:
Ötult starf í félags- og framfaramálum
Helga Sigurbjörnsdóttir hlaut
sam f élags verðlaun Skagafjarðar
fyrir árið 2020 og tók hún við verð
laununum á heimili sínu á Sauðár
króki. Samfélagsverðlaun Skaga
fjarðar voru nú veitt í fimmta sinn.
Helga Sigurbjörnsdóttir hefur lagt
drjúgan skerf til félags- og framfara-
mála á Sauðárkróki í marga áratugi.
Starfaði hún hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði í rúmlega 40 ár, lengst af
sem leikskólastjóri og lagði grunninn
að því faglega og umhyggjusama
starfi sem leikskólarnir sinna í
Skagafirði.
Auk langs og farsæls starfsfer-
ils í þágu barna á Sauðárkróki hefur
Helga verið mikilsvirt og öflug kven-
félagskona og formaður Kvenfélags
Sauðárkróks um árabil. Sem slík
hefur hún verið í forystu margra
brýnna og mikilvægra samfélags-
mála, bæði vegna ýmissa félagslegra
verkefna, eins og t.d. söfnun fjármuna
til kaupa á lækningatækjum o.þ.h.,
en ekki síður verkefna sem snúa að
velferð einstaklinga og fjölskyldna í
gegnum sjúkrasjóð Kvenfélagsins.
Þau verkefni fara ekki alltaf hátt.
Þá hefur Helga verið ötul við að
kenna þjóðbúningasaum og verið
óþreytandi við að hvetja konur til
að bera búninginn við ýmis tækifæri.
Helga er núverandi formaður Félags
eldri borgara í Skagafirði. Þar eins
og annars staðar er hún óþreytandi í
störfum í þágu eldri borgara. Helga
hefur lagt hönd á plóg í fjölmörgum
forystu- og framfaraverkefnum um
tíðina.
„Helga er vel að verðlaununum
komin enda hefur hún sannarlega
borið samfélag sitt sér fyrir brjósti og
lagt á sig ómælt starf öðrum til hags-
bóta“, segir á vef Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. /MÞÞ
Helga Sigurbjörnsdóttir ásamt Gunnsteini Björnssyni, formanni atvinnu-,
menningar- og kynningarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar.