Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 202046 Árið 1982 kom Honda fyrst með smábíl sem nefndist Jazz, frá þeim tíma hefur bíllinn tekið miklum breytingum árgerð fá árgerð, en sennilega er nýjasta árgerðin af Jazz mesta breytingin á milli árgerða af þeim öllum. Ég prófaði nýjasta Hondabílinn sem ber nafnið Jazz fyrir stuttu síðan og útkoman var mun betri en ég átti von á fyrir aksturinn. Vélin sparneytnari og hljóðlát Bíllinn heitir nú Honda Jazz E:HEV og er með 1498cc. bensín/rafmagns- vél sem skilar 109 hestöflum. Eins og margir aðrir framleiðendur hafa verið að hanna og setja í smærri bíla vinna saman bensínvélin og rafmagnshjálparmótor og virkar best í innanbæjar akstri (þar sem oft er bremsað og rafmagn fer inn á rafmótorinn). Uppgefin eyðsla í innanbæj- arakstri er því lægri en í langkeyrslu. Innanbæjar um 2,5 lítrar en lang- keyrslu rúmir 4 á hundraðið sam- kvæmt sölubæklingi. Ég var að eyða í langkeyrslunni tæpum 5 lítrum á hundraðið, en það þarf að keyra bílinn mjúklega til að ná þessari eyðslu. Enginn vandi ef maður vandar sig að spara á þessum bíl og líka enginn vandi að koma eyðslunni upp undir 15 lítra á hundraðið með einbeittum brotavilja. Vélin er afar hljóðlát, eins og alla bíla sem ég prófa þá hávaða- mældi ég bílinn sem mældist betur en margur rafmagnsbíllinn, eða 70,6 desibel. Fannst ljótt, en er eftir á ljótt, flott sökum virkni Næstum allir bílar eru með loftpúða sem springur út við árekstur fyrir framan ökumann og farþega, en í marga bíla vantar vörn fyrir framan hné á ökumanni og farþega í fram- sætum, en þarna er kominn loftpúði sem ver hné og fætur við árekstur. Í bílnum er mjög næmur akreina- lesari, svo næmur að ef maður heldur laust um stýrið þá stýrir bíllinn sjálfur, en ef maður slepp- ir alveg stýrinu lætur mælaborðið vita bæði með viðvörunarljósi og hljóði. Ég lét bílinn stýra sjálfan yfir Mosfellsheiðina, frá Gljúfrasteini að Grafningsafleggjara, hélt bara laust um stýrið og bíllinn sá um „rest“. Litlu hliðarrúðurnar fyrir fram- an framhurðirnar og aftan framrúðu gefa manni mun betri hliðarsýn en maður á að venjast og fyrir mér sem fannst þetta ljótt við fyrstu sýn er eftir á að hyggja snilldarhönnun sem ég tók fullkomlega í sátt sökum betra útsýnis innan frá úr bílnum. Kom betur út á holóttum malarvegi en margur dýrari bíll Aðeins einn mínus fann ég, en hann er að ekkert varadekk er í bílnum. Ljósin þarf að kveikja, en það þarf ekki nema einu sinni því þó að mælaborðið segi manni að slökkva ljósin þegar drepið er á bílnum má hundsa þá skipun því ljósin slökkva á sér eftir 10-15 sek. eftir að bílnum er læst. Framsætin góð og þægileg, mikið rými fyrir þá sem sitja í aft- ursætum. Bakkmyndavélin sýnir vel aftur- fyrir bíl og leiðsögukerfið í bílnum er gott. Á holóttum malarvegi heyrist aðeins smásteinahljóð undir bílnum, en fjöðrunarkerfið er mun betra en ég átti von á þrátt fyrir að vegurinn sem ekið var á hafi verið einstaklega holóttur með djúpum holum. Það hefur örugglega ekki verið vinsælt hjá starfsmönnum Öskju sem þurftu að þrífa drulluskítugan bílinn eftir mig. Gott verð og 5 ára ábyrgð Bíllinn sem ég prófaði var dýrari gerðin af Honda Jazz og nefnist Crosstar, sjálfskiptur, framhjóla- drifinn og kostar 4.790.000, en ódýr- asti bíllinn er á verði frá 4.490.000. Þó að uppgefinn hestaflafjöldi sé ekki nema 109 hestöfl er snerpan góð (0-100 km. hraði er uppgefinn á 9,4 sek.) Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.honda.is. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Nýr og mikið breyttur Honda Jazz Honda Jazz Crosstar. Myndir / HLJ Bíllinn kom vel út á þessum holótta malarvegi. Minni hávaði á 90 en í mörgum raf- magnsbílum. Fínt pláss fyrir farþega í aftursætum. Haltu um stýrið segir mælaborðið næstum um leið og stýrinu er sleppt. Einbeittur brotavilji í bensíneyðslu yfir 15 lítrar á hundraðið, en 2,1,0 lærði smám saman að spara og var orðinn ágætur eftir 100 km akstur. Farangursrýmið er ágætlega stórt, en varadekkið vantar. Þyngd 1.304 kg Hæð 1.526 mm Breidd 1.694 mm Lengd 4.044 mm Helstu mál og upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.