Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. október 20204 Kristjáns Þór Júlíusson sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt til í ríkisstjórn að Bjarg- ráða sjóði verði tryggt aukið fjár- magn á þessu ári vegna óvenju mikilla kal- og girðingatjóna síð- asta vetur. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að vísa málefnum sjóðsins til vinnslu frumvarps til fjáraukalaga 2020. Samanlagt tjón metið á 960 milljónir króna Sigurður Eyþórsson, framkvæmda­ stjóri Bjargráðasjóðs, segir að sjóð­ urinn hafi nú um 200 milljónir til ráð­ stöfunar en sótt hafi verið um bætur fyrir kal­ og girðingatjón sem metið er á 960 milljónir – um 800 milljóna króna kaltjón og 160 milljóna króna g i rð inga t jón . Bjargráðasjóður er í dag sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins en var til ársins 2016 að jöfnu í sam­ eign ríkisins og Bænda samtaka Íslands. Umóknir um bætur voru 211 vegna kaltjóns en 74 um bætur vegna girðingatjóns, en umsóknarfrestur var til 1. október. Gert er ráð fyrir að umsóknir verði afgreiddar í nóvember og þær greidd­ ar út fyrir árslok. /smh Svæði Umsóknir Kalnir hektarar Hlutfall ræktarlands umsækjenda Húnaþing og Strandir 34 445 25,50% Skagafjörður 21 304 21,70% Eyjafjörður 18 389 30,40% Suður-Þingeyjarsýsla 63 1.789 55,70% Norður-Þingeyjarsýsla 27 593 48% Austurland 48 1.175 48,40% Alls 211 4.695 41,50% Svæði Umsóknir Kílómetrar Húnaþing og Strandir 19 50,2 Skagafjörður 15 24 Eyjafjörður 12 36,1 Suður-Þingeyjarsýsla 15 34,8 Noður-Þingeyjarsýsla 5 31,2 Austurland 2 3 Suðurland 6 15,7 Alls 74 195 1 Svæði Umsóknir Kalnir hektarar Hlutfall ræktarlands umsækjenda Húnaþing og Strandir 34 445 25,50% Skagafjörður 21 304 21,70% Eyjafjörður 18 389 30,40% Suður-Þingeyjarsýsla 63 1.789 55,70% Norður-Þingeyjarsýsla 27 593 48% Austurland 48 1.175 48,40% Alls 211 4.695 41,50% Svæði Umsóknir Kílómetrar Húnaþing og Strandir 19 50,2 Skagafjörður 15 24 Eyjafjörður 12 36,1 Suður-Þingeyjarsýsla 15 34,8 Noður-Þingeyjarsýsla 5 31,2 Austurland 2 3 Suðurland 6 15,7 Alls 74 195 1 FRÉTTIR Fjárhundurinn Glanni telur sig ekki eiga síðri rétt en margir aðrir til að komast á síður Bændablaðsins. Enda mikið fyrir myndinni haft og ekki á hverjum degi sem svo fallegur og duglegur smalahundur stillir sér upp fyrir myndatöku með sjálfa Haganesvík, Hraunakrók og Tröllaskaga í baksýn. Mynd / Jónína Bragadóttir Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár í byrjun nóvember Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið hefur auglýst að innlausn- armarkaður fyrir greiðslu mark sauðfjár verði haldinn í fyrstu viku nóvember. Innlausnarverð er núvirt andvirði beingreiðslna næstu tveggja almanaksára, kr. 12.764,- fyrir hvert ærgildi. Greiðslumarkið sem verður inn- leyst er boðið til sölu á innlausn- arverði. „Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetn­ ingshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að 100% þess greiðslu­ marks sem er í boði á markaði, þar af 60% til þeirra sem eiga 200 kind­ ur eða fleiri og hafa ásetningshlut­ fallið 1,6 eða hærra. Það skiptist hlutfallslega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa. Hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar beingreiðslur í samræmi við fjárfjölda og ásetn­ ingshlutfall. Það greiðslumark sem ekki er úthlutað til framleiðenda í forgangshópi skal boðið öðrum umsækjendum. Með beiðni um innlausn á greiðslu marki skal fylgja veðbókar­ vottorð ásamt staðfestingu á eignar­ haldi að lögbýli og samþykki ábú­ anda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu. Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslumark frá og með 1. jan­ úar 2021. Opnað hefur verið fyrir tilboð um kaup og sölu greiðslumarks í Afurð, greiðslukerfi landbúnaðar­ ins, www.afurd.is. Einungis er hægt að skila tilboðum með rafrænum hætti í Afurð,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Tilboðsfrestur rennur út á mið­ nætti 1. nóvember 2020 og verð­ ur tilkynnt um niðurstöður mark­ aðarins ekki síðar en 8. nóvember 2020. Greiðslufrestur vegna kaupa á greiðslumarki er til 1. desember 2020. /smh Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að 100% þess greiðslumarks sem er í boði á markaði. Mynd / HKr. Ríkisstjórnin samþykkir að bæta kal- og girðingatjón síðasta vetrar – Samanlagt tjón metið á 960 milljónir krónaLítil notkun á orlofsíbúð Bændasamtakanna Eftir litla notkun á orlofsíbúð Bænda samtakanna við Þorrasali í Kópavogi, vegna COVID-ástand- sins og mikilla afbókana síðan í vor, hefur fyrirkomulagi á leigu verið breytt þannig að nú er hægt að leigja út íbúðina einn sólarhring í einu ásamt helgar- og vikuleigu eins og áður var. Opnað hefur verið fyrir skrán­ ingu frá janúar til mars árið 2021 og eru félagsmenn hvattir til að kynna sér það sem er í boði á hverjum tíma á orlofsvef Bændasamtakanna https://www.orlof.is/bondi/. Í orlofsíbúðinni eru tvö svefnher­ bergi með rúmstæðum fyrir fjóra, rúmgóð stofa og eldhús, bað­ og þvottaherbergi og stórar svalir. Í Þorrasölum eru ný húsgögn og heimilistæki. Bílskýli er í húsinu og bílastæði nr. 405 tilheyrir íbúðinni. Stutt er í alla þjónustu, meðal annars sundlaug og fjölbreyttar verslanir. Leigutími er að lágmarki einn sól­ arhringur og að hámarki vika í senn. Sængur og koddar eru til afnota í íbúðinni. Hægt er að leigja rúmföt og handklæði hjá umsjónarmanni gegn vægu gjaldi. Athygli félagsmanna er sér­ staklega vakin á að til að hindra útbreiðslu COVID­19 er ekki heimilt að nota orlofsíbúðina sem dvalarstað fyrir sóttkví, eins og leiðbeiningar frá Landlækni segja til um. Með því væri verið að stofna umsjónarmanni og öðrum félagsmönnum sem koma í næstu útleigu í hættu. Þá er einnig óheim­ ilt að nota íbúðina fyrir einangrun. Félagsmenn sem dvelja í íbúðinni eru vinsamlegast beðnir um að gæta sérstaklega vel að sóttvörn­ um og sótthreinsa alla snertifleti í lok dvalar. Gabion grjóthleðslu körfur Nokkrar stærðir til á lager GABION KÖRFUR TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 865-9277 VEFFANG www .bkhonnun . is Hótel Saga ehf. og Bændahöllin ehf.: Áfram í greiðsluskjóli Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á að framlengja greiðslu- skjól Hótel Sögu ehf. og Bænda- hallarinnar ehf. til 7. apríl 2021. Veittur er fullur 6 mánaða frestur eins og lögin heimila, talið frá deginum sem fyrra skjól rann út, þann 7. október síðastliðinn. Sigurður Kári Kristjánsson hæsta réttarlögmaður segir að leyfið sé það sem almennt er kall­ að greiðsluskjól og felur í sér að Héraðsdómur Reykjavíkur fram­ lengir heimildir Hótel Sögu og Bænda hallarinnar til fjárhagslegrar endur skipulagningar í sex mánuði, eða til 7. apríl 2021. „Í því felst að félögin njóta greiðsluskjóls gagnvart kröfuhöf­ um sínum. Forsendur þess að félögin fengu leyfið eru meðal annars að lögum um fjárhagslega endurskipulagningu væri fullnægt og ekki hafi komið fram mótmæli frá kröfuhöfum og ekki hafi verið veittar rangar upplýsingar um stöðu félaganna.“ Sigurður segir að í gangi séu virkar viðræður við nokkra aðila sem hafa áhuga á að koma að rekstri Hótel Sögu og mögulegum kaupum á fasteigninni. Ekki sé þó hægt að greina frá hverjir það séu. /VH Hótel Saga. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.