Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 65
MINNINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
✝ Pálmar Víg-mundsson
fæddist í Reykja-
vík 29. júní 1930.
Hann lést 15. nóv-
ember 2020.
Foreldrar hans
voru Ingveldur
Árnadóttir, fædd
11. febrúar 1901,
d. 20. október
1987, og Vígmund-
ur Pálsson, fæddur
8. ágúst 1896, d. 2. júlí 1967.
Systkini Pálmars voru; Að-
alsteinn samfeðra, f. 17. mars
1920, d. 16. júní 1997, og al-
systir Ingunn, f. 20. febrúar
1928.
Pálmar ólst upp á Baróns-
stígnum í Reykjavík fyrstu árin
en flutti 5 ára með foreldrum
sínum og systur að Efra-Hvoli í
Mosfellssveit og ólst þar upp.
Hann gekk í Barna- og gagn-
fræðaskólann að Brúarlandi.
Hann kvæntist hinn 12.12.
1953 eftirlifandi eiginkonu
2017. Hann byrjaði snemma að
keyra bíl og var mikill áhuga-
maður um bíla og vélar. Hans
fyrstu störf tengdust vélum og
vann hann hjá Ræktunarsam-
bandi Kjalarnesþings. Hann
starfaði hjá Áburðarverksmiðj-
unni í Gufunesi við uppsetn-
ingu á vélum. Hann vann einn-
ig við bifreiða- og þungavinnu-
vélaviðgerðir. Árið 1961 hóf
hann störf hjá Reykjalundi í
röra- og filmudeild og var þar
verkstjóri í 40 ár. Pálmar var
alla tíð mikill áhugamaður um
flug og gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir Flugklúbb Mos-
fellsbæjar. Hann var flugvall-
arstjóri hjá þeim til margra
ára. Pálmar var einnig ötull fé-
lagsmaður í Lionsklúbbi Mos-
fellsbæjar í áratugi og tók rík-
an þátt í mörgum uppbygging-
arverkefnum sem Lionsmenn
stóðu að.
Útför Pálmars fer fram frá
Lágafellskirkju í dag, 27. nóv-
ember 2020, kl. 13. Í ljósi að-
stæðna verða eingöngu nán-
ustu aðstandendur viðstaddir.
Útförinni verður streymt á:
https://promynd.is/palmar
Virkan hlekk á streymið má
einnig nálgast á:
https:/www.mbl.is/andlat
sinni Ragnheiði
Jónasdóttur, f. í
Reykjavík 25. júní
1932. Börn þeirra
eru: 1) Ingi Ragn-
ar, f. 1956, maki
Guðrún Ólafs-
dóttir, f. 1963, syn-
ir þeirra eru Kári
og Dagur. 2) Víg-
mundur, f. 1962,
maki Anna Hans-
dóttir, f. 1962.
Börn hans Pálmar, Eyþór
Fannar og Elmar Skúli. Börn
Önnu, Ása Sigríður og Emil Jó-
hann. 3) Sigrún, f. 1969, maki
Þröstur Þorgeirsson, f. 1966.
Sonur hennar Sigurvin Andri.
Synir þeirra Nói og Sindri.
Dóttir Þrastar er Tara Sif.
Árið 1950 keyptu Pálmar og
Ragnheiður lítinn sumarbú-
stað, Árholt við Varmána sem
þau gerðu upp og byggðu við.
Varð það heimili fjölskyld-
unnar alla tíð uns þau fluttu að
Hlaðhömrum 2 í Mosfellsbæ
Það er með hlýju og þakklæti í
huga að ég skrifa þessi orð um
elskulegan tengdaföður minn,
Pálmar Vígmundsson. Eða „afa
Palla“ eins og hann er gjarnan
kallaður á okkar heimili. Það var
einstaklega bjart yfir Palla. Hann
var mannblendinn, hafði gaman af
fólki og var einstaklega ljúfur per-
sónuleiki með opna og hlýja fram-
komu. Ég kynntist honum fyrir 30
árum þegar ég kom inn í fjölskyld-
una. Hann tók mér vel frá fyrsta
degi og var alla tíð áhugasamur
um líf okkar Inga og strákanna
okkar. Þegar Palli og Heiða voru
rúmlega tvítug keyptu þau Árholt
í Mosfellsbæ sem þá var sumarbú-
staður. Það varð heimili fjölskyld-
unnar upp frá því. Hann varði
ófáum stundum við lagfæringar á
húsinu og byggði margoft við það
enda hagleiksmaður. Þau Palli og
Heiða voru ötul að rækta garðinn
sinn umhverfis Árholt. Má segja
að þar hafi verið sannkallaður æv-
intýragarður sem bæði við og
barnabörnin fengum að njóta. Þau
eru nokkur barnaafmælin sem
haldin voru í garðinum hjá afa og
ömmu. Palli var áhugamaður um
bíla og vélar og vann á tækjum við
jarðvinnu á sínum yngri árum. Í
bílskúrnum heima gat hann gert
við bíla fjölskyldunnar og var
skúrinn líka óspart notaður af öðr-
um í fjölskyldunni. Þær voru ófáar
viðgerðirnar sem framkvæmdar
voru í skúrnum hans. Þegar hann
var um sextugt fór hann að læra
flug og hafði mikla gleði af því.
Hann átti lengi flugvél í félagi við
tvo aðra og naut þess að ferðast
um landið úr lofti. Á Tungubökk-
um, flugvelli Flugklúbbs Mosfells-
bæjar var hann vallarstjóri um
nokkurra ára skeið. Þar kynntist
hann mörgum manninum og hafði
gleði af þessu hlutverki. Þegar
Ingi fór að læra flugvirkjun í
Bandaríkjunum fylgdist Palli náið
með framvindu námsins og
hringdi reglulega í okkur. Þannig
sýndi hann áhuga sinn og um-
hyggju. Það var mjög gaman að
þeir feðgar Palli og Ingi og svo
seinna Kári sonur okkar Inga
hefðu allir svona brennandi áhuga
á flugi. Þeir höfðu alltaf um nóg að
ræða og fylgdist hann spenntur
með þegar Ingi smíðaði flugvél í
gömlum bragga frá afa sínum.
Palli var umhyggjusamur maður
og einstakur dýravinur. Hann lað-
aði að sér hunda nágrannanna og
þegar við fjölskyldan eignuðumst
hund varð Árholt hans annað
heimili ef við brugðum okkur í frí.
Þar naut hann góðs atlætis hjá afa
Palla og ömmu Heiðu í Árholti.
Palli var verkstjóri á Reykjalundi
í áratugi. Eftir að hann hætti
reglubundinni vinnu naut hann
þess að dytta að og sýsla heima við
og fór flesta morgna í vinnufötin
og út í skúr eftir morgunsundið.
En sund stundaði hann í áratugi
og átti þar góða félaga. Mér er
minnisstætt að ef hann var kvef-
aður eða fékk einhverja slæmsku
gekk hann til fjalla og fór svo
gjarnan í heita pottinn í garðinum
sínum á eftir. Það fannst honum
allra meina bót. Palli var duglegur
að setja niður trjáplöntur upp með
Varmánni og kepptust þeir ná-
grannarnir, sitt hvorum megin ár-
innar, við að planta trjám til að
auðga útsýnið hver fyrir annan.
Þau hjónin fluttu að Hlaðhömrum
2 í Mosfellsbæ 2018. Það voru mik-
il umskipti fyrir þau bæði. Palli tók
hlutskipti sínu af miklu æðruleysi
og fann sig helst við lestur og í
samskiptum við annað fólk eins og
hann hafði ætíð gaman af. Kæra
fjölskylda, fallinn er drengur góð-
ur sem ég minnist með söknuði og
virðingu. Það kemur nú í okkar
hlut sem eftir stöndum að halda
gildum hans og minningu á lofti.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Guðrún Ólafsdóttir.
Ættfaðirinn í Árholti hefur
kvatt okkur eftir langa og góða
ævi. Pálmar var að nálgast áttrætt
þegar ég kom inn í fjölskylduna og
fannst mér hann eiga langt í land
með að komast í tölu gamalmenna.
Hress og kátur ætíð og áhugasam-
ur um menn og málefni, flug og
farartæki og bara allt milli himins
og jarðar var meðal áhugamála
svo og lestur góðra bóka og úti-
vera ýmiss konar. Hann þeysti um
nær daglega á fjórhjólinu sínu,
enda aðstaðan frábær hér á milli
fella í Mosfellssveit, á landi for-
feðranna við Reykjahvol. Pálmar
var gott dæmi um hvað heldur
fólki ungu í anda; að hafa næg
áhugamál og verkefni að sinna,
hvort sem var úti eða inni, þá var
hann með nokkurs konar sjálfs-
þurftarbúskap og vildi gera allt
sjálfur, enda laghentur maður.
Verðlaunagarðurinn í Árholti
bar þess glöggt vitni að þar var
nostrað flest sumarkvöld enda
höfðu þau hjónin útbúið þar æv-
intýraveröld með tjörn og fossi og
fuglahúsum, gróðurhúsi og garð-
álfum og svo mörgu fleiru, dásam-
legur samkomustaður fjölskyld-
unnar í gegnum árin með góðum
minningum.
Hann var mikill áhugamaður
um flug og tók sólópróf um sex-
tugt og var í mörg ár umsjónar-
maður á flugvellinum á Tungu-
bökkum. Að ná Pálmari á gott flug
í spjall var að biðja hann að segja
sögur frá stríðsárunum, og hann
kunni þær margar. Er hann var 10
ára gutti fylltist Mosfellssveitin af
hundruðum hermanna með til-
heyrandi farartækjum af öllum
gerðum, bíóhúsum og fleiru sem
vakti mikinn áhuga krakkanna
hér í sveitinni og hleypti miklu lífi í
fábrotið samfélagið á þeim tíma.
Tengdafaðir minn var einstak-
lega lánsamur í einkalífinu, með
Heiðu sína til rúmlega 70 ára. Þau
bjuggu sér sitt fallega heimili í Ár-
holti með ævintýragarðinum, áttu
þrjú börn og hóp átta afastráka
sem hann var mjög stoltur af. Síð-
asta samvera fjölskyldunnar var
frábært kvöld á Nauthól er þú
bauðst hópnum þínum út að borða
á 90 ára afmælisdaginn. Þar nut-
um við tilverunnar á fallegu sum-
arkvöldi og er þessi síðasti afmæl-
isdagur þinn sem ljúfsár
kveðjustund og dýrmæt í minn-
ingunni. Margs er að minnast og
margt að þakka, blessuð sé minn-
ing þín elsku Pálmar, þín verður
sárt saknað.
Anna.
Kveðja frá Lionsklúbbi
Mosfellsbæjar
Félagi okkar Pálmar Víg-
mundsson hefur nú kvatt þessa
jarðvist 88 ára að aldri. Pálmar
gekk í Lionsklúbb Mosfellsbæjar
árið 1971 og var mjög virkur í
starfi klúbbsins alla tíð meðan
hann hafði heilsu til. Hann var
lengi einn af öflugustu félögunum
og gegndi mörgum trúnaðarstörf-
um. Pálmar var t.d. gjaldkeri
klúbbsins 1973-1974 og formaður
1984-1985.
Pálmar
Vígmundsson
Þegar ég minnist Pálmars kem-
ur upp í hugann að helsta fjáröfl-
unarleið Lionsklúbbs Mosfells-
bæjar var lengi vel blómaræktun
og sala blóma fyrir konudag og
páska. Blómin – túlípanar og
páskaliljur – voru ræktuð í gróð-
urhúsinu hjá Jóel Kr. Jóelssyni,
félaga okkar í Reykjahlíð í Mos-
fellsdal. Klúbbfélagar settu niður
lauka á haustin og þegar að upp-
skeru kom og áðurnefndir sölu-
dagar nálguðust söfnuðust klúbb-
félagar saman í gróðurhúsinu og
skáru blómin og pökkuðu þeim í
söluumbúðir. Þá var oft glatt á
hjalla og iðulega var Pálmar þar
fremstur í flokki. Svo var bankað
upp á í húsum í Mosfellsbæ og
nærsveitum og blómvendir boðnir
til sölu. Í þá daga var engin blóma-
búð í bæjarfélaginu þannig að
Lionsfélagarnir fengu góðar mót-
tökur og kunnu flestir vel að meta
þetta starf okkar. Nú eru mörg ár
síðan þessi skemmtilega fjáröflun
var aflögð og ég get fullyrt að þeir
klúbbfélagar sem upplifðu þessar
samverustundir í gróðurhúsinu
sakna þeirra.
Klúbburinn gerði Pálmar að
Melvin Jones-félaga fyrir frábært
starf í klúbbnum og þegar aldur-
inn færðist yfir og getan til að taka
virkan þátt í starfi klúbbsins
minnkaði var hann gerður að ævi-
félaga, þá áttatíu ára gamall.
Við kveðjum Pálmar félaga
okkar með söknuði og þakklæti
fyrir langt og skemmtilegt sam-
starf og vottum Ragnheiði eigin-
konu hans og fjölskyldu okkar
dýpstu samúð.
Magnús Sigsteinsson
formaður.
Fallinn er frá góður félagi,
Pálmar Vígmundsson. Pálmar
hafði mikinn áhuga á flugi og var
félagi í Flugklúbbi Mosfellssveit-
ar, eins og klúbburinn hét þá, nán-
ast frá upphafi. Pálmar var einn af
þeim sem unnu gríðarmikið sjálf-
boðastarf fyrir klúbbinn. Hann sat
í stjórn klúbbsins um tíma og var
auk þess í mörg ár umsjónarmað-
ur eigna klúbbsins á Tungubakka-
flugvelli. Var hann óþreytandi við
tilfallandi störf við umhirðu flug-
vallar og klúbbhúss og eru þær
ófáar vinnustundirnar sem eftir
hann liggja í þágu klúbbsins. Allt-
af virtist Pálmar vera á staðnum
eitthvað að bedrífa og, án þess að
nokkurt bókhald sé til um slíkt,
líklegt að hann hafi verið niðri á
flugvelli á hverjum einasta degi í
mörg ár. Þeir sem urðu þeirrar
gæfu aðnjótandi að vinna með
Pálmari í þessari sjálfboðavinnu
kynntust þar afar hæglátum og
traustum manni þar sem brosið og
kímnigáfan var aldrei langt und-
an.
Þó að Pálmar hafi vissulega
verið upptekinn við sjálfboðastörf
á vegum klúbbsins naut hann
samt flugsins út í ystu æsar. Í
mörg ár átti hann, í félagi við aðra,
flugvél sem staðsett var á flugvell-
inum á Tungubökkum og veitti
það honum mikla ánægju að snú-
ast í kringum vélina sína og fljúga,
bæði einn og með félögum sínum,
um landið.
Við kveðjum mikinn flugáhuga-
mann, ljúfmenni og góðan félaga.
Aðstandendum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Stjórn Flugklúbbs Mosfells-
bæjar.
Halldór Kr. Jónsson,
Sigurjón Valsson,
Hjörtur Þór Hauksson
og Valdimar Einarsson.
✝ Helgi Krist-mann Haralds-
son fæddist 13.
október 1933 á
Akranesi. Hann
lést 18. nóvember
2020 á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi.
Foreldrar hans
voru Haraldur
Kristmannsson, f.
2.8. 1893, d. 13.12.
1973, bifreiðastjóri á Akranesi,
og Jóna Þorleifsdóttir hús-
freyja, f. 12.5. 1897, d. 22.9.
1992.
Bróðir Helga var Þorgeir, f.
27.12. 1935, d. 21.6. 2005.
Helgi giftist Ásthildi Ein-
arsdóttur, f. 20.3. 1933, hinn
20.3. 1959. Börn þeirra eru: 1)
Haraldur, f. 10.12. 1958, dætur
hans eru Kristrún, f. 1995, og
Ásthildur Jóna, f. 1998. 2) Ein-
ar Baldvin, f. 20.7. 1960, maki
Sigríður Ása
Bjarnadóttir, f.
1964, börn þeirra
eru Baldvin, f.
1985, Ása Birna, f.
1988, og Bjarni
Kristmann, f. 1993.
3) Gerður Helga, f.
8.2. 1964, maki
Sævar Jónsson, f.
1967, synir þeirra
eru Emil Krist-
mann, f. 1990, og
Jón Helgi, f. 1998. Langafa-
börnin eru þrjú.
Útför hans fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 27. nóv-
ember 2020, kl. 13.
Vegna aðstæðna í þjóðfélag-
inu munu einungis nánustu að-
standendur verða viðstaddir.
Útförinni verður streymt á vef
Akraneskirkju,
https://www.akraneskirkja.is Virk-
an hlekk á slóð má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Faðir minn
Stolt ég stóð
og studdist þér við hönd
minn sterki faðir
sem áttir líf og lönd
og ljóma af æskufjöri
hve glöð ég var
að ganga þér við hlið
í grasi mjúku
út í sólskinið
bjart er yfir
bernsku minnar vori
(KEG)
Minning þín lifir í hjörtum
okkar.
Haraldur,
Einar Baldvin,
Gerður Helga og
tengdabörn.
Helgi Kristmann
Haraldsson
Ástkær faðir minn, sonur, bróðir, mágur og
frændi,
HJALTI HÓLMAR INDRIÐASON,
Akureyri,
lést á heimili sínu þriðjudaginn
17. nóvember. Útför hans fer fram frá
Hólaneskirkju mánudaginn 30. nóvember klukkan 15.
Vegna aðstæðna verða einungis nánasta fjölskylda og vinir
viðstödd en hægt verður að nálgast streymi á facebooksíðu
Skagastrandarprestakalls.
Indriði Theódór Hjaltason
Guðrún Angantýsdóttir
Sigurbjörg Árdís Indriðad. Björn Ingi Óskarsson
Jón Hilmar Indriðason Kristín Theódóra Hreinsdóttir
Jóhannes Heiðmar Indriðas. Margrét Björk Magnúsdóttir
og systkinabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ARNHEIÐUR DRÖFN KLAUSEN,
Strandgötu 21 a, Eskifirði,
lést þriðjudaginn 24. nóvember á
hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði.
Útför hennar fer fram frá Eskifjarðarkirkju
mánudaginn 30. nóvember klukkan 14.
Vegna aðstæðna geta aðeins nánustu aðstandendur verið
viðstaddir útförina. Athöfninni verður streymt frá facebooksíðu
Eskifjarðarkirkju.
Alrún Kristmannsdóttir Gísli Benediktsson
Herdís Kristmannsdóttir Páll S. Grétarsson
Guðrún Kristmannsdóttir Gungör Tamzok
Kristmann Kristmannsson Agnes Jóhannsdóttir
Þorgeir H. Kristmannsson Drífa Jóna Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGA HULDA EGGERTSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 23. nóvember.
Útför hennar fer fram mánudaginn 7.
desember að viðstöddum nánustu
ættingjum.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á Eir sem annaðist
hana síðustu árin.
Eggert Guðmundsson Vhian Golosino
Þorsteinn Guðmundsson
Sigurður Guðmundsson Herborg Þorgeirsdóttir
Erla Guðmundsdóttir Jón Guðmundsson
Guðmundur L. Guðmundss.
barnabörn og langömmubörn