Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
dag, úti á morgun. Elsa hélt bók-
haldið og frekari samningaviðræð-
ur hentuðu henni ekki. Föst fyrir
og ekkert fyrir að víkja frá því sem
ákveðið hafði verið. Leikirnir voru
af ýmsum toga, en yfirleitt fékk
ímyndunaraflið að njóta sín. Oft
þurfti ekki annað en hugmynd að
einhverjum leik eða uppátæki og
þá þegar var Elsa farin að útfæra
framkvæmdina af útsjónarsemi og
atorku. Við stofnuðum leynifélög,
fórum í hjólreiðatúra, bjuggum til
borgir úr hestasandinum hans
Sveins frænda, söfnuðum servíett-
um og skautuðum með rauðar
eplakinnar í norðlenskri frost-
stillu.
Við vorum heimagangar hvor
hjá annarri, alla daga, alltaf. Ég
minnist með hlýju heimilisins að
Skógargötu 22.
Rjúpurnar á snúrustaurunum
norðan við húsið koma í hugann,
sem og raðir af uppstoppuðum
fuglum í stofunni. Þá rifjast upp
ilmur af rauðri sætsúpu og lykt af
sjófugli og rjúpu í eldhúsinu hjá
Mæsu. Tengslin við náttúruna
voru Elsu í blóð borin og hún var
ekki gömul þegar hún fór á sjó-
fuglaveiðar og gekk til rjúpna með
Finna föður sínum. Að afloknum
veiðiferðunum birtist hún svo úti-
tekin, kát og glöð og við nutum
þess að drekka kókómalt og borða
ristað brauð.
Síðan tóku unglingsárin við og
við keyptum okkur eins föt og
krullujárn, lásum ástarsögur,
hlustuðum á ABBA og veltum
framtíðinni fyrir okkur.
Sú framtíð hefur nú breyst í
fortíð, sem geymir góðar minning-
ar um litríka, skemmtilega og
ákveðna vinkonu, sem sárt er að
sjá á bak.
Ég votta fjölskyldunni mína
dýpstu samúð og bið góðan Guð að
styrkja þau í sorginni.
Hjördís Stefánsdóttir.
„Mundu mig, ég man þig“ skrif-
aði Elsa í minningabók mína níu
ára. Við fráfall kærrar vinkonu er
margs að minnast, frá skólagöng-
unni á Króknum, félagslífinu og
svo frá fullorðinsárunum. Ég sat
fyrir aftan hana í skólastofunni og
horfði á sterklegan baksvipinn,
dökka, þykka og fallega hárið sem
náði langt niður bak. Maður fann
strax þá þennan andlega styrk
sem hún bjó yfir. Hún lét engan
vaða yfir sig.
Þegar Elsa flutti á Öldustíginn
þrettán ára smullum við endan-
lega saman sem bestu vinkonur.
Við áttum alltaf gott samband í
skóla og vorum báðar námfúsar og
metnaðargjarnar. Við fundum
hvatningu hvor í annarri en aldrei
neina samkeppni. Við vorum sam-
rýndar vinkonur, samferða í skól-
ann, saman eftir skóla, ræddum
lífið og tilveruna og skemmtum
okkur. Keyptum okkur oft eins
föt, ég rauðan Adidas-jakka og
hún bláan, eins fermingarkjóla;
minn var brúnn og hennar rauður.
Fórum í skátana, sungum í kór og
eignuðumst báðar kærasta á sama
tíma. Tókum þátt í að reka Opið
hús fyrir unglingana á Króknum í
Safnaðarheimilinu og þar áttum
við okkar bestu stundir í skemmti-
legum félagsskap, sáum um sjopp-
una, ryksuguðum og héldum öllu
fínu og fífluðumst hæfilega mikið.
Hlustuðum á Eagles, Supertramp
og Fleetwood Mac og líka The
Lónlí Blú Boys og Villa Vill. Þetta
var sko lífið.
Nýr kafli hófst í vinskapnum
þegar við eignuðumst stelpurnar
okkar með mánaðar millibili 1984.
Þær urðu vinkonur líka sem
okkur þótti virkilega vænt um.
Vinátta styrktist með árunum. Við
áttum líka skemmtilegar stundir í
saumaklúbbnum með æskuvin-
konunum.
Lífið var ekki alltaf auðvelt hjá
elsku Elsu minni. Hún lét mann þó
aldrei finna hve erfið lífsbaráttan
var oft hjá henni. Hún lagði mikið
á sig fyrir stelpurnar sínar, inn-
rætti þeim góð gildi, seiglu og
dugnað. Hún kvartaði aldrei.
Hvessti sig stundum en var alltaf
hjartahlý og strangheiðarleg. Hún
var svo heppin að kynnast honum
Rúnari sínum og nutu þau sín vel í
dansinum.
Elsa var einhver traustasta vin-
kona sem hægt er að hugsa sér.
Umhyggjusöm og dugleg að
rækta vinskapinn alla tíð. Hún var
heiðarleg og hófsöm, félagslynd
og glaðlynd og sýndi mikla þraut-
seigju. Þegar hún veiktist tókst
hún á við það verkefni eins og öll
önnur, af æðruleysi og metnaði
fyrir að ná árangri.
Hún lagði sig alla fram og gerði
allt rétt. Fékk dýrmætan stuðning
hjá stelpunum sínum og öllu sínu
fólki. Ranglætið sigraði þó að lok-
um sem er svo óendanlega sárt.
Við áttum dýrmætar samveru-
stundir hin síðari ár. Studdum
hvor aðra. Hinn 10. október fórum
við í okkar síðasta göngutúr við
Elliðavatn, en Elsa hafði unun af
útivist.
Áttum yndislega stund saman
og gott spjall sem ég er svo þakk-
lát fyrir. Fjórum vikum síðar var
hún kölluð frá okkur, frá yndis-
legu stelpunum sínum, dætrum og
ömmustelpunum sem voru gim-
steinarnir hennar.
Elsku Dagný og Sóley: missir
ykkar er mikill en minningin um
umhyggjusama móður ykkar
mildar vonandi sorgina. Ég votta
ykkur í fjölskyldunni og öllum að-
standendum innilega samúð.
Ég mun alltaf muna þig mín
kæra vinkona. Megir þú hvíla í
friði.
Þín vinkona,
Guðný.
Þegar ég kveð góða vinkonu
mína, hana Elsu, þá rifjast upp
margar góðar minningar og þakk-
læti. Ég þekkti Elsu frá grunn-
skóla á Sauðárkróki, en leiðir okk-
ar lágu svo aftur saman þegar við
vorum báðar fluttar til Reykjar-
víkur og vorum saman í sauma-
klúbbi. Elsa passaði alltaf upp á að
við í saumaklúbbinum hittumst
mánaðarlega og minnti okkur á
það ef einhver var að gleyma sér.
Það var alltaf gott að heimsækja
Elsu, hún var gamaldags húsmóð-
ir og átti alltaf til bakkelsi og lagði
fallega á borð. Hún var hvöss en
sanngjörn, góð og alltaf stutt í
hláturinn. Hún setti dætur sínar
alltaf í forgang í lífi sínu og lifði líf-
inu í núinu. Elsa var algjör jaxl og
upplifði maður hana aldrei veika,
sama hvað hún gekk í gegnum á
þessum síðustu árum.
Það var svo í apríl 2004 að Elsa
hélt Herbalife-kynningu fyrir
saumaklúbbinn, og var ég sú eina
sem beit á agnið. Varð Elsa því
„Herbalife-mamma“ mín. Það
gjörbreytti lífi mínu, ég var á þeim
stað í lífi mínu að ég þurfti á breyt-
ingu að halda, ég þurfti björgun,
heilsulega, andlega og líkamlega.
Elsa og Herbalife björguðu mér
og gerðu mig að þeirri manneskju
sem ég er í dag. Elsa er stór
áhrifavaldur í mínu lífi, og mikið er
ég þakklát að hafa kynnst þessu
tækifæri, en þökk sé henni hef ég
ferðast til fjölda landa og notið
lystisemda lífsins.
Minnisstæð er ferðin 2005 sem
við Elsa fórum með Herbalife til
Atlanta í Bandaríkjunum, þar
versluðum við og nutum lífsins.
Eftir að Elsa var „Herbalife-
mamma“ mín kom hún alltaf á að-
fangadag færandi hendi, eins og
jólasveinn með pakka fyrir mig,
það verður skrítið að fá engan
jólasvein til mín þetta árið.
Kæra vinkona, þakka þér fyrir
vináttuna, tækifærin og ógleym-
anlegu samverustundirnar sem
við áttum. Ég sendi foreldrum,
unnusta, dætrum, barnabörnum,
systur, mági og systursyni inni-
legar samúðarkveðjur.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Valdimar Briem)
Bergrún Ingimarsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Elsu Ester Sigurfinns-
dóttur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Smáauglýsingar 569 1100
Bækur
Bækur til sölu
Ljóðabók Jóns Þorlákssonar,
Bægisá. Alfreð Flóki, teikningar,
Um Grænland að fornu og nýju,
Árbækur Espolíns 1. - 12. útg.
Ævisaga Árna Þórarinssonar
1 - 6, Aldafar og örnefni í
Önundarfirði, Gestur Vest-
firðingur 1 - 5, Stjórnartíðindi
1885 til 2000, 130. bindi, Mann-
talið 1703. Kollsvíkurætt, Ponzi
18. og 19. öldin, Fjallamenn,
Hæstaréttardómar 1920 - 1960,
40. bindi, Þjóðsögur Jóns Árna-
sonar. Kvennablaðið 1. - 4. ár,
Bríet 1895, Ódáðahraun 1 - 3,
Fritzner orðabók 1 - 4, Flateyjar-
bók 1 - 4, Ferðabók Eggerts og
Bjarna 1981, Íslenskir Sjávar-
hættir 1 - 5, Sýslumannaævir
1 - 5, Tímrit Verkfræðinga Íslands
1 - 20 ár, Tímarit hins íslenska
Bókmenntafélags 1 - 25,
Ársskýrsla sambands íslenskra
Rafveitnaa 1942 - 1963. Hín
1. - 44. árg., Skýrsla um Lands-
hagi á Íslandi 1 - 5, Töllatungu-
ætt 1 - 4, Síðasti musterisridd-
arinn Parceval, Austantórur 1 - 3,
Kerling vill hafa nokkuð fyrir
snúð sinn, Nína, Ferðabók Þ. TH.,
1- 4, önnur útgáfa. Fólkð í firði-
num 1 - 3, Ættir Austfirðinga
1 - 9, Heimsmeistaraeinvígið í
skák 1972, Landfræðisaga
Íslands 1 - 4, Lýsing Íslands 1 - 4,
plús minn-ingarbók Þ. HT.,
Almanak hins Íslenska Bók-
menntafélags 1875 - 2006, 33.
bindi, Inn til fjalla 1 - 3, Fremra
Hálsætt 1- 2, Kirkjuritið 1. - 23.
árg., Bergsætt 1 - 3, V-Skafeftell-
ingar 1 - 4.
Uppl. í síma 898 9475
Hljóðfæri
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27
Sími 552 2125
www.gitarinn.is
Mikið úrval
Hljómborð
á tilboði
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27
Sími 552 2125
www.gitarinn.is
Gítarar og
hljómborð
í miklu úrvali
erð við allra h Kassagítarar
á tilboði
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
St. 36 - 48
Verð 8.900
Verð 9500
netverslun gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
netverslun gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Bílar
Black Friday
LAND ROVER Range Rover Sport
Hse Black Pack. Árgerð 2015, ekinn
114 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 8 gírar.
Verð 7.850.000. Rnr.224768.
Black Friday
VOLVO Xc40 T5 plug in hybrid.
Árgerð 2020, ekinn -1 KM, bensín
rafmagn, sjálfskiptur 7 gírar.
Verð 7.490.000. Rnr.225855.
Black Friday
LAND ROVER Range Rover Evoque
R-Dynamic. Árgerð 2020, ekinn 11
Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 9 gírar.
Verð 8.990.000. Rnr.120716.
Black Friday
VOLVO S90 T8 Twin Engine
R-Design. Árgerð 2020, ekinn 0
Þ.KM, bensín-rafmagn, sjálfskiptur 8
gírar. Verð 10.490.000. Rnr.214967.
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma 577-4747
Black Friday tilboð á nýum 2020
Mitsubishi Outlander
Í svörtum lit. Vetrardekk og mottusett
fylgir. Langt undir tilboðsverði
umboðsins á 5.690.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Til sölu Mercedes Benz S320 árg.
2000 ekinn aðeins 168 þús. Innfluttur
nýr af Ræsi. Þjónustubók frá upphafi.
Nýsmurður og skoðaður án athuga-
semda. Góð vetrardekk fylgja á
felgum. Verð 790 þús. Skoða skipti.
Uppl. Í síma 696-1000.
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100