Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Óska eftir að ráða til starfa
YFIRMATRÁÐ
Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd óskar eftir að
ráða yfirmatráð í 70-100% starf.
Um er að ræða vaktavinnu en hægt er að semja um
vaktatilhögun og lengd vakta.
Reynsla af starfi með öldruðum er kostur. Mikilvægt er
að viðkomandi hafi áhuga, frumkvæði, samstarfsvilja,
sveiganleika og hæfni í mannlegum samskiptum.
Yfirmatráður hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um
matseld (heitan mat) og bakstur, skipuleggur matseðla
allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á mat-
vörum, áhöldum og tækjum. Hefur umsjón með þrifum.
Gerð er krafa um reynslu á þessu sviði.
Laun samkvæmt kjarasamningum Sambands Íslenskra
sveitarfélaga og Kjalar (BSRB)
Umsóknarfrestur er til 10.12.2020.
Allar upplýsingar veitir Jökulrós Grímsdóttir hjúkrunar-
forstjóri í síma 848-1801 eða Eydís Inga Sigurjónsdóttir
afleysing hjúkrunarforstjóra í síma 867-1088 eða í
tölvupósti á saeborg@simnet.is
VERKEFNA-
STJÓRI
SKINNEY ÞINGANES
Krossey / 780 Hornafjörður / 470 8100 / www.sth.is
Verkefnastjóri á skrifstofu Skinney-Þinganes hf
Skinney – Þinganes óskar eftir að ráða verkefnastjóra
í fullt starf á Höfn í Hornafirði. Leitað er eftir skipu-
lögðum einstaklingi sem á auðvelt með að vinna sjálf-
stætt en jafnframt eiga auðvelt með að vinna í hóp.
Reynsla og þekking í mannauðsmálum er æskileg og
háskólapróf áskilið. Lögfræðimenntun er kostur.
Helstu verkefnin eru:
– Samningamál
– Mannauðsmál
– Öryggismál
– Staðlamál
– Ýmis tilfallandi verkefni
Umsóknun skal skilað til Aðalsteins Ingólfssonar,
forstjóra, á adalsteinn@sth.is fyrir 11. desember nk.
Frekari upplýsingar er hægt að fá í síma 892 3432
(Aðalsteinn) eða 699 6103 (Guðrún).
Skinney-Þinganes hf. rekur fjölbreytta útgerð og vinnslu á
sjávarafurðum á Höfn og í Þorlákshöfn. Félagið flytur mest af
afurðum sínum út sjálft, ýmist beint frá fyrirtækinu sjálfu eða í
gegnum dótturfélag þess. Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 300
manns. Skip og vinnslur eru vel tækjum búnar og fyrirtækið býr
að stórum hópi góðra starfsmanna.Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun. Gerð er krafa um meistaragráðu
en doktorsgráða er kostur
• Reynsla og þekking á háskólaumhverfinu á Íslandi
æskileg
• Kennslufræðileg menntun æskileg
• Reynsla af verkefnastjórn
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Gott vald á íslensku og ensku
• Þekking á upplýsingatækni vegna kennslu kostur
• Góð samskiptahæfni
• Reynsla af styrktarumsóknum kostur
Umsóknarferli
Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. janúar 2021.
Skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá (CV) og staðfest
afrit af prófskírteinum.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum
tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur
verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum
umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af
jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/
haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér:
https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_is-
lands.
Nánari upplýsingar veitir
Róbert H. Haraldsson - robhar@hi.is - 525 4277
Stofnun rannsóknasetra HÍ
Laust er til umsóknar 50% starf verkefnastjóra kennsluakademíu opinberu háskólanna hjá kennslusviði
Háskóla Íslands.
Kennsluakademía opinberu háskólanna er vettvangur að norrænni fyrirmynd sem ætlað er að stuðla að
kennsluþróun í íslensku háskólasamfélagi (sjá www.kennsluakademia.hi.is).
Verkefnastjóri er tengiliður við opinberu háskólanna og sinnir stefnumótun og daglegum störfum kennslu-
akademíunnar í samráði við stjórn kennsluakademíunnar. Störfin felast meðal annars í skipulagi funda,
námskeiða og annarra viðburða á vegum kennsluakademíunnar. Þá hefur verkefnastjóri það hlutverk að
halda utan um umsóknir og inntöku í kennsluakademíuna og sinna almennri kynningu og útgáfu efnis um
kennsluþróun á vegum akademíunnar. Einnig mun verkefnastjórinn vinna í öflun styrkja og taka þátt í inn-
lendu og erlendu samstarfi um kennsluþróun. Verkefnastjóri hefur aðstöðu í Setbergi Húsi kennslunnar.
VERKEFNASTJÓRI
kennsluakademíu opinberu háskólanna
Forsetaritari stýrir embætti forseta Íslands undir yfirstjórn
forseta. Hann stýrir fjármálum, mannauði og daglegum
störfum á skrifstofu forseta og Bessastöðum. Forseta-
ritari annast fyrir hönd embættisins samskipti við Alþingi,
ráðuneyti, fjölmiðla og sendiherra erlendra ríkja.
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun
sem nýtist í starfi, búi yfir fjölþættri reynslu af stjórnun,
störfum á alþjóðavettvangi, mannauðsstjórnun og
stefnumótun, leiðtogahæfni og færni í mannlegum
samskiptum. Staðgóð þekking á íslenskri stjórnskipun
og stjórnsýslu er einnig æskileg. Þá skulu umsækjendur
hafa afar gott vald á íslenskri og enskri tungu í ræðu og
riti, auk færni í a.m.k. einu öðru Norðurlandamáli.
Um er að ræða fullt starf. Um laun forsetaritara fer eftir
39. gr. í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkis-
ins, nr. 70/1996. Skipað verður í embættið til fimm ára,
sbr. 23. gr. sömu laga. Með umsókn skal fylgja starfs-
ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðum umsóknar og því hvernig umsækjandi uppfyllir
hæfniskröfur. Við það er miðað að nýr forsetaritari hefji
störf 1. mars 2021. Umsóknum skal skila til embættis
forseta Íslands, Sóleyjargötu 1, 101 Reykjavík, merktum
„Forsetaritari“, ekki síðar en 15. desember 2020. Einnig
má senda þær rafrænt á netfangið umsokn@forseti.is.
Nánari upplýsingar um embætti forseta Íslands má finna
á vefsetri þess, www.forseti.is.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um
ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Örnólfur Thorsson forsetaritari í
síma 540-4400.
FORSETARITARI
Laust er til umsóknar embætti forsetaritara
intellecta.is