Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Kaupmenn á Akureyri bera sig ágæt-
lega enda hefur verslun almennt ver-
ið með ágætum á árinu, landsmenn
lítið verið á faraldsfæti til útlanda og
beint viðskiptum sínum í heima-
byggð. Það virðist ágætis gróska í
verslun í höfuðstað Norðurlands,
unnið er við nýjan verslunarkjarna í
norðanverðum bænum þar sem
Sjafnarhúsið stóð áður og þangað
flytur m.a. Rúmfatalagerinn af Gler-
ártorgi næsta haust.
„Það er ánægjulegt að upplifa
hversu mikill áhugi er fyrir Glerár-
torgi, það er töluvert um fyrirspurnir
hjá áhugasömum sem vilja endilega
koma með sína verslun eða rekstur
þar inn,“ segir Davíð Rúnar Gunn-
arsson, markaðsstjóri Glerártorgs.
Eins og gengur séu alltaf breytingar í
gangi á svo stórum stað. Rúmfata-
lagerinn flytur sína verslun næsta
haust og segir hann marga hafa sýnt
plássinu áhuga.
Heilsuhúsið flytur sína starfsemi af
Glerártorgi, þá hefur Subway verið
lokað þar og Kaffi Torg hætt rekstri.
Nýr pítsustaður, Pizzan.is, verður
opnaður á Glerártorgi innan skamms,
en fyrir rekur félagið sjö samskonar
staði á höfuðborgarsvæðinu. Nýtt
kaffihús verður einnig opnað á Gler-
ártorgi í mars á næsta ári. Þeir sem
reka það kaffihús ætla þó að taka æf-
ingu og hafa opið í desember í plássi
Kaffi Torgs.
Jöfn og góð umferð
„Kaupmenn bera sig vel, verslun
innanlands hefur verið með mesta
móti í ár enda fáir sem leggja leið sína
til útlanda á tímum kórónuveirunnar.
Við beinum því til gesta okkar að
velja sér tíma til að versla utan helsta
álagstíma en heilt yfir hefur gengið
vel að uppfylla takmarkanir vegna
samkomutakmarkana. Við bíðum
eins og aðrir eftir því hvort nýjar
reglur líti dagsins ljós eftir helgi og
þá hvort hægt verði að hleypa fleirum
inn í einu,“ segir Davíð Rúnar, en um
helgina verður svonefndur „svartur
föstudagur“ í gangi á Glerártorgi og í
boði verður ókeypis heimsending
fram á mánudag fyrir þá sem versla
gegnum netið.
Hafa aukið úrval og þjónustu
Þórhallur Jónsson, formaður Mið-
bæjarsamtaka Akureyrar og kaup-
maður í Pedro, segir flesta kaupmenn
hafa orðið vara við aukna netverslun í
því ástandi sem ríkt hefur undanfarið
með 10 manna takmörkum vegna
kórónuveirufaraldurs. Flestir hafi
brugðist við því og aukið úrval og
þjónustu í tengslum við netverslun.
„Menn eru fljótir að laga sig að
nýju umhverfi, þetta er veruleikinn
sem við búum við og þá er að finna
lausnir. Það dró verulega úr umferð
eftir að hámarkið var sett á 10 manns,
en nú auðvitað vonum við að ein-
hverjar tilslakanir verði þannig að
jólaverslun verði aðeins eðlilegri á ný
og fólk sjáist aðeins á ferðinni,“ segir
Þórhallur. Miðbæjarsamtökin hafi
gert sitt til að auka á stemninguna,
skreytt snemma og aukið heldur í
þannig að miðbær Akureyrar skarti
sínu fegursta.
Hann segir samtökin hafa unnið í
því að styrkja miðbæinn og hafi til að
mynda vel tekist upp á liðnu sumri
þegar fjöldi innlendra ferðamanna
lagði leið sína í höfuðstað Norður-
lands. „Landsmenn náðu að vega að-
eins upp í gapið sem brotthvarf er-
lendra ferðamanna skildi eftir sig, en
þeir hafa undanfarin ár verið fyrir-
ferðarmiklir í verslunum bæjarins,“
segir Þórhallur.
Hann nefnir einnig að fólk sé meira
heima við en áður og harla fáir fari til
útlanda þannig að meira sé fyrir vikið
verslað innanlands. „Fólk er mikið að
endurnýja, það er fínasta sala í
stórum húsgögnum eins og rúmum
og sófum og öðru álíka. Hjá okkur
sést aukin tiltekt heima við í meiri
rammasölu en áður, það er augljóst
að fólk er að gera fínt heima hjá sér
og það hefur áhrif á verslun.“
Verslun heima
Þórhallur segir að öllum sé ljóst að
verslun í heimabyggð styrki nær-
umhverfið og skipti verulegu máli.
„Verslun heima skapar störf og eyk-
ur tekjur í okkar nánasta umhverfi,“
segir hann og bætir við að betri sam-
göngur hafi líka jákvæð áhrif, hreyf-
anleiki fólks í allar áttir verði meiri
þegar samgöngur séu ekki fyrirstaða.
„Við tókum eftir aukinni umferð til
okkar að austan eftir að Vaðlaheið-
argöng voru tekin í notkun og al-
mennt er fólk líka í auknum mæli að
sækja Akureyri heim vestan að, úr
Skagafirði og Húnavatnssýslum,“
segir Þórhallur.
Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir
Glerártorg Kaupmenn á Akureyri segja jólaverslun almennt ganga mjög vel en hún hafi mikið færst út á netið.
Kaupmenn fljótir að aðlag-
ast breyttum aðstæðum
Akureyri komin í jólabúning Netverslun hefur aukist
Verslun Ný starfsstétt teljara hefur
rutt sér til rúms. Þessi vann verk
sitt við Rúmfatalagerinn.
Alls greindust 11 kórónuveirusmit
innanlands í fyrradag. Einungis þrír
voru í sóttkví við greiningu eða
27,27%. Þá fjölgaði einstaklingum í
sóttkví mikið milli daga, fóru úr 291 í
446 milli daga.
Ekki hafa eins margir greinst ut-
an sóttkvíar í nokkrar vikur. Að sögn
Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis
er það áhyggjuefni. Þá séu vísbend-
ingar um að faraldurinn kunni að
vera á uppleið að nýju eftir mikla
fjölgun illrekjanlegra samfélags-
smita síðustu daga. Bendir hann á að
gögn vísindamanna Háskóla Íslands
sýni að smitstuðullinn, sem gefur
vísbendingar um smit í samfélaginu,
gæti farið upp á við.
Í gærkvöldi skilaði sóttvarna-
læknir nýjum tillögum til Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
um framhald sóttvarnaaðgerða frá
og með 2. desember. Núgildandi
reglugerð um samkomutakmarkanir
rennur út þriðjudaginn 1. desember
en fyrir þann tíma þarf heilbrigðis-
ráðherra að gefa út nýja reglugerð.
Óljóst hvað felst í tillögum
Aðspurður kvaðst Þórólfur ekki
geta gefið upp í hverju tillögur hans
fólust. Þá sé ekki tímabært að gefa
neinar vísbendingar um hvort létt
verði á takmörkunum. Sagði hann
mikið ákall um afléttingu á sama
tíma og merki væri um að farald-
urinn væri aftur í vexti.
Að sögn Þórólfs kemur jafnframt
vel til greina að endurskoða um-
ræddar tillögur fari svo að útbreiðsla
veirunnar haldi áfram af sama krafti
um samfélagið.
Nýgengi innanlands:
32,5 nýtt smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
11 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring
100
80
60
40
20
0
166 eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september október nóvember
Fjöldi inn an lands-
smita frá 30. júní
H
ei
m
ild
: c
ov
id
.is
75
1116
99
86
Faraldur í vexti
Sóttvarnalæknir skilaði inn tillögum
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM ALLA HELGINA
KÓÐI Í VEFVERSLUN:
SVARTUR
SMÁRATORGI KRINGLAN GLERÁRTORGI LINDESIGN.IS