Morgunblaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fjármálaráðherra óskar eftir heim-
ild í fjáraukalögum til að kaupa
húsnæði Hótels Gígs á Skútustöð-
um við Mývatn fyrir opinbera starf-
semi. Þar er einkum verið að ræða
um gestastofu Vatnajökulsþjóð-
garðs en einnig aðra opinbera starf-
semi og þekkingar- og nýsköpunar-
garða á vegum Skútustaðahrepps.
Gert er ráð fyrir því í lögum um
Vatnajökulsþjóðgarð að megin-
starfsstöðvar þjóðgarðsins skuli
staðsettar í Ásbyrgi, Mývatnssveit,
Skriðuklaustri, Hornafirði, Skafta-
felli og Kirkjubæjarklaustri. Fram-
kvæmdir eru hafnar við gestastofu
á Kirkjubæjarklaustri og er Mý-
vatnssveit þá eini staðurinn sem
eftir er að sinna.
Einstök staðsetning
Umhverfisráðuneytið hefur haft
augastað á Hótel Gíg á Skútustöð-
um. Það er í eigu KEA-hótela og
hefur verið til sölu. Upphaflega er
húsnæðið gamall grunnskóli,
Skútustaðaskóli, en þar hefur verið
rekið hótel undir ýmsum nöfnum í
rúma tvo áratugi.
Ráðuneytið óskar eftir að fá að
hefja viðræður um kaup á húsinu
vegna þess að hagkvæmara og fljót-
legra er að kaupa notað húsnæði en
byggja frá grunni og ekki síst
vegna staðsetningar hússins á
bakka Mývatns. Ljóst er að aldrei
fengist leyfi til að byggja nýtt hús á
slíkum stað við Mývatn. Auk vatns-
ins eru Skútustaðagígar í næsta ná-
grenni hótelsins.
Húsið er 1.300 fermetrar að
stærð og fyrir liggur að leggja þarf
í verulegan kostnað við umhverfis-
væna fráveitu, samkvæmt því kerfi
sem nú er notað í Mývatnssveit. Þá
þarf vitaskuld að laga húsnæðið að
nýrri notkun.
Auk gestastofu fyrir Vatnajök-
ulsþjóðgarð er hugsað til Miðhá-
lendisþjóðgarðs, að hann geti feng-
ið aðstöðu þar ef lög um stofnun
hans verða samþykkt. Til viðbótar
væri hægt að nýta eignina undir
aðra starfsemi hins opinbera á
svæðinu.
Vilja leigja húsnæði
Skútustaðahreppur hefur áhuga
á að taka þátt í verkefninu, ef af
kaupum ríkisins verður, leigja hluta
húsnæðisins. Sveinn Margeirsson
sveitarstjóri segir að í fjárhags-
áætlun sveitarfélagsins séu teknar
til hliðar 25 milljónir kr. til að fjár-
festa í þróun húsnæðisins. Tekur
hann fram að frekari fjárfestingar
muni þurfa að byggjast á lántökum.
Hreppurinn hefur áhuga á koma
þar upp þekkingar- og nýsköpunar-
görðum. Segir Sveinn að töluvert sé
af hugmyndum í samfélaginu og hjá
utanaðkomandi og þurfi húspláss til
að vinna að þeim. Telur hann að
þetta geti skapað sóknarfæri fyrir
svæðið til framtíðar.
Einnig bindur hann vonir við að
ýmsar stofnanir ríkisins sem þjóna
samfélaginu geti fengið þar að-
stöðu. Slíkt klasasamstarf geti
skapað samlegðarmöguleika og bú-
ið til meiri verðmæti á svæðinu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Skútustaðagígar Gervigígarnir á Skútustöðum eru vinsæll áningarstaður ferðafólks, skammt frá Hótel Gíg.
Á bakka Mývatns
Ríkið vill kaupa Hótel Gíg á Skútustöðum fyrir gestastofu
Vatnajökulsþjóðgarðs Hreppurinn áformar þekkingargarða
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni hug-
myndir sem fyrir liggja um að flytja
starfsemi Bókasafns Hafnarfjarðar í
nýtt hús, sem
reist verður á lóð-
inni Strandgötu
26-30. Skrifað
verður undir sam-
komulag milli 220
Fjarðar og
Hafnarfjarðar-
bæjar sem bygg-
ist á hugmyndum
220 Fjarðar um
að reisa allt að
6.000 m² nýbygg-
ingu sem tengist húsnæði versl-
unarmiðstöðvarinnar Fjarðar. Gert
er ráð fyrir að framkvæmdir við ný-
bygginguna hefjist strax á nýju ári
og Hafnarfjarðarbær fái afhent
1.200-1.500 fermetra húsnæði fyrir
bókasafnið eftir um þrjú ár.
„Bókasafn Hafnarfjarðar hefur
þróast í það að vera menningarhús
sem býður upp á fjölbreytta viðburði
og þjónustu samhliða útlánum á
safnkosti. Núverandi húsnæði stend-
ur frekari þróun og eflingu fyrir þrif-
um og því mikilvægt og á sama tíma
afar spennandi skref sem sveitarfé-
lagið er að taka með þessari ákvörð-
un,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Kaffihús og saumavélar
Að sögn Árdísar Ármannsdóttur,
samskiptastjóra Hafnarfjarðar-
bæjar, hefur lengi legið fyrir að
breytinga væri þörf í húsnæðis-
málum bókasafnsins. Nú er safnið á
horni Strandgötu og Reykjavíkur-
vegar, á fjórum hæðum og sjö pöllum
og þykir óhentugt. Árlega koma á
bókasafnið allt að 125.000 gestir á öll-
um aldri en húsakosturinn þykir ekki
bjóða upp á svigrúm til að breyta
miklu.
Í þjónustukönnun sem gerð var
nýlega komu fram óskir um til dæm-
is kaffihús, leiksvæði, þægilegar
setustofur og lengri afgreiðslutíma.
Slíkt ætti hins vegar að vera hægt í
nýju safnhúsi sem verður á einni
hæð. Þar verður meðal annars fjöl-
notasalur – og sé horft til safna ann-
ars staðar á Norðurlöndunum bjóðist
gestum þar afnot af tækjum og tólum
og aðstaða eins og þrívíddarprent-
arar og vínilskerar, saumavélar og
upptökuaðstaða, svo eitthvað sé
nefnt, segir Árdís. sbs@mbl.is
Hafnarfjarðarsafn fer
senn í ný húsakynni
Mikilvægt
menningarhús
í miðbænum
Sviðsmynd Skissa að framhlið nýs bókasafnshúss sem verður reist við
Strandgötuna í Hafnarfirði á lóð sem nú stendur auð. Fleira verður í húsinu.
Rósa
Guðbjartsdóttir
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG
PÍPARA?
Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
– Laugavegi 34 og Ármúli 11
• Hagkaup – Reykjavík, Garðabær,
Selfoss og Akureyri
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Ármúli 27
• Karlmenn – Laugavegi 87
• Vinnufatabúðin – Laugavegi 76
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstangi
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
• Verslun Haraldar Júlíussonar – Sauðárkróki
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Blossi – Grundarfirði
• Verslun Bjarna Eiríkssonar – Bolungarvík
• Verslun Grétars Þórarinssonar – Vestmannaeyjum
• Sentrum - Egilsstöðum
Útsölustaðir:
Tilvalin
jólagjöf
Falleg, hlý og
kærleiksrík
Dýrmætar minningar
um dýrmætar
manneskjur www.salka.is