Studia Islandica - 01.06.1970, Side 49

Studia Islandica - 01.06.1970, Side 49
47 Aðfararsagan er allt of löng, nær yfir tvo fyrstu þættina. Afstaða persónanna hverrar til annarrar er því framan af mjög óljós. Aðalpersónan, Hekla, birtist eldd fyrr en seint í öðrum þætti og án þess að hennar hafi verið getið að nokkru ráði áður. Versti gallinn á byggingu verksins er þó sá, að persónurnar eru sífelldlega að tala um hið sama og virð- ast óþreytandi í að segja hver annarri frá sömu atburðun- um. Gætir þessa til enn meiri muna en áður í Höddu Pöddu, og hefði þó mátt vænta hins gagnstæða. Benda má á samtöl þeirra Svafars og Hrólfs í upphafi fyrsta og annars þáttar. í þriðja og fjórða þætti heyra áhorfendur fjórum sinnum sagt frá bónorði Heklu, eftir að hafa einu sinni orðið vitni að því: Hrólfur: .. . Hún ætlaði að sjá um, að pahhi yrði náð- aður, ef ég vildi heita henni eiginorði. Því gat ég ekki játað .. . Þetta er vitskert, glæpsamleg krafa (99). Hrölfur: ... Hún kom og játaði fyrir mér ást sína .. . Ef ég gæti endurgoldið hana, þá ætlaði hún að sjá um að faðir minn kæmist úr fangelsinu (100). Hrólfur: . . . Hún ætlaði að sjá um að pabbi kæmist úr fangelsinu - ef ég vildi heita henni eiginorði (109). Ingibjörg: .. . Hún sagði, að hún skyldi sjá um, að hann yrði náðaður - ef Hrólfur vildi heita sér eig- inorði (132). Þessi örlagaþrungni atburður, sem vitnað er til, hefur tæp- lega getað farið fram hjá áhorfendum, þegar hann gerðist, eða skilyrði Heklu farið milli mála: „Segið þér unnustu yðar upp og geíið mér hjarta yðar. Þá skal faðir yðar sleppa úr fangelsinu og alt jafna sig“ (95). Raunar ætti þetta tilsvar betur heima i gamanleik, en það er önnur saga. Á líkan hátt ofskýrir höfundur gerðir Ingibjargar á Lögbergi og afleið- ingar þeirra (shr. 75-76, 101, 123, 130, 137-138, 140). I Konungsglímunni ægir reyfarakenndum efnisatriðum eins og ofsóknum Sveins Pálssonar og morðinu á homun saman við rómantísk atriði eins og fóstbræðralag, álfadans og glímu á Þingvöllum. Fátt er frumlegt. Atriðið á Lögbergi,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.