Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Page 7
I. KAFLI.
TILRAUN í PÉTURSEYOG GUNNARSHOLTI 1952
1. RANNSÓKNAREFNI OG AÐFERÐIR.
í þessa tilraun voru notuð 60 lömb, jafnmörg af hvoru kyni, í Pétursey
í Mýrdal. Féð hafði gengið í heimaliögum yfir sumarið. Beitilandið er að
miklu leyti valllendi og í því nokkuð af villtum smára. Verður það að teljast
sæmilega kjarngott, en hagþrengsli munu valda því, að dilkar ná þar sjaldan
miklum þunga.
Tilraunin hófst 28. ágúst og var lokið 15. október. Þann 28. ágúst voru
lömbin ÖII vegin og merkt einstaklingsmerki í eyru. Var þeim skipt í þrjá
jafna flokka eftir þunga og kyni, og voru 10 hrútar og 10 gimbrar í hverjum
flokki.
Við flokkaskiptinguna var hrútunum raðað í 10 samstæður, þannig að þrír
hrútar, sem jafnastir að þyngd, voru í hverri samstæðu, og var gimbrunum
raðað í samstæður á hliðstæðan hátt. Var svo eitt lamb úr hverri samstæðu
tekið í hvern flokk, þannig að meðalþungi hrútanna annars vegar og gimbr-
anna hins vegar yrði sem allra líkastur í hverjum flokki. Við þessa skiptingu
var eingöngu stuðzt við númer, þunga á fæti og kyn lambanna, og var síðan
dregið um, hvaða bókstafsheiti hver flokkur skyldi fá.
Flokkarnir voru nefndir A, B og C. Lömbunum í A-flokki var sleppt með
mæðrum sínum á úthaga i Pétursey, og gengu þar með þeim til 15. október.
L.ömbin í B-flokki voru tekin undan mæðrum sínum og flutt að Gunnarsholti
á Rangárvöllum og beitt þar á há þar til 15. október. Þann dag voru lömbin
í báðum þessum flokkum vegin á fæti og þeim slátrað daginn eftir. Lömbun-
um í C-flokki var slátrað 29. ágúst til þess að sjá, á hvaða þroskastigi lömbin
væru, er tilraunin hófst.
Við slátrun var fall sérvegið af hverju lambi og metið gæðamati. Mör úr
hverjum flokki, netja og nýrnamör, var veginn í heild, en gæruþungi var
reiknaður í hlutfalli við kjöt, eins og venja er hjá Sláturfélagi Suðurlands.
Lagt hefur verið stærðfræðilegt mat á niðurstöður tilraunarinnar. Notuð
var rannsókn frávika með tveggja þátta röðun (Snedecor, 1950).
Z. NIÐURSTÖBUR TILRAUNARINNAR,
a. Áhrif á þunga á fæti.
Meðalþungi hrúta á fæti annars vegar og gimbra hins vegar og allra lamb-
anna í hvcrjum flokki við byrjun tilraunar og við slátrun er gefinn í töflu 1.