Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Blaðsíða 17
15
vegar ekki raunhæfur. Þessar niðurstöður sýna, að lömbin, sem gengu á út-
haga með mæðrum sínum, hafa fitnað svo mikið á tilraunaskeiðinu, að föll
þeirra hafa batnað mikið í útliti.
e. Áhrif á mör og gæru.
Meðalmörþungi lamba, netja og nýrnamör, í flokknum var sem hér segir:
A-flokki 1.20 kg, B-il. 1.05 kg og C-fl. 1.02 kg. Sýnir þetta, að A-flokkslömbin
hafa aðeins bætt 0.18 kg að meðaltali við mörþunga á tilraunaskeiðinu en
B-ílokkslömbin því nær engu.
Reiknaður nreðalgæruþungi lambanna í flokknum eftir stafrófsröð er þessi:
2.90 kg, 2.74 kg og 2.51 kg.
3. HELZTU NIÐURSTÖÐUR.
1. Tilraun var gerð með að fita lömb á há í Norður-Hjáleigu í Álftavers-
hreppi í 32 daga frá 1. september til 3. okt. 1952. I tilraunina voru notuð 60
Jömb, 36 hrútar og 24 gimbrar, er skipt var í þrjá jafna flokka, A, B og C,
eftir þunga á fæti og kyni. Lömbunum í C-flokki var slátrað 2. sept. til að
linna afurðamagn flokkanna í byrjun tilraunar. Lömbin í B-flokki voru
tekin undan mæðrum sínum og beitt á tún (há), en lömbin í A-flokki gengu
með mæðrum sínum á útjörð. Lömbunum í A- og B-flokki var slátrað 4. okt.
2. Er tilraunin hófst vógu lömbin í A- og C-flokki 29.70 kg, en í B-flokki
29.62 kg að meðaltali. Afurðir lambanna vógu að meðaltali: í C-flokki fall
12.54 kg, mör 1.02 kg og gæra 2.51 kg, í A-fl. fall 14.50 kg, mör 1.20 kg og
gæra 2.90 kg, en í B-fl. fall 13.70 kg, mör 1.05 kg og gæra 2.74 kg. Meðalafurða-
aukning lambanna, sem gengu á útjörð með mæðrum sínum (A-fl.), varð 2.67
kg og lambanna, sem gengu móðurlaus á túni (B-fl.), 1.53 kg, er sýnir, að
lömbin þrifust verr móðurlaus á há en með mæðrum sínum á útjörð, enda
var túnbeitin ófullnægjandi og léleg, en gróður féll seint í úthaga.