Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Page 62

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Page 62
X. KAFLI. TILRAUN Á HESTI I95S 1. KANNSÓKNAREFNI OG AÐFERÐIR. í þessa tilraun voru notuð 80 lömb, jafnmörg af hvoru kyni, eign Hests- búsins, þau rýrustu, sem ekki voru bundin í öðrum tilraunum og komin voru í heimaland 15. september, er tilraunin lrófst. Tilraunin stóð í 36 daga, eða til 21. október. Þann 15. september var lömbunum skipt í 4 jafna flokka eftir þunga á fæti, kyni og ætterni á sama hátt og lýst er í kafla I og kafla VIII. Flokkarnir voru nefndir A, B, C og D. Lömbin í A-flokki voru höfð með mæðrum sínum í úthaga allt tilrauna- skeiðið. Á sama tíma voru lömbin í B-flokki höfð móðurlaus á fóðurkáli, lömb- in í C-flokki móðurlaus á fyrsta árs nýrækt, og lömbunum í D-flokki var slátr- að 16. september, til þess að fá vitneskju um, hve mikið tilraunalömbin legðu sig, er tilraunin hófst. Fóðurkálið var á 1.0 ha spildu, og var því ekki sáð fyrr en 10. júní. Vegna þurrka og kulda spratt það illa. Með fóðurkálinu var afgirt mýrarspilda, 0.7 ha að stærð. Því miður reyndist fóðurkálið of litið handa B-flokkslömbunum, og einnig mun óræktaða landið hafa verið of lítið, því að þann 8. október, eða 13 dögum áður en tilrauninni lauk, var allt fóðurkálið uppétið og órækt- aða landið, sem B-flokkslömbin höfðu aðgang að, einnig uppbitið og troðið. F.kki var hægt að koma því við að slátra tilraunalömbunum þá, og var því gripið til þess ráðs að sleppa kállömbunum á há, sem þá var því miður bæði bitin og tröðkuð af öðru fé. Þetta hafði tvímælalaust skaðleg áhrif á framför kállambanna, eins og kemur í ljós í niðurstöðum tilraunarinnar hér á eftir. Þeim virtist fara vel að, meðan kálið entist, en Jiau munu jafnvel liafa lagt af, eftir að þau komu á hána. Þann 21. október voru tilraunalömbin vegin á fæti og þeim öllum slátrað næsta dag. 2. NIÐURSTÖÐUR TILR AUNARINNAR. a. Áhrif á þunga á fæti. Meðalþungi lambanna á fæti í öllum flokkum, fyrir hvort kvn sér og bæði kyn sameiginlega í byrjun tilraunar og við slátrun, er gefinn í töflu 50i, en þyngdaraukning á fæti fyrir hvort kyn sér og bæði kvn sameiginlega í hverjum flokki er gefin í ii-lið sömu töflu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.