Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Page 86
XIV. KAFLI.
TILRAUN Á HESTI 1959
1. RANNSÓKN AREFNI OG AÐFERÐIR.
í þessa tilraun voru notuð 120 lömb, jafnmörg af hvoru kyni, eign Hests-
búsins. Tilraunin hófst 31. ágúst. Þá voru lömbin vegin og þeim skipt í 6
jafna flokka eftir þunga á fæti, kyni og ætterni, á sama hátt og lýst er í kafla
I og kafla VIII. Flokkarnir voru nefndir A, B, C, D, E og F.
Markmiðið með tilraun þessari var að bera saman, hvort betri raun gæfi
að heita lömbum að haustinu á fóðurkál eða á blandað grænfóður, þ. e. fóð-
urkál, raps, næpur og nýræktargras, og einnig, hvort betri árangur næðist
með því að beita lömbunum um mánaðarskeið á kál eða lengur, allt að 7
vikum. Þá var einnig rannsakað, hvort ávinningur væri að nota hormón,
stilbestrol, handa lömbum á þessu aldursskeiði, en hormón þessi hefur mikið
verið notaður erlendis með góðum árangri, til þess að örva vöxt vel alinna
sláturdýra.
Með tilliti til þessa var meðferð flokkanna sem hér segir: Lömbin í A-fl.
voru liöfð með mæðrum sínum á úthaga, þar til þeim var slátrað. Lömbin í B-
fl. voru höfð móðurlaus á fóðurkáli á sama tíma. Lömbin í C-il. voru einnig
höfð móðurlaus á blönduðu grænfóðri sama tíma. Lömbunum í þessum þrem
flokkum var slátrað 3. október. Lömbin í D-fl. voru höfð móðurlaus á fóður-
káli frá 31. ágúst til 21. október, er þeim var slátrað. Sett var undir húð á eyra
þeirra 3 mg af stilbestrol. Eyrað var skorið af hausum þessara lamba eftir ;ið
þeim var slátrað. Lömbin í E-fl. voru móðurlaus á káli sama tíma. Lömbun-
um í F-flokki var slátrað 1. september, til þess að ganga úr skugga um, hvernig
tilraunalömbin legðu sig, er tilraunin hófst. Samanburður á lömbunum í A-,
B- og C-fl. við F-flokkslömbin sýnir vaxtarauka lamba í þessum flokkum á
tímabilinu frá 31. ágúst til 3. október og jafnframt, hvort og hve mikill ávinn-
ingur er að beita þeim á fóðurkál annars vegar og blandað grænfóður hins
vegar, samanborið við að láta lömbin ganga í úthaga með mæðrum sínum.
Samanburður á B- og E-flokki sýnir hins vegar, hvort hagkvæmara er að
beita lömbunum á fóðurkál í 33 eða 51 dag. Og að lokum sýnir samanburður
á D- og E-flokki, hvort ávinningur er að því að gefa lömbunum hormóninn
stilbestrol, af því að meðferð þessara tveggja flokka og lengd tilraunaskeiðs-
ins var hin sama að öðru leyti en því, að D-flokkslömbin fengu hormóninn.
Landið, sem blandaða grænfóðrið var ræktað á og C-flokkslömbum var
beitt á, var 0.3 ha að stærð, og höfðu þau lömb aðgang að óræktuðu landi
jafnframt. Þetta blandaða grænfóður var fremur lítið sprottið, næpurnar smá-