Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.09.1961, Side 105
HEiLDARYFIRLIT
I. Á árunum 1952 til 1959 voru gerðar 15 tilraunir með að beita sláturlömb-
um á ræktað land að haustinu. í hverri tilraun voru tveir til sex flokkar og
í hverjum flokki 20 lömb, nema í tilraun þeirri, sem lýst er í kafla VII, þar
voru 22 lömb í flokki. í hverri tilraun var lömbunum skipt í jafna flokka
eftir þunga á fæti og kyni, og þar sem við varð komið, einnig tekið tillit til
aldurs og ætternis lambanna. Hverri tilraun er lýst í sérstökum kafla nr. I til
XV. Tilraunum þessum má skipta í tvo aðalflokka:
a: Tilraunir með samanburð á haustbeit lamba með mæðrum á há annars
vegar og á úthaga hins vegar, þar sem aðeins kemur í ljós mismunur flokkanna
að lokinni tilraun, en ekki framför hvers flokks á tilraunaskeiðinu, vegna þess,
að ekki var slátrað samanburðarflokki í byrjun tilraunanna. I þessum til-
raunaflokki eru 4 tilraunir, sem lýst er í köflum III, IV, V og VII.
b: Tilraunir með samanburð á haustbeit lamba með mæðrum á úthaga
annars vegar og móðurlausra á ræktuðu landi hins vegar. Hið ræktaða land
var ýmist há, fóðurkál, nýrækt, blandað grænfóður, svo sem rúgur og hafrar,
eða raps, næpur og nýræktargras. í öllum þessum tilraunum kemur í ljós heild-
arframför hvers flokks á tilraunaskeiðinu, af því að í hverri tilraun var sam-
anburðarflokki slátrað í byrjun tilraunar til þess að finna, hve mikið lömbin
legðu sig þá. í tilraunum, sem lýst er í kafla I og II, er aðeins gerður saman-
burður á úthaga og háarbeit. í tilraun, sem lýst er í kafla VI, er gerður saman-
burður á beit á úthaga og nýrækt. í tilraunum, sem lýst er í köflum VIII, XI,
XII, XIII og XV, er gerður samanburður á úthagabeit og fóðurkáli og í tilraun-
unum, sem lýst er í köflum IX, X og XIV, er gerður samanburður á lleiri
flokkum. I tilraun nr. IX eru flokkarnir á úthaga, káli, nýrækt og blöndu af
rúgi og höfrum, í tilraun X er gerður samanburður á beit á úthaga, káli og
nýrækt, í tilraun XIV er gerður samanburður á úthaga, fóðurkáli og blönduðu
grænfóðri, þ. e. r-ipsi, næpum og nýræktargrasi. I tilraun XIV er einnig gerð-
ur samanburður á styttra og lengra tilraunaskeiði með beit á fóðurkáli. Að
lokum er í tilraun XIV og XV rannsakað, hvort að gagni korni að gefa stil-
bestrol-hormón lömbum á fóðurkáli.
II a: Tilraunir nr. III, IV, V og VII leiddu í ljós, að lömbin, sem á há
gengu, lögðu sig betur en þau, sem gengu á úthaga. Nemur þessi munur að
meðaltali á lamb í sundurliðuðum sláturafurðum sem hér segir:
Fjöldi tilr.daga Kjöt, kg Mör. kg Gæra, kg Alls, kg
I tilraun nr. III 27 1.03 0.45 0.17 1.65
- _ _iv 28 0.78 0.07 0.20 1.05
- _ _ v 23 0.14 -0.01 —0.02 0.11
- - - VII 24 1.16 0.21 0.29 1.66
Meðaltal 25.5 0.78 0.18 0.16 1.12