Saga


Saga - 2015, Side 155

Saga - 2015, Side 155
landfræðilegs eðlis, bókmenntatextar og umræða um bókmenntir, landshagi og náttúru“. Síðan bætir hann við að valið byggist einkum á að velja texta og myndir „þar sem hugmyndir og viðhorf um aðra birtast skýrt og hefur verið miðlað til hópa lesenda“ (bls. 5). Þessi afmörkun, að leita að ytri ímyndum, segir doktorsefni að útiloki skýrslur af margvíslegu tagi, svo sem rit um efnahag, jarðfræði, tungumál og fleira. Hann notar hugtakið „ferða - lýsing“ eða „frásagnir sjónarvotta“ um þennan seinni flokk heimilda (bls. 5–6). Höfuðáhersla er lögð á höfunda frá Bretlandi og Þýskalandi, en mest mun vera til af ritum frá þeim löndum. einnig eru þó notaðar bækur frá Norðurlöndum, „sérstaklega ef þær urðu kunnar utan Norðurlanda“ (bls. 4). Ég staldra hér við hugtakið „Norðurlönd“. Það er ekki um önnur ríki að ræða en dansk-norska ríkið (sem Ísland og Grænland tilheyrðu) og sænska ríkið, að minnsta kosti stóran hluta tímabilsins eftir 1500 og fram á 19. öld. og það má færa rök fyrir því að rit Dana eða rit ferðalanga eða vísinda- manna á vegum Danakonungs væri gagnlegt að skoða aðskilin frá þeim sem koma beinlínis „að utan“, ekki síst vegna þeirrar tengingar sem er við orðræðu nýlenduhyggjunnar í rannsókninni. eða með öðrum orðum að athuga hvað það gæti haft að segja að ritin hafi orðið til innan konungsríkis - ins og að frumkvæði konungs eða yfirvalda, andstætt því sem raunin var með rit fjarlægari höfunda. Spurning er t.d. hvernig eigi að skilgreina Svíann Uno von Troil, en hann var þátttakandi í breskum leiðangri. Það er því um fáa aðra ferðalanga frá „Norðurlöndum“ að ræða en þá sem á ein- hvern hátt tengjast danska konunginum á tímabilinu eftir 1500. Þetta gæti skipt máli vegna þeirra tengsla sem eru á milli sjálfsmynda og ytri ímynda, og það hvernig beri að líta á beina fulltrúa konungs af dönsku, norsku og íslensku bergi brotna í samhengi við hina bresku og þýsku — eða evrópsku — sýn. Sérstaklega gæti þetta skipt máli þegar kemur að síðustu tveimur öld- unum sem fjallað er um. Þá eykst og flækist heimildagrunnurinn nokkuð, þó skilgreiningu hans hafi ekki verið breytt í rannsókninni. Þá eru yfirvöld — konungar Íslands og Grænlands — sjálfir farnir að hafa meiri áhuga en áður á þessum eyjum í Atlantshafinu og beina sjónum sínum að auðlindum þeirra, bæði náttúruauðlindunum og fólkinu sem á eyjunum býr. Mann - fjöldi á þessum árum var álitinn uppspretta auðæfa og afar mikilvægur og yfirvöld í Danmörku höfðu þegar á fyrri hluta 18. aldar verið farin að safna upplýsingum um þessar eyjar á eigin vegum. Á 17. og 18. öld fóru síðan að verða breytingar á ímyndum Íslands og Grænlands, eins og doktorsefni sýnir vel fram á, m.a. fyrir áhrif frá þjóðernishyggju, nýlenduhyggju og kynþáttahyggju. ef til vill hefði því verið gagn að því að skoða sérstaklega ímyndir „nýlenduherranna“ sjálfra, þ.e. þeirra leiðangra sem upprunnir voru í konungsríkinu, aðgreindra frá öðrum ferðalöngum. við þetta vakna spurningar um frekari umfjöllun um val heimildaefnisins út frá þessum andmæli 153
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.