Saga - 2015, Qupperneq 157
til Íslands. Þó mætti allt eins benda á að út frá áhuga konungsvaldsins á
upplýsingasöfnun allt frá aldamótunum 1700, leiðöngrum egedes 1721 og
Horrebows 1749 mætti jafnvel líta svo á að tímabilaskipting um 1700 hefði
þjónað betur greiningu á þessum konungsfulltrúum, þó svo að enskir og
franskir leiðangrar hafi ekki komið til landsins fyrr en á síðasta þriðjungi
aldarinnar. eða þá að rit Horrebows hefði fallið með eldra tímabili, þar sem
það er í samræðu við 17. aldar sýnina á Ísland og var samið rétt um miðja
18. öld. Það hefði þess vegna getað fallið hvorum megin hryggjar sem er. Ég
hef því ákveðnar efasemdir um tímamót við 1750 í þessu samhengi í grein-
ingu á ritum 18. aldarinnar.
Allt frá upphafi 18. aldar eru leiðangrar tengdir yfirvöldum á ferðinni,
þ.e. nokkrum áratugum áður en vísindaleiðangrar og almennir ferðalangar
frá öðrum löndum lögðu á haf út. Þar er margt óprentað — en afmörkunin
í þessari rannsókn, þ.e. útbreiðsla ímyndanna með útgáfu og þýðingum rita,
á fullan rétt á sér. vel er rökstutt í bókinni hvernig margar af ímyndunum
um Ísland og Grænland tengdust hugmyndinni um norðrið. Færa má nokk-
ur rök fyrir því að það hafi verið munur á hugmyndinni um norðrið þegar
fulltrúar danskra stjórnvalda voru að fjalla um eigin svæði í Norður-
Atlantshafi, miðað við þá sýn sem kom fram hjá enskum og þýskum leið -
öngrum. vald- og nýlenduhyggja koma víða fyrir í ritinu sem skýring á
breyt ingum á viðhorfum og gæti það einnig skipt máli í þessu samhengi.
„Nýlenduherrar“ Íslands og Grænlands stóðu að baki tilurð beggja þessara
áhrifaríku rita eftir egede og Horrebow.
Hvað Grænland varðar kemur fram að rit trúboðans og landnemans
Hans egedes hafi skipt sköpum fyrir ímynd Grænlands og breytt henni
meira en önnur rit (bls. 132). Í kjölfarið voru 14 nýlendubæir stofnaðir með
allri strönd Grænlands og hefur Grænland verið hluti af danska ríkinu
síðan. Flestir telja að Grænland megi skilgreina sem nýlendu, þó vissulega
verði að skoða hvað felist í nýlendustöðu á hverjum tíma. (Sjá m.a. Thorkild
kjærgaard, „A Forgotten Urban Revolution. Urban Settle ments and Urbaniz-
ation in Greenland, 1721–1814“, Urbanization in the Olden burg Monarchy
1500–1800. Ritstj. Thomas Riis (kiel: Ludwig 2012), bls. 150–155.) Rit Hans
egedes er hér sett í samhengi við eldri ferðaskröksögur og lýsingar land-
könnuða á tímabilinu 1500–1750 Doktorsefni segir um rit egedes: „Sú frá-
sögn er vitaskuld ekki ferðalýsing heldur umfjöllun um búsetu en hún á það
sammerkt með ferðalýsingum að um er að ræða frásögn sem er, a.m.k. að
hluta til, byggð á eigin reynslu“ (bls. 121). Nýlenduvæðing Grænlands hófst
líka með leiðangri egedes 1721, og eins og réttilega er bent á var hann
sendimaður konungs og verslun var nátengd leiðangrinum (bls. 131). einnig
er bent á að texti egedes um Grænland sé athyglisverður vegna þess hvaða
áherslur koma þar fram, þ.e. áhersla á landkosti og tækifæri á Grænlandi og
á fólkið og eiginleika þess (bls. 136). Þetta vakti athygli mína, því þetta
tvennt er einnig það sem oftast einkennir viðreisnarrit og greinargerðir
andmæli 155