Strandapósturinn - 01.06.2021, Blaðsíða 88
87
Við heimkomuna 1897 tók hann að sér skólastjórn unglingaskólans
á Heydalsá og sinnti því starfi með mikilli prýði til ársins 191117. Árið
1912 flutti hann ásamt konu sinni, Jensínu Guðmundsdóttur frá Ófeigs-
firði í Árneshreppi, að Felli í Kollafirði og bjó þar til 1914 þegar hann
keypti (1915) Óspakseyri af Methúsalem Jóhannssyni og eignaðist um
leið allan verslunarrekstur hans. Á Óspakseyri bjó Sigurgeir til æviloka og
rak verslunina þar til hann féll frá 1936.
Sigurgeir og Jensína kona hans eignuðust ekki börn sem lifðu, en tóku
í fóstur Þorkel Guðmundsson frá Melum í Víkursveit, systurson Jensínu.
Þorkell Guðmundsson fæddist að Melum í Víkursveit 1905, foreldrar
hans voru Guðmundur Guðmundsson bóndi og kona hans Elísabet Guð-
mundsdóttir. Árið 1918 þegar Þorkell er 13 ára fluttist hann til Jensínu
móðursystur sinnar á Óspakseyri og Sigurgeirs manns hennar. Þar ílengdist
hann og bjó samfellt á Óspakseyri til ársins 1961 þegar þau hjón fluttu
17 Heydalsárskólinn í Strandasýslu hefir farið hægt, en sigið á. Það er ofur lítið um hann rætt
og ritað. Maðurinn, sem haldið hefir þennan skóla í 11 ár, er enginn skrumari; hann hefir
lítið gert að því að hossa þessu óskabarni sínu framan í lesendur blaðanna, og lærisveinar
hans hafa ekki talið sig gera honum neina þægð með því að skrifa lofdýrð í blöðin um hann.
Sigurgeir Ásgeirsson hefir unnið mjög í kyrþey, en hann hefir unnið gott verk og þarft. Skólinn
á Heydalsá er unglingaskóli; hann er fyrsti unglingaskólinn á landi hjer, og hann er heima-
vistarskóli. Saga hans skal ekki sögð hjer. En það er ekki að sökum að spyrja: hann hefir átt
erfitt uppdráttar að því er fjárhaginn snertir. Heímavistarskólar eru dýrar stofnanir, ef þeir eiga
að vera í nokkru lagi. Þingið veitti áheyrn um 500 kr. styrk til húsabóta. Þær húsabætur, sem
skólinn fjekk, munu hafa kostað um 1500 kr. — En hann er þó í húsnæðishraki eftir sem
áður. Kenslustofa handa 20 nemendum er viðunanleg, og með góðum borðum og bekkjum en
svo er líka upp talið það sem viðunanlegt er af húsakynnum. Svefnherbergin of fá og smá, og
lestrarherbergi engin. Skólinn sýnist hafa marga mögulegleika til að verða hin þarfasta fram-
tíðarstofnun fyrir Strandasýslu, og Strandasýsla er sannarlega ekki svo vel sett til að halda fasta
skóla, að ofgert sje að styrkja þar til gagns einn unglingaskóla það er viðurkent þar í sýslu, að
nemendur Heydalsárskólans hafi þegar gert nokkuð til að bæta heimilismentunina í Stranda-
sýslu, og hann getur gert betur, ef að honum er hlynt. En hann er í peningakreppu sem úr þarf
að bæta. Þingið veitti honum að vísu þennan 500 kr. styrk tii húsabóta. en það neitaði honum
um 400 kr. fast árstillag, og setti hann á bekk með öðrum unglingaskólum landsins, sem vel
getur haft þá afleiðingu að hann verði enn ver settur í fjárhagslegu tiliti eftirleiðis en hingað
til, eftir því sem á stendur. En nú þurfti hann einmitt á frekara fje að halda en áður, meðal
annars til þess að mæta kröfum hinna nýju fræðslulaga um kensluáhöld o.s.frv. það er áhuga og
dugnaði forstöðumannsins að þakka að þessi skóli er ekki oltinn út af eins og þeir barnaskólar,
sem reynt hefir verið að stofna með heimavistum. En þegar einstakir menn sýna svo mikla
þrautseigju, og þegar þeir, sem skólans njóta, og best þekkja hann, ljúka upp allir einum munni
um það, að skólinn sje mikil þarfastofnun og til blessunar fyrir bygðarlagið — hví skyldi þá ekki
styðja slíka starfsemi svo myndarlega að fult gagn sje að? Vera má að einhver breyting verði
gerð á skólanum í ár, eða á næstu árum, í þá átt, að hann verði að nokkru leyti barnaskóli og að
nokkru leyti unglingaskóli sem áður, en það ætti ekki að draga úr áhuga þingsins eða vilja til að
styðja hann. Þess verður greinilega vart að Strandasýslubúar viðurkenna í orði starfsemi Sigur-
geirs Ásgeirssonar, og skólans hans. Þeir viðurkenna hana þá vonandi á borði frekar eftirleiðis
en hingað til með því að láta sýslufjelagið styðja skólann að sínu leyti eftir föngum.