Strandapósturinn - 01.06.2021, Page 143
142
Á Hólmavík þeir veislur ótal sátu
af vistaföngum átu eins og gátu,
ei var sparað alla að hressa og seðja
allir vildu komumenn þar gleðja.
Og meðan sátu menn að veislu borðum
maga krílið, vildi fara úr skorðum.
Þeir sem veittu, voru eftir taldir,
veri þeim miskunn drottins ætíð faldir.
Prófast hjónin dýrum dyggðum búin
Daddi Hjálmarsson og indæl frúin.
Bjarni Halldórs bauð þeim líka og Dóra,
á borðum höfðu laxa feita og stóra.
Að síðustu þeim sendi ber og rjóma
hún Sigþrúður, með góðum heiðri og sóma
og bauð svo öllum kaffi í kveðju skyni,
það er kostulegt að eiga svona vini.
SPARISJÓÐUR
STRANDAMANNA
Hefur þú velt því fyrir þér að hægt
er að eiga viðskipti við sparisjóð eða
banka hvar sem er á landinu?
Sparisjóður Strandamanna býður upp á alla
almenna bankaþjónustu s.s.:
Greiðsluþjónustu
Innheimtuþjónustu
Námsmannaþjónustu
Heimabanka
Hraðbanka á Hólmavík
Sparisjóður Strandamanna leitast við að
veita persónulega þjónustu
Afgreiðslustaðir:
Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík,
sími 455 5050, fax: 455 5059.
Afgreiðslutími: 09:00 - 16:00 alla virka daga,
hraðbankinn er opinn allan sólarhringinn.
Norðurfirði, sími 451 4014.
Afgreiðslutími:: mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og
föstudaga kl. 13:00 - 16:00.
Heimasíða: www.spar.is
Jóhannes Jónsson
frá Asparvík