Morgunblaðið - 17.03.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.03.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022 Kverkatak Sálfræðitryllir eftir KáraValtýsson „Þú hefur ekki grafið lík í Leiruvogi, haldið framhjá konunni þinni og sagt upp starfi þínu – allt í samamánuðinum. Þetta gerði ég. Og það kostaði mig allt.“ Komdu nær Hrollvekjandi spennusaga eftir SöruGran Hvort er Amanda, sem starfar sem arkítekt og telur sig hamingjusamlega gifta, einfaldlega geðveik eða raunverulega haldin kvendjöfli aftan úr forneskju? Feminísk hrollvekja af bestu gerð. Nýjar bækur frá Fást í verslunum Pennans-Eymundssonar, Forlagsins og Bóksölu stúdenta, penninn.is, forlagid.is og boksala.is Örn sækist eftir 4. eða 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Örn Þórðarson Borgarfulltrúi og fyrrverandi sveitarstjóri Agi og festa í rekstri og stjórnun Örn þekkir vel til allra viðfangsefna borgarstjórnar og hefur reynslu og kjark til að breyta því sem breyta þarf. Kristján Jónsson kris@mbl.is Eitt ár verður liðið frá því eldgos hófst í Geldingadal í Fagradalsfjalli á Reykjanesi næsta laugardag. Gosið vakti mikla athygli hérlendis sem er- lendis enda var það mjög aðgengilegt fyrir almenna borgara. Gosið reynd- ist í meðallagi stórt en ekki hafði gos- ið á Reykjanesskaganum frá því á tímum Snorra Sturlusonar. „Stóru tíðindin varðandi þennan atburð eru að yfir höfuð sé farið að gjósa á Reykjanesskaganum eftir tæplega átta hundruð ára hlé. Þetta markar því upphaf að nýju tímabili. Á næstu hundrað árum gæti kannski gosið að meðaltali á 20-25 ára fresti. Það getur komið í hrinum og einnig geta komið tíma- bil í 50 eða 100 ár með engu gosi. Þannig var það á gostímabilinu 800-1240,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarð- eðlisfræði, í sam- tali við Morgunblaðið. Stærð- argráðan á næsta gosi gæti orðið svipuð þótt vitaskuld sé ekki hægt að fullyrða um slíkt. „Ekkert er hægt að útiloka varð- andi stærðir en miðað við hvernig skaginn hefur hegðað sér þá eru gos af svipaðri stærðargráðu og þetta lík- legust. En einnig geta komið aflmeiri gos sem standa í styttri tíma.“ Atburðarásinni ekki lokið Eldgosið í Fagradalsfjalli var afllít- ið en ekki lítið á heildina litið. „Gosið stóð í sex mánuði og því lauk í september en í desember var formlega tilkynnt um goslok. Þótt gosið væri alltaf afllítið var það ekki lítið á heildina litið og endaði sem meðalstórt gos. Atburðarásin virðist ekki vera alveg búin þar sem enn mótar fyrir landrisi. Eftir að gosið hætti fór landið að rísa aftur og í des- ember fór af stað atburðarás sem var svipuð þeirri sem átti sér stað í að- draganda gossins. Þá var kvika í jarð- skorpunni en það hætti áður en það náði upp á yfirborðið og ekki varð gos. Vísbendingar eru um að enn sé landris en ekki eins mikið og var. Ekki er því vitað hvort við sjáum fyr- ir endann á þessari atburðarás. Það verður bara að koma í ljós en vel er fylgst með.“ Vekur athygli erlendis Í gosinu í Fagradalsfjalli kom hraunkvikan beint neðan úr möttl- inum en hafði ekki viðdvöl í skorp- unni og það er óvanalegt hér á landi. „Flest gos á Íslandi eru þannig að kvikan safnast fyrir í kvikuhólfi undir megineldstöð og gýs svo upp eða leit- ar til hliðar út frá hólfinu. Þannig voru Kröflueldar, Skaftáreldar og Holuhraun. Við getum litið á kviku- hólfið sem pott þar sem kvikan hrær- ist og því er stundum nánast enginn breytileiki í efninu sem kemur upp. Í því sem var að koma upp núna er alls konar breytileiki sem jarðefnafræð- ingar hafa verið að skoða. Þótt breyti- leiki í efnasamsetningu sjáist oft í gosum, t.d. í Heklu, þá hefur fólk get- að rannsakað með sama hætti kviku sem kemur beint úr möttlinum. Gögnin sem tekin hafa verið saman um þessa atburði vekja því mikla at- hygli erlendis og sama á við um at- burðarásina sem varð þegar landið gliðnaði þegar kvikan var að finna sér leið til yfirborðs,“ segir Magnús Tumi en í gærkvöldi hélt hann erindi í Grindavík um atburðinn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tilkomumikið Eldgosið hófst 19. mars 2021 og reyndist mikið sjónarspil. Fjöldi Íslendinga sem og erlendra gesta lagði leið sína að gosinu til að berja náttúrufyrirbærið augum. Markar upphaf á nýju tímabili - Gosið í Fagradalsfjalli reyndist meðalstórt - Að meðaltali gæti gosið á 20-25 ára fresti á svæðinu að mati Magnúsar Tuma - Enn er landris á svæðinu en þó töluvert minna en var í desember Magnús Tumi Guðmundsson Þarftu að láta gera við? FINNA.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.