Morgunblaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 48
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Fortíðin hittir framtíðina í Netflix-
myndinni The Adam Project sem
kom út á streymisveitunni í síðustu
viku og hefur vakið töluverða at-
hygli en leikstjóri myndarinnar er
Shawn Levy, sem meðal annars
leikstýrði 80’s hrollvekjugleðinni
Stranger Things. Tímaflakkarinn
Adam Reed, leikinn af Ryan Rey-
nolds, ferðast 30 ár aftur í tímann
og slæst í för með sjálfum sér, 12
ára gömlum, í von um að saman
geti þeir bjargað framtíðinni. Ellen
DeGeneres kallaði myndina E.T.
okkar kynslóðar en henni hefur
einnig verið líkt við Back to the
Future.
Kvikmyndagagnrýnandinn Ragn-
ar Eyþórsson eða Raggi var mjög
hrifinn af myndinni sem hann
sagði stórgóða og frábæra afþrey-
ingu þó að hann tæki fram að ekki
væri um að ræða neitt meist-
araverk – en hann rýndi myndina í
Síðdegisþættinum hjá þeim Sigga
Gunnars og Friðriki Ómari. Hann
gaf myndinni þrjár stjörnur af
fjórum.
Scobell stjarna myndarinnar
Allir voru kvikmyndaáhuga-
mennirnir þrír sammála um að
stjarna myndarinnar væri hinn 12
ára (nú 13 ára) Walker Scobell,
sem leikur yngri útgáfu Adam
Reed. Hann hefur sannarlega sleg-
ið í gegn með hlutverki sínu sem
er hans fyrsta hlutverk í kvikmynd
en án vafa alls ekki það síðasta en
hann á vafalaust framtíðina fyrir
sér í Hollywood.
„Hann er stjarna myndarinnar.
Hann horfði víst á Deadpool alveg
á fullu og át upp taktana hans
Ryan Reynolds,“ útskýrði Raggi.
Jennifer Garnier leikur móður
Adams í myndinni, en yngri Adam
er að glíma við sorgina eftir að
hafa misst föður sinn (Mark Ruf-
falo) skyndilega í bílslysi nokkru
áður en Adam eldri kemur inn í líf
hans.
Zoe Saldana leikur Lauru, eig-
inkonu Adams, sem hann vonast til
að geta bjargað úr fortíðinni.
Alltaf sama persónan
Raggi sagði myndina halda vatni
hvað varðar tímaflakk – fyrir þá
sem pæla mikið í tímaflakki eins
og hann sjálfur. Fannst honum
myndin þó þjást mest fyrir eitt.
„Fyrir það að Ryan Reynolds er
svo rosa mikið að leika Ryan Rey-
nolds. Af því að ég væri til í að sjá
Ryan Reynolds í öðrum gír heldur
en þessi persóna,“ sagði Raggi sem
sagði Reynolds alltaf leika sama
karakterinn.
„Hann á meira inni en að vera
þetta,“ sagði hann en bætti við:
„En strákurinn í staðinn rífur
þetta upp, að fá nýjan Ryan Rey-
nolds í staðinn.“
Þá benti Raggi einnig á að eitt
atriði í myndinni hafi verið örlítið
sársaukafullt að horfa á en þar er
tölvugrafík notuð til að yngja upp
eldri konu – sem hittir yngri útgáf-
una af sjálfri sér í myndinni.
„Tölvuútgáfan af henni er svo
vond. Það er eins og hún sé klippt
út úr tölvuleik en gamla konan er
eðlileg. Það er alltaf miklu betra
að fá sér ungan leikara og gera
hana eldri með förðun. Það „feik-
ar“ þetta miklu betur en að fara í
hina áttina og yngja fólk upp,“
sagði Raggi.
Myndin, sem þó er bönnuð innan
12 ára, er nokkuð fjölskylduvæn og
líklegt að eldri börn hefðu jafn
gaman af henni og fullorðnir.
„Maður hefur gaman að þessu
sem fullorðinn en líka sem krakk-
inn inni í manni. Hann [Adam
yngri] kemst sem 12 ára strákur í
framtíðarvopnin og fær að vera í
pínu „byssó“. Ef ég væri krakki
væri þetta geggjað,“ sagði Raggi
glettnislega.
James Gunn-fílingur
Siggi Gunnars benti á að tónlist-
in í myndinni væri alveg frábær en
hún einkennist af frábærum slög-
urum frá mismunandi tímaskeið-
um.
Hittarinn „Gimme Some Lovin’“
með The Spencer Davis frá 1967
hljómar á fyrstu sekúndum mynd-
arinnar og setur strax stemn-
inguna fyrir myndina í upphafi.
Slagararnir „Let My Love Open
the Door“ með Pete Townsend og
„Let it Be“ með Matt Berninger
spila líka hlutverk í myndinni.
„Hún [myndin] er að taka svona
James Gunn-fílínginn, að taka slag-
arana, „Greatest hits“ á þessu
tímabili til að aðeins poppa upp
stemninguna,“ sagði Raggi og vís-
aði í leikstjóra Guardians of the
Galaxy, The Suicide Squad og þátt-
anna Peacemaker, sem einmitt not-
ast mikið við tónlist í sínum mynd-
um og þáttum. „Þetta er svona
næstum aðeins of mikið en vá mér
líður svo vel að horfa á þetta og
hlusta á þetta,“ bætti Raggi við.
„Það lætur mann fá gleðitilfinn-
ingu um allan kroppinn,“ sagði
hann.
Raggi: bbbn
IMDb: 6,8/10
Rotten Tomatoes
Kvikmyndagagnrýnendur: 68%
Áhorfendur: 79%
Bjargar framtíðinni með 12 ára sjálfum sér
Netflix-myndin The Adam Project fékk fína dóma
hjá Ragga, kvikmyndagagnrýnanda K100 en hann
rýndi myndina, sem er ekta vísindaskáldskap-
argleði, í Síðdegisþættinum í vikunni.
Flottur hópur Frækinn hópur leikara tók þátt í The Adam Project sem þó var fyrsta mynd hins unga Walker Scobell.
Ungstirni Walker Scobell átti
stjörnuleik í myndinni þar sem hann
lék 12 ára Adam sem hittir eldri
útgáfu af sjálfum sér.
Netflix The Adam Project kom
út 11. mars síðastliðinn á
streymisveitunni Netflix.
Raggi rýnir The Adam Project
Tímaflakk Adam Reed hittir
sig sjálfan 12 ára gamlan í
myndinni The Adam Project.
AFP
AFP
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022
www.gilbert.is
FRISLAND 1941
TÍMALAUS GÆÐI
VIÐ KYNNUM