Morgunblaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022
.
Marta
Guðjónsdóttir
• Aðhald í rekstri og virðing fyrir framlagi skattborgara
• Heildstæð samgöngustefna fyrir alla ferðamáta
• Nægt framboð lóða fyrir fjölbreytta íbúðabyggð
• Skipulagsstefna í sátt við borgarbúa
• Menntastefna sem mætir þörfum nútímans
• Persónulegri og skilvirkari þjónusta við eldri borgara
• Standa vörð um grænu svæðin í borginni
2.
SÆTI
Ég hef einlægan áhuga á því að fá að vinna áfram að stefnumálum Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn og taka þátt í því að snúa af vegferð núverandi meirihluta.
Ég gef kost á mér í annað sætið
í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, vegna borgarstjórnarkosninganna í vor.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík 18.-19. mars.
Helstu markmið:
Ljósmynd/Steinar Kaldal
Viðurkenning Teymið frá Lúdika hlaut styrk í vikunni, frá vinstri Jan
Dobrowolski, Anna Kristín Karlsdóttir og Soffía Erla Einarsdóttir.
Ljósmynd/archdaily
Umhverfisvænt Útveggir þessa húss í Tékklandi eru úr hampsteypu og í ár
verður tilraunahús reist hér á landi. Iðnaðarhampur er nýttur á marga vegu.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ráðgert er að 15 fermetra tilrauna-
hús úr hampsteypu rísi á suðvestur-
hluta landsins í sumar. Allt efnið í
smáhýsinu verður náttúrulegt; trefj-
ar úr iðnaðarhampi, kalk og vatn
sem saman mynda hampsteypuna,
burðarvirkið úr trégrind en engin
þörf er á steypustyrktarjárni eins og
í hefðbundnum steyptum vegg. Út-
veggir eiga að anda vel og því ætti
ekki að þurfa að glíma við myglu. Sé
vilji til að mála húsið er ekkert á
móti því, en nota þarf vistvæna
málningu sem andar.
Það er Anna Kristín Karlsdóttir
arkitekt og samstarfsfólk hennar hjá
Lúdika-arkitektum sem standa fyrir
verkefninu. Þau hlutu í vikunni einn-
ar milljónar króna styrk frá Hönn-
unarsjóði sem úthlutaði 28 styrkjum
til ólíkra verkefna á sviði hönnunar
og arkitektúrs og 18 ferðastyrkjum.
Að þessu sinni var 25 milljónum út-
hlutað en alls bárust 86 umsóknir
um rúmar 188 milljónir í almenna
styrki.
Verkefni Lúdika kallast Biobuild-
ing og í umsögn segir: „Tilrauna-
rannsókn og hönnunarverkefni sem
kynnir hina aldagömlu aðferð að
nota iðnaðarhamp sem nútímabygg-
ingarefni sem ræktað er hér á landi
og aðlaga það staðbundnu loftslagi
og aðstæðum. Fyrsta skrefið í átt að
framtíð þar sem hægt er að reisa
byggingu úr íslensku hráefni.“
Anna Kristín segir að hampsteypa
sé sterkt efni, en í ár verður meðal
annars kannað hvernig hún stenst
íslenskar aðstæður. „Hún þarf að
þola álag eins og veðrið hefur verið í
vetur. Í tilraunahúsinu verða álags-
fletir bæði með hampsteypu með
náttúrulegri múrhúð eða timbur-
klæðningu þannig að við sjáum
hvernig mismunandi efni þola veð-
urálagið. Við höfum fulla trú á að
þetta náttúrulega efni standist ís-
lenskar aðstæður.“
Ræktendum hefur fjölgað
Ræktendum iðnaðarhamps hefur
fjölgað mjög hérlendis síðustu ár, að
sögn Önnu Kristínar, og er ýmist að
þessi hávaxna, einæra jurt sé rækt-
uð á nokkrum hekturum eða minni
spildum. Fyrstu skrefin í verkefninu
verði að hafa samband við rækt-
endur og kanna gæði hampsins og
mögulegt framboð á efni sem hægt
sé að nota í byggingar. Auk þess
sem þau hyggjast rannsaka mis-
munandi byggingaraðferðir og
hvernig þær nýtast miðað við ís-
lenskar aðstæður í samstarfi við
þverfaglegt teymi. Einkum er fyr-
irhugað að nota trefjaríkt kurl úr
stofni hampsins.
Undanþága var veitt 2020 fyrir
innflutningi á fræjum iðnaðarhamps
og í fyrra var lögunum breytt. Heim-
ild til innflutnings er háð skilyrðum
og takmörkunum svo tryggt sé að
ekki verði fluttar inn eða ræktaðar
plöntur sem innihalda vímuefnið
THC í nýtanlegu magni, eða að há-
marki 0,2%.
Miklir möguleikar
„Við sækjum hugmyndir okkar að
hluta til Evrópu, en Frakkland er
leiðandi í nýtingu á iðnaðarhampi
sem byggingarefni,“ segir Anna
Kristín. „Við höfum einnig talað við
sérfræðinga í Írlandi, sem hafa verið
okkur innan handar. Það er líka heil-
mikið að gerast í þessu í Skotlandi,
Skandinavíu og reyndar víða um
heim. Mönnum hefur á síðustu árum
sífellt orðið betur ljóst hversu miklir
möguleikar eru á nýtingu hamps-
ins.“
Í grein á Vísindavefnum 2015 kom
fram að iðnaðarhampur er nýttur á
ótrúlega marga og ólíka vegu og hátt
í 25 þúsund mismunandi vöruflokkar
voru þá framleiddir úr honum. Auk
þess að nota hampinn sem bygging-
arefni má nefna að nýtingarmögu-
leikar afurða geta tengst fatnaði,
pappír, eldsneyti, matvælum og
snyrtivörum svo dæmi séu nefnd.
Reisa tilraunahús úr hampsteypu
- Allt efnið náttúrulegt - Þarf að þola íslenskt vetrarveður - Fjölbreytt nýting iðnaðarhamps