Morgunblaðið - 17.03.2022, Síða 16

Morgunblaðið - 17.03.2022, Síða 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022 . Marta Guðjónsdóttir • Aðhald í rekstri og virðing fyrir framlagi skattborgara • Heildstæð samgöngustefna fyrir alla ferðamáta • Nægt framboð lóða fyrir fjölbreytta íbúðabyggð • Skipulagsstefna í sátt við borgarbúa • Menntastefna sem mætir þörfum nútímans • Persónulegri og skilvirkari þjónusta við eldri borgara • Standa vörð um grænu svæðin í borginni 2. SÆTI Ég hef einlægan áhuga á því að fá að vinna áfram að stefnumálum Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórn og taka þátt í því að snúa af vegferð núverandi meirihluta. Ég gef kost á mér í annað sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík 18.-19. mars. Helstu markmið: Ljósmynd/Steinar Kaldal Viðurkenning Teymið frá Lúdika hlaut styrk í vikunni, frá vinstri Jan Dobrowolski, Anna Kristín Karlsdóttir og Soffía Erla Einarsdóttir. Ljósmynd/archdaily Umhverfisvænt Útveggir þessa húss í Tékklandi eru úr hampsteypu og í ár verður tilraunahús reist hér á landi. Iðnaðarhampur er nýttur á marga vegu. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ráðgert er að 15 fermetra tilrauna- hús úr hampsteypu rísi á suðvestur- hluta landsins í sumar. Allt efnið í smáhýsinu verður náttúrulegt; trefj- ar úr iðnaðarhampi, kalk og vatn sem saman mynda hampsteypuna, burðarvirkið úr trégrind en engin þörf er á steypustyrktarjárni eins og í hefðbundnum steyptum vegg. Út- veggir eiga að anda vel og því ætti ekki að þurfa að glíma við myglu. Sé vilji til að mála húsið er ekkert á móti því, en nota þarf vistvæna málningu sem andar. Það er Anna Kristín Karlsdóttir arkitekt og samstarfsfólk hennar hjá Lúdika-arkitektum sem standa fyrir verkefninu. Þau hlutu í vikunni einn- ar milljónar króna styrk frá Hönn- unarsjóði sem úthlutaði 28 styrkjum til ólíkra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs og 18 ferðastyrkjum. Að þessu sinni var 25 milljónum út- hlutað en alls bárust 86 umsóknir um rúmar 188 milljónir í almenna styrki. Verkefni Lúdika kallast Biobuild- ing og í umsögn segir: „Tilrauna- rannsókn og hönnunarverkefni sem kynnir hina aldagömlu aðferð að nota iðnaðarhamp sem nútímabygg- ingarefni sem ræktað er hér á landi og aðlaga það staðbundnu loftslagi og aðstæðum. Fyrsta skrefið í átt að framtíð þar sem hægt er að reisa byggingu úr íslensku hráefni.“ Anna Kristín segir að hampsteypa sé sterkt efni, en í ár verður meðal annars kannað hvernig hún stenst íslenskar aðstæður. „Hún þarf að þola álag eins og veðrið hefur verið í vetur. Í tilraunahúsinu verða álags- fletir bæði með hampsteypu með náttúrulegri múrhúð eða timbur- klæðningu þannig að við sjáum hvernig mismunandi efni þola veð- urálagið. Við höfum fulla trú á að þetta náttúrulega efni standist ís- lenskar aðstæður.“ Ræktendum hefur fjölgað Ræktendum iðnaðarhamps hefur fjölgað mjög hérlendis síðustu ár, að sögn Önnu Kristínar, og er ýmist að þessi hávaxna, einæra jurt sé rækt- uð á nokkrum hekturum eða minni spildum. Fyrstu skrefin í verkefninu verði að hafa samband við rækt- endur og kanna gæði hampsins og mögulegt framboð á efni sem hægt sé að nota í byggingar. Auk þess sem þau hyggjast rannsaka mis- munandi byggingaraðferðir og hvernig þær nýtast miðað við ís- lenskar aðstæður í samstarfi við þverfaglegt teymi. Einkum er fyr- irhugað að nota trefjaríkt kurl úr stofni hampsins. Undanþága var veitt 2020 fyrir innflutningi á fræjum iðnaðarhamps og í fyrra var lögunum breytt. Heim- ild til innflutnings er háð skilyrðum og takmörkunum svo tryggt sé að ekki verði fluttar inn eða ræktaðar plöntur sem innihalda vímuefnið THC í nýtanlegu magni, eða að há- marki 0,2%. Miklir möguleikar „Við sækjum hugmyndir okkar að hluta til Evrópu, en Frakkland er leiðandi í nýtingu á iðnaðarhampi sem byggingarefni,“ segir Anna Kristín. „Við höfum einnig talað við sérfræðinga í Írlandi, sem hafa verið okkur innan handar. Það er líka heil- mikið að gerast í þessu í Skotlandi, Skandinavíu og reyndar víða um heim. Mönnum hefur á síðustu árum sífellt orðið betur ljóst hversu miklir möguleikar eru á nýtingu hamps- ins.“ Í grein á Vísindavefnum 2015 kom fram að iðnaðarhampur er nýttur á ótrúlega marga og ólíka vegu og hátt í 25 þúsund mismunandi vöruflokkar voru þá framleiddir úr honum. Auk þess að nota hampinn sem bygging- arefni má nefna að nýtingarmögu- leikar afurða geta tengst fatnaði, pappír, eldsneyti, matvælum og snyrtivörum svo dæmi séu nefnd. Reisa tilraunahús úr hampsteypu - Allt efnið náttúrulegt - Þarf að þola íslenskt vetrarveður - Fjölbreytt nýting iðnaðarhamps

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.