Morgunblaðið - 17.03.2022, Síða 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta byrjaði sem grín, eins
og allt hjá Ukulellum,
enda hverfist hljómsveitin
um það að fá skapandi
hugmyndir og framkvæma þær.
Láta ekkert trufla sig, taka á móti
gleðinni og framkvæma. Regla
númer eitt hjá okkur er að Ukulell-
ur tala sig aldrei niður, þar með er-
um við einhvers konar ofurhetjur
sem standa alltaf með sjálfum sér
og eru tilbúnar í hvað sem er. Það
er ágætt að hafa þá áminningu fasta
á sér, í formi húðflúrs, ef maður er
eitthvað að gefast upp,“ segir Hild-
ur Heimisdóttir, ein af þeim konum
sem skipa hljómsveitina Ukulellur,
en þær tóku sig til um liðna helgi og
létu flúra varanlega á sína húð
mynd af hljóðfærinu sem hljóm-
sveitin heitir eftir og spilar á, uku-
lele.
„Við erum þrettán í hljómsveit-
inni en þrjár kusu að fá sér ekki
flúr, enda var þetta ekki hópþrýst-
ingur heldur meira áhrifavaldar,“
segir Hildur og hlær.
„Flestar létu flúra á handlegg
en við Gunna og Eva fengum okkur
ukulele á kálfann. Þetta er alltaf
sama mótívið en í þremur stærðum,
rétt eins og raddir hljóðfæranna eru
sópran, consert og tenór. Hljóm-
sveitarnafnið, Ukulellur, er skrifað
sem hluti af myndinni af hljóðfær-
inu.“
Reynsluminni sigldu í kjölfar
Hildur segir að hugmyndin hafi
komið upp í spjallþræði þegar ein
þeirra varpaði fram fullyrðingunni:
„Næst hjá okkur er tattú.“ Við
skiptumst á hugmyndum um hvern-
ig flúrið ætti að líta út og allt varð
öfgafyllra og meiri vitleysa eftir því
sem á spjallið leið. Seinna sendi ein
okkar flotta húðflúrsmynd af uku-
lele og öllum leist nokkuð vel á. Þá
bauðst önnur til að finna listamann
sem gæti teiknað þetta fyrir okkur
og þá var þetta ekki lengur grín.
Áfram vatt þetta upp á sig, nokkrar
sögðu strax já en aðrar höfðu efa-
semdir, enda var meirihluti okkar
að fá sér húðflúr í fyrsta sinn á æv-
inni. Tvær þær elstu sem létu vaða
eru 61 árs. Þær sem drifu okkur
áfram voru auðvitað þær sem höfðu
reynslu af því að láta flúra sig, á
meðan þær reynsluminni sigldu í
kjölfarið.“
Þegar komin var dagsetning
fóru þær hver á fætur annarri um
síðustu helgi til hennar Polu Mariu
hjá Aura Tattoo, sem sérhannaði og
útfærði ukulele sem hún svo flúraði
á þær allar.
„Þetta var hryllilega skemmti-
legt. Ég hló svo mikið þegar Pola
Maria var að flúra mig að hún þurfti
að stoppa mig, hún sagðist ekki geta
unnið því ég hristist of mikið. Hún
hafði ógurlega gaman að þessu, þótt
henni hafi í fyrstu ekki alveg litist á
blikuna að fá heila hljómsveit í flúr
til sín. Við komum til hennar hver á
fætur annarri, sumar okkar gætu
verið mömmur hennar og henni
fannst þetta krúttlegt, skemmtilegt
og óvenjulegt. Sjaldan hafa jafn
margar konur á besta aldri verið
tattúveraðar á sömu helginni,“ segir
Hildur og bætir við að þær Ukulell-
ur hafi sýnt hver annarri flúrin á
hljómsveitaræfingu sl. þriðjudags-
kvöld, það hafi verið afhjúpunar-
kvöld. „Við erum allar himinsælar.“
Við erum einhvers
konar ofurhetjur
„Nokkrar sögðu strax já en aðrar höfðu efasemdir, enda var meirihluti okkar að fá
sér húðflúr í fyrsta sinn á ævinni. Tvær þær elstu sem létu vaða eru 61 árs,“ segir
Hildur um það þegar heil hljómsveit, Ukulellur, fékk sér varanlegt flúr á húð.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Stór stund Hér flúrar Pola Maria ukulele á Hildi sem reynir að hlæja ekki,
en hún var beðin um að hætta að hlæja af því hún hristist of mikið fyrir flúr.
Morgunblaðið/Eggert
Himinsælar Nokkrar Ukulellur sýna stoltar flúrin sín sem ýmist eru á fram- eða upphandleggjum.
F.v. Anna Jóhannsdóttir, Þóra Björk Smith, Ragnhildur Sverrisdóttir, Herdís Eiríksdóttir og Elísabet Thoroddsen.
Glatt á hjalla Fyrsta hljóm-
sveitaræfing eftir flúr.
Listrænt Ukulele
í einni línu með
hljómsveitarnafninu.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
Reykjavík 18.-19. mars
Með skynsemina að leiðarljósi og
ferska sýn á málin fyrir
framúrskarandi borg
Herdís Anna
Þorvaldsdóttir
4.
sæti