Morgunblaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022 . Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, fimmtudaginn 31. mars 2022 kl. 17:15. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningur 2021 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs. 3. Kynning á fjárfestingarstefnu. 4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. 5. Kosning stjórnar. Kjörnefnd kynnir niðurstöðu rafræns stjórnarkjörs sem lýkur kl. 16:00 þann 30. mars 2022. 6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags. 7. Ákvörðun um laun stjórnar. 8. Önnur mál. Rafrænt stjórnarkjör Rafrænt stjórnarkjör fer fram frá kl. 12:00 þann 24. mars til kl. 16.00 þann 30. mars 2022. Kosið verður um tvö laus sæti til aðalmanns sem skulu að þessu sinni skipaðir körlum og hins vegar eitt sæti varamanns. Upplýsingar um frambjóðendur og leiðbeiningar um fyrirkomulag kosninga er að finna á www.almenni.is. Frambjóðendur eru: Albert Þór Jónsson, Árni Gunnarsson, Elmar Hallgríms Hallgrímsson, Frosti Sigurjónsson, Helgi S. Helgason, Kristinn Ásgeir Gylfason, Már Wolfgang Mixa, Reynir Jóhannsson, Viktor Ólason og Þórarinn Guðnason. Ársreikningur, tillögur um breytingar á samþykktum og nánari upplýsingar um árs- fundinn eru á heimasíðu sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins. Nánar á: www.almenni.is Ársfundur 2022 fimmtudaginn 31. mars Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Færið var gott og leiðin greið þegar hópur ungra jeppamanna af höf- uðborgarsvæðinu fór á fjöll um síð- ustu helgi. Nú er runninn upp sá tími vetrar að menn flykkjast inn á hálendið, þar sem eru talsverð snjóalög þessa dagana. Aðeins þak stóð upp úr skafli þegar fjallagarp- arnir sem hér segir frá komu sl. föstudagskvöld að skálanum á Sult- arfit á Flóamannaafrétti. Sú bygg- ing er í eigu Jeppaklúbbsins 4x4 og er vinsæl sem sæluhús á öllum tím- um ársins, ekki síst yfir vetrartím- ann. Puðið er skemmtilegt „Menn urðu að taka til óspilltra málanna og moka sig niður að dyr- um hússins til þess að komast inn. Svona puð er bara skemmtilegt og kryddar leiðangurinn,“ segir Rúnar Kjartansson úr Mosfellsbæ, einn þeirra sem tóku þátt í ferð síðustu helgar. Hann væntir þess að færi gefst á fleiri leiðöngrum á næstunni, svo sem um páskana. Sultarfit er inni á reginfjöllum, nokkuð norðan og vestan við Sult- artangalón og -virkjun. Staðurinn er vel þekktur meðal fjallamanna, sem reyndar fara víða og þekkja landið mörgum betur. Fólk á alls tíu breið- dekkjuðum jeppum var í umræddri ferð og lagt var upp frá Reykjavík á föstudagskvöld. Nokkrir fóru reynd- ar ekki af stað fyrr en að morgni laugardags, en þá síðdegis voru allir komnir í áfangastað þar sem gleðin var ráðandi um kvöldið og inn í nótt- ina. Þá var grillað, sungið og farið í alls konar sprell, rétt eins og fylgir í ferðum sem þessari. Mixa vél og herða skrúfur Veður á fjöllum var hið besta og því gerlegt að bregða á leik og renna sér í háar brekkur þegar ekið var í bæinn aftur á sunnudag. „Ég er á góðum bíl, Grand árgerð 1990, sem hentar vel í svona ferðir. Bíllinn hefur verið tekinn rækilega til kostanna, bættur og styrktur svo henti í slark uppi á fjöllum. Sama má segja um flesta aðra bílana í þessari ferð; en þarna voru Toyota Land- cruiser, Nissan Patrol og Willys svo ég nefni nokkrar tegundir,“ segir Rúnar og heldur áfram: „Oft byrja svona fjallatúrar ann- ars á alls konar brasi í bílskúrnum, þegar gera þarf og græja með því að herða lausar skrúfur, mixa eitthvað í drifi og vél eða bara nefndu hvert málið er. Stundum bilar líka eitthvað í ferðunum og þá er bara að taka fram verkfærin og kippa málunum í lag. Viðgerðir í vetrarferðum eru bara eitthvað sem fylgir en eru alltaf skemmtilegar. Menn verða að gera bjargað hlutunum.“ Eyðslufrekir bílar Algeng eyðsla jeppa í fjallaferðum er 12-15 bensínlítrar á hundraðið – og verður reyndar talsvert meiri ef allt er gefið í botn. Oft er slík raunar hluti af þeirri stemningu sem menn sækjast eftir og vilja skapa í vetr- arferðum sem þessum. „Jú, bensínverðið hækkar stöðugt samanber þróun síðustu daga. Við jeppastrákar sem elskum fjalla- sportið hlæjum hinsv egar bara þeg- ar lítrinn kostar orðið 300 krónur. Sleppum þá bara einhverju öðru, svona skemmtilegar eru þessar ferð- ir. Maður verður að halda áfram að lifa og leika sér, þótt í heiminum sé stríð og bensínverðið sé hátt,“ segir Rúnar Kjartansson. Ljósmyndir/ Fjóla Margrét Markan Fjallakarl Mikið hefur snjóað á hálendinu að undanförnu og húsin við Sultarfit voru nánast fennt í kaf, eins og Rúnar Kjartansson lýsir hér í greininni. Bensínverðið er bara hlægilegt - Fóru á fjöll á fjölda jeppa - Sultarfit á öræfunum - Sæluhúsið hafði fennt í kaf - Breiðdekkjaðir bílar á fannhvítri jörð - Grand er góður og hentar vel - Bilanir og menn verða að bjarga hlutunum Viðgerð Hófleg viðráðanleg vandræði gera ferðir á fjöll bara skemmtilegar. Vetrarfæri Breiðdekkjuðum jeppum er flest fært og landið faðminn breiðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.