Morgunblaðið - 17.03.2022, Side 32

Morgunblaðið - 17.03.2022, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022 KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS Flow blómavasi Lítill H: 12,5 cm - 2.690,- Miðstærð H: 19 cm – 4.990,- Stór H: 25 cm – 7.690,- Fjórir litir: Light Grey, Grey, Champaign & Clear Specktrum. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Óvissa á mörkuðum heldur áfram að aukast vegna innrásar Rússa í Úkraínu og tilheyrandi aðgerða sem gripið hefur verið til gegn rúss- neskum yfirvöldum af hálfu Vest- urlanda. Spáð er að verð á hvítfiski í Evrópu og Bandaríkjunum fari hækkandi en að hærra olíuverð kunni að draga úr því sem fæst úr slíkum aðstæðum. Þá er einnig ótt- ast að of hátt verð kunni að fæla neytendur frá hvítfiskafurðum með langvarandi áhrifum. Í Evrópu ótt- ast vinnslustöðvar mikinn skort á hráefni. Rússneskt sjávarfang hefur á undanförnum misserum í auknum mæli verið flutt til Evrópu sem og annarra áfangastaða. Rússar fluttu úr landi um tvær milljónir tonna af sjávarafurðum á síðasta ári að verð- mæti um 7 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði um 916 milljarða íslenskra króna, sem er 33,7% meira útflutn- ingsverðmæti en árið 2020, að því er fram kemur í skýrslu hollenska landbúnaðarráðuneytisins um stöðu rússneskra sjávarafurða frá 27. nóv- ember 2021. Lokun og opnun í Kína Rússneski viðskiptablaðamað- urinn Ivan Stupachenko skrifaði í SeafoodSource í nóvember síðast- liðnum að mikla aukningu í út- fluttum sjávarafurðum til hinna ýmsu ríkja mætti rekja til lokana sem kínversk stjórnvöld gripu til vegna útbreiðslu kórónuveirufarald- ursins. Undir þetta er tekið í grein- ingu ráðgjafafyrirtækisins HKTDC í Hong Kong, en þar segir að á fyrsta ársfjórðungi 2020 hafi verið flutt um 253 þúsund tonn af sjáv- arfangi frá Austur-Rússlandi til Kína en aðeins 63 þúsund tonn á fyrri árshelmingi 2021. Rússneskar sjávarafurðir hafa vegna ástandsins í Kína leitað á aðra markaði og fóru afurðir frá Austur- Rússlandi í fyrsta sinn inn á mark- aði á Spáni, í Noregi, Eistlandi, Ja- maíka, Kamerún, Benín, Tógó og Gana, að því er segir í greiningu HKTDC. Það var því mikið fagnaðarefni fyrir rússneskan sjávarútveg að opnað var á ný fyrir rússneskt sjáv- arfang í Kína í janúar, en það varð skammlíf gleði. Lokað var á ný fyrir rússneskar afurðir í kínversku hafn- arborgunum Dalian og Qingdao þann 6. mars síðastliðinn í kjölfar þess að einn úr áhöfn rússnesks skips hafði greinst með Covid-19. Kína hefur verið mikilvægur markaður þar sem rússneskur fisk- ur hefur verið unninn þar í miklu magni fyrir aðra markaði. Í skýrslu hollenska landbúnaðarráðuneytisins segir að löng lokun kínverska mark- aðarins hafi meðal annars ýtt undir fjárfestingu í aukinni vinnslugetu í Rússlandi. Vont varð verra Á þriðjudag tilkynntu Evrópu- sambandið og Bretland um stór- hækkaða tolla á hvítfisk frá Rúss- landi. Komu tilkynningarnar í kjölfar þess að yfirvöld í Bandaríkj- unum tóku sambærilega ákvörðun föstudaginn 11. mars. Staða rússneskra afurða hefur því versnað til muna á fjölda þeirra markaða sem hafa tekið við auknu magni að undanförnu. Þar að auki Verðhækkanir sagðar óumflýjanlegar - Viðskiptahindranir á rússneskan hvítfisk leiða til verðhækkana - Tollar hækkaðir í Bretlandi, Evrópusambandinu og Bandaríkjunum - Aukin eftirspurn eftir íslenskum og norskum hvítfiski Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fiskvinnsla Eftirpurn eftir íslenskum hvítfiski mun aukast og þar með mun verð einnig hækka. Útflutningur rúss- neskra sjávarafurða 2020 og 2021, nokkur valin ríki Þús.tonn 2020 2021 Breyting Suður-Kórea 627,0 935,2 49% Holland 119,9 116,1 -3% Japan 41,7 80,6 93% Þýskaland 7,3 20,2 177% Noregur 8,0 18,2 128% Frakkland 4,3 9,1 112% Pólland 3,9 8,7 123% Bretland 4,9 7,0 43% Spánn 4,4 5,5 25% Portúgal 1,4 3,0 114% Heimild: Ministerie van Landbouw, Natuur en Voedselkwaliteit Afurðaverð á markaði 16.mars 2022,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 493,18 Þorskur, slægður 512,06 Ýsa, óslægð 456,78 Ýsa, slægð 467,98 Ufsi, óslægður 244,25 Ufsi, slægður 313,57 Djúpkarfi 336,00 Gullkarfi 407,20 Langa, slægð 379,08 Keila, óslægð 111,00 Keila, slægð 230,16 Steinbítur, slægður 202,62 Skötuselur, slægður 199,00 Skarkoli, slægður 587,33 Þykkvalúra, slægð 1.080,20 Skrápflúra, óslægð 29,00 Gellur 1.498,50 Grásleppa, óslægð 449,45 Hlýri, slægður 340,07 Hrogn/þorskur 562,52 Lúða, slægð 1.080,75 Lýsa, slægð 132,25 Skata, slægð 89,80 Undirmálsýsa, 184,00 Undirmálsþorskur, óslægður 301,00 Undirmálsþorskur, slægður 337,00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.