Morgunblaðið - 17.03.2022, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 17.03.2022, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022 má reikna með að rússneskar afurð- ir hafi einnig orðið fyrir álitshnekki meðal neytenda á vestrænum mörk- uðum vegna innrásarinnar í Úkra- ínu. Margt verður til þess að verð á hvítfiski muni fara hækkandi. Frá því gripið var til fyrrnefndra aðgerða leið ekki á löngu þar til fjöl- miðlar í Bretlandi fóru að spyrja hvort fiskur og franskar kynni að hækka í verði vegna tollahækkana. Í svari samtaka breskra fisksteiking- armanna (National Federation of Fish Friers) við fyrirspurn frétta- stofu ITV segir að verðhækkanir á fiski í Bretlandi séu „óumflýj- anlegar“. Innflutningstakmarkanir í Bandaríkjunum munu leiða til þess að bandarískir kaupendur munu í auknum mæli sækja í afurðir frá Ís- landi og Noregi og þessi aukna eft- irspurn mun leiða til verðhækkana. Andrew Crook, forseti samtaka breskra fisksteikingarmanna, sagði samtökin engu að síður styðja að- gerðirnar og að mikilvægt væri að „beita Rússland eins miklum þrýst- ingi og við getum“. Skortur á fiski getur haft víðtæk áhrif ekki síst á vinnslur og var á þriðjudag fullyrt í Intrafish að „ef rússneskar sjávarafurðir eru fjar- lægðar frá Bretlandi og ESB mun það hafa gríðarlega alvarlegar af- leiðingar fyrir birgðakeðjur. […] Bæði ESB og Bretland eru mjög háð rússneskum hvítfiskinnflutningi og, þar sem Bandaríkin bönnuðu viðskipti í síðustu viku, er óvissa í greininni rík af öllu talinu um refsi- aðgerðir og efnahagsaðgerðir.“ Stórbætt staða Íslendinga Samkeppnisstaða hvítfisks frá Ís- landi er með þessu stórbætt með til- liti til aukinnar eftispurnar og auk- inna tekna. Hins vegar hefur olíuverð hækkað mikið að und- anförnu með tilheyrandi kostnaði fyrir útgerðirnar og verð mun lík- lega haldast hátt enda hefur Joe Bi- den, forseta Bandaríkjanna, enn ekki tekist að sannfæra Sádi-Arabíu og aðra olíuframleiðendur um að auka framleiðsluna. Háu verði á hvítfiski fylgir einnig áhætta þar sem hátt verð í lengri tíma getur hvatt neytendur til að leita í ódýrari matvæli, sem getur haft langvarandi afleiðingar fyrir greinina alla. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Grásleppuveiðar hefjast á sunnudag og eru blendnar tilfinningar gagnvart vertíð ársins enda mikil óvissa um verð og hefur Landssamband smábátaeigenda (LS) óskað eftir því að heimilt verði að fleygja hveljunni og hirða aðeins hrognin. Endanleg ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar vegna vertíðarinanr liggur ekki fyrir en ráðlagt upphafsaflamark í grásleppu á fiskveiðiárinu er 3.174 tonn. Í fyrra nam ráðlagt heildaraflamark 9.040 tonnum en í byrjun þeirr- ar vertíðar var upphafs- aflamark 1.634 tonn. Sé breyt- ing á upphafsaflamarki milli ára einhver vísbending gætu útgefnar veiðiheimildir verið miklar. „Í fyrra var mokveiði en færri stunduðu veiðarnar en árið 2020. Helsta ástæðan var verðhrun, verð sem í boði var freistaði ekki. Margir þeirra sem létu sig hafa það sögðust auka veiðina um 100%, þannig gætu þeir réttlætt að taka þátt í ver- tíðinni. Sú mikla veiði sem vertíðin skilaði – rúmar 14 þúsund tunnur – svarar markaðurinn nú með áhugaleysi fyrir kaupum og hvað þá að verðhækk- un sé í kortunum,“ svarar Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri LS, spurður um komandi vertíð. Hann segir jafnframt „afar litlar líkur á að hægt verði að selja frosna grásleppu til Kína og hefur LS af þeim sökum óskað eftir undanþágu að skylt verði að koma með grásleppuna í land“. Efasemdir um ágæti vertíðarinnar Örn Pálsson RAFHJÓL MÓTVINDUR? Ekkert mál. Við eigum rafhjólið fyrir þig Faxafen 8 - www.orninn.is ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Fiskistofa vekur athygli á mikilvægi þess að sleppa lífvænlegum hlýra í tilkynningu á vef stofnunarinnar. Hlýrastofninn við Ísland stendur höllum fæti og hefur verið á und- anhaldi allt frá árinu 1996. Samkvæmt aflaupplýsingum á vef stofnunarinnar hefur frá upphafi fiskveiðiársins 1. september 2021 þar til dagsins í dag verið landað rétt rúmu 571 tonni af hlýra en það er 194 tonnum umfram ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar. „Hlýri er tegund sem á undir högg að sækja, stofninn er lítill og var hlýrinn af þeim sökum settur í aflamark, til að koma í veg fyrir of- veiði á honum. Því er afar mikilvægt að útgerðir nýti heimild til slepp- ingar lífvænlegs hlýra og skrái í afla- dagbók,“ segir í tilkynningu Fiski- stofu. Í kjölfar fundar sérfræðinga Haf- rannsóknastofnunar og útgerð- armanna árið 2020 var ákveðið að leita heimildar til að sleppa lífvæn- legum hlýra og fékkst sú heimild 14. desember sama ár. Frumathugun HAfrannsóknastofnunar hafði sýnt að „hlýri sem veiddur var í botn- vörpu virtist þola 1-2 tíma í móttöku eða á færibandi áður en honum var sleppt“. Hlýri um- fram ráðgjöf - Hvattir til að sleppa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.