Morgunblaðið - 17.03.2022, Page 43

Morgunblaðið - 17.03.2022, Page 43
UMRÆÐAN 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2022 lokunarsvæði og kerfisbundinni fækkun bílastæða mun ganga af allri almennri verslun dauðri. Það voru því okkur mikil vonbrigði þegar Hildur Björnsdóttir ein borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með Degi B og meirihlutanum um heilsárs lokun Laugavegar og neðri hluta Skólavörðustígs, ásamt umtalsverðri fækkun bílastæða. Þar var hún ekki að þjóna vilja kjósenda sinna og vilja meirihluta kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Björgum Laugavegi Aðgerðarhópurinn Björgum Miðbænum Bolli Kristinsson Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Laugavegur og Bankastræti, frá Hlemmi og að Þingholtsstræti, og neðri hluti Skólavörðustígs verði gerður að göngugötu allt árið um kring? Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Laugavegur og Bankastræti, frá Hlemmi og að Þingholtsstræti, og neðri hluti Skólavörðustígs verði gerður að göngugötu allt árið um kring? Værir þú líklegri eða ólíklegri til að heimsækja miðborg Reykjavíkur ef áðurnefndar götur yrðu gerðar að göngugötu allt árið um kring? Afstaða þeirra er kusu Sjálfstæðisflokkinn Íbúar - höfuðborgarsvæðið Íbúar - höfuðborgarsvæðið Hildur Björnsdóttir ein borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með Degi B og meirihlutanum um heilsárs lokun Laugavegar fyrir fjölskyldubílnum. Afgerandi meirihluti Sjálfstæðismanna í Reykjavík er á móti lokun Laugavegar og neðri hluta Skólavörðustígs fyrir bílum samkvæmt könnun sem Maskína gerði fyrir Miðbæjarfélagið í Reykjavík (mars 2020/sjá skýringarmyndir). Þar kemur einnig fram að meirihluti íbúa sem tóku afstöðu á höfuðborgarsvæðinu er andvígur lokun og enn fleiri telja ólíklegra að þeir heimsæki Verslanir sem enn eru á Laugavegi og hafa líka opnað annarsstaðar svo sem í Kringlu, Smáralind eða öðrum stöðum, upplifa stöðugan samdrátt á Laugavegi og mikla aukningu á hinum stöðunum. Fólkið fer þangað! Í átta ár höfum við barist gegn götulokunum og ekki verið á okkur hlustað hvað þá talað við okkur. Eina sem við upplifum er valdhroki og yfirgangur af hálfu meirihlutans. Nú er komið að ögurstund um framtíð verslunar á Laugavegi og neðri hluta Skólavörðustígs fyrir hinn almenna Íslending. Áframhaldandi heilsárs lokunarstefna með enn stærra miðborgina ef götunum er lokað (þess skal einnig getið að afgerandi meirihluti kjósenda Framsóknar- flokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins eru andvígir heilsársgötulokunum). Þetta eru ekki ný sannindi fyrir okkur. Kaupmenn sjá það á algjöru hruni í sölutölum og ört fækkandi íslenskum viðskiptavinum sem kjósa að fara annað þar sem aðgengi er gott og næg bílastæði. Af þessum sökum hefur mikill fjöldi verslana yfirgefið, má segja flúið, Laugaveg og flutt annað. Við það eitt lifnar búðin við og gömlu góðu viðskiptavinirnir koma til baka. Hlynnt(ur) 41.1% Í meðallagi 14.7% Andvíg(ur) 44.2% Hlynnt(ur) 24.9% Í meðallagi 10.3% Andvíg(ur) 64.8% Líklegri 27% Hvorki né/ myndi engu breyta 37,4% Ólíklegri 35,6% Ein mesta sérstaða okkar norðlægu höf- uðborgar er bað- ströndin í Nauthólsvík þar sem Reykjavíkur- búar þráast við að hita upp Norður-Atlants- hafið, þeim til mikillar yndisaukningar sem uppgötvað hafa dá- semdina. Ylströndin, þetta frábæra framtak sem ráðist var í á tímum Ingibjargar Sólrúnar, hef- ur skapað hér grunn að nýrri tegund heilsubótar sem nýtur sífellt meiri vinsælda meðal höfuðborgarbúa og hefur verið öðrum sveitarfélögum fyrirmynd til eftirbreytni samanber Guðlaugu á Akranesi. Undraverð upplifun Það hefur sýnt sig að iðkendur sjó- sunds og sjóbaða hafa fundið þar lausn við alls kyns kvillum og mörg dæmi um að reglulegar heimsóknir í sjóinn slái svo mikið á bólgur og verki að fólk hafi getað minnkað verulega eða jafnvel sleppt lyfjum sem áður reyndust þeim nauðsynlegt haldreipi til að þrauka daginn. Þá hefur iðk- unin reynst mikilvæg við úrvinnslu andlegra áskorana, en þeir sem hafa orðið fyrir stórum áföllum finna fyrir áberandi ávinningi og svo eru ein- staklega gleðileg dæmi um að sjó- sundið hafi reynst árangursríkt tól við að takast á við fíknivanda. Vannýtt tækifæri Aðsókn að ylströndinni hefur margfaldast svo mjög undanfarin ár að aðstaðan er löngu búin að sprengja utan af sér og færri ná að njóta en vilja. Það er augljós samfélagslegur ávinningur að því að bregðast við þeirri stöðu og skýtur skökku við að ekki finnist nægt fjár- magn til svara ákalli um aukinn þjónustutíma. Það ætti að vera fljót- reiknað að finna út að sú fjárfesting mun alltaf skila sér margfalt til samfélagsins með bættri lýðheilsu. SJÓR, félag sjósund- og sjóbaðsiðkenda í Reykjavík, sem undirrituð gegnir formennsku fyrir, hefur undanfarin fimm ár ítrekað sent frá sér ályktanir og ábendingar og rætt við ráðamenn borgarinnar um úrbætur en árang- urinn lætur á sér standa. Fyrir ári var loks stofnuð nefnd um gagngera endurskoðun á allri þjónustunni og samþykkt að hefja gjaldtöku á sumr- in sem aldrei varð þó og síðan hefur lítið gerst og ekkert að frétta. Lausnir í sjónmáli Stjórn SJÓR hefur bent borgar- yfirvöldum á allnokkrar leiðir til úr- bóta, sumar sem grípa mætti til strax í dag og allar mjög auðveldar í fram- kvæmd ef viljinn er fyrir hendi. Í fyrsta lagi þarf að rýmka þjón- ustutíma, til þess þarf einungis að ráða í viðbótarstöðugildi. Þjónustu- tíma hefur verið breytt á undan- förnum árum án alls samráðs við neytendur og algjörlega á skjön við almenna skynsemi. Það er t.d. lokað á sunnudögum og óskiljanlegt að ein vinsælasta aðstaða til tómstunda- iðkunar í borginni sé ekki opin þá daga sem borgarbúar eiga flestir frí til tómstunda! Það þarf líka að lengja afgreiðslutíma á kvöldin, sérstaklega á sumrin þegar birtu og sólar nýtur langt fram á nótt. Í öðru lagi þarf að taka upp réttlát- ari gjaldtöku en öfugt við það sem eðlilegt þykir borga borgarbúar sem sækja aðstöðuna reglulega allt árið meira en ferðamenn sem flykkjast að á sumrin. Því þar er rukkað á veturna en ekki sumrin. Ástæðan er sú að borgaryfirvöld vilja fylgja þeirri sam- evrópsku stefnu að aðstaða til strand- baða sé gestum að kostnaðarlausu. Við í stjórn SJÓR höfum ítrekað bent á þá lausn að uppsetning einfaldra útiklefa myndi leysa bæði þennan vanda og plássleysið sem veldur á stundum vandræðalegri nánd í nú- verandi aðstöðu þegar það er rass við rass í hverri athöfn. Það er svo efni í aðra grein að tala um saurgerlamengun við strand- lengjuna í Reykjavík og metnaðar- leysi borgaryfirvalda við að leysa það mál. Hér liggja tækifæri fyrir borgar- yfirvöld til að hlusta á óskir okkar, auka vellíðan borgarbúa og fikra okk- ur í leiðinni nær heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun svo Reykjavíkurborg geti orð- ið að framúrskarandi borg meðal borga. Eftir Herdísi Önnu Þorvaldsdóttur » Það ætti að vera fljótreiknað að finna út að sú fjárfesting mun alltaf skila sér margfalt til samfélagsins með bættri lýðheilsu. Höfundur er formaður SJÓR, Sjó- sunds- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur, og frambjóðandi í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Tómstundaperla í höfuðborg Á morgun og laug- ardaginn munu sjálf- stæðismenn í borginni ganga til kjörklefanna. Loksins er komið að prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykja- vík. Mikið hefur verið fjallað um komandi prófkjör undanfarnar vikur og ljóst að marg- ir bíða spenntir eftir úrslitum þess. Margir frambærilegir einstaklingar sækjast eftir sæti á lista og ánægjulegt er að sjá bæði kunnugleg andlit og ný. Eitt framboð stendur þó upp úr, framboð Ragnhildar Öldu Vilhjálms- dóttur í oddvitasætið. Mér er enn þá minnisstætt þegar ég hitti Ragnhildi Öldu, betur þekkt sem Alda, í fyrsta sinn. Það var í Sjávarklasanum, árið var 2016. Ég hafði ákveðið að bjóða mig fram til formennsku í Heimdalli. Þannig var staðan að það bráðvantaði meðfram- bjóðanda, varaformannsefni, og tím- inn var naumur. Ég þurfti að treysta á að ég gæti sannfært hana um að taka við hlutverkinu og koma með mér í þetta strembna verkefni. Frá því að hún gekk inn vissi ég að heið- urinn væri minn, að fá að fara í fram- boð með henni. Þarna mætti inn sól- argeisli og heillaði alla upp úr skónum. Frá því þetta var höfum við unnið mikið saman. Alda er einhver dug- legasta manneskja sem ég hef hitt. Hún brennur fyrir samfélaginu, hef- ur mikla þekkingu á mönnum og málefnum og vill láta gott af sér leiða. Hún er útsjón- arsöm, réttlát, klár og skynsöm. En á sama tíma djörf. Það útskýrir þann mikla stuðning sem hún hefur og þá djörfung að þora að taka þennan slag. Og það er það sem Sjálf- stæðisflokkurinn þarf, það sem Reykjavík þarf. Húsnæðismál og samgöngumál eru augljóslega brýnustu verkefnin fram undan. Við þeim vandamálum þurfum við útsjónarsamar, skyn- samar, en á sama tíma djarfar lausn- ir. Ég treysti engum betur en Ragn- hildi Öldu til að leysa þennan vanda og leiða sameinaða sjálfstæðismenn til sigurs í vor. Standa undir nafni og vera Alda breytinga. Rétt eins og ég treysti Öldu þá, sem ég sé ekki eftir, ætla ég að treysta Öldu núna í borginni. Ég styð Ragnhildi Öldu í oddvitasæti sjálfstæðismanna í Reykjavík og vona að aðrir geri slíkt hið sama. Hún er það sem sem Reykjavík þarf Eftir Albert Guðmundsson Albert Guðmundsson »Ég treysti engum betur en Ragnhildi Öldu til að leiða samein- aða sjálfstæðismenn til sigurs í vor. Höfundur er fyrrverandi formaður Heimdallar og varaþingmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.