Morgunblaðið - 17.03.2022, Side 72

Morgunblaðið - 17.03.2022, Side 72
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 *Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. 20% af völdumvörum Gildir til og með 28. mars GAIN Borðstofustóll, grátt sléttflauel. 28.990 kr. Nú 23.192 kr. husgagnahollin.is/hollin-min/ í glæsilegu tímariti Húsgagnahallarinnar Fáðu innblástur 15% AF ÖLLUM GLÖSUM 20% AF ÖLLUM BRETTUM OG VÖLDUM KERTUM Um 200 listamenn koma að flutningi tónverksins Þýsk sálumessa eftir Johannes Brahms, eins af öndvegis- verkum trúarlegrar tónlistar á 19. öld, á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Íslands í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Auk hljómsveitarinnar taka Mótettukórinn og Söng- sveitin Fílharmónía þátt í flutningnum auk einsöngv- aranna Emily Pogorelc og Jóhanns Kristinssonar. Tón- sprotanum sveiflar franski hljómsveitarstjórinn Bertrand de Billy, aðalgestastjórnandi Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Á tónleikunum verður einnig flutt Les Offrandes oubliées eftir Olivier Messiaen. Um 200 tónlistarmenn flytja Þýska sálumessu eftir Brahms í Hörpu skráðar í Hólminum dag hvern. „Samfelldar mælingar ná lengst í Stykkishólmi en við eigum eldri mælingar, allt frá 1749, en þær eru stopular.“ Það hefur margoft sýnt sig að erf- itt getur reynst að spá um veðrið innan skamms, hvað þá eftir nokkra daga, en með aukinni tækni og framförum á þessu sviði hafa spár gjarnan reynst ótrúlega nákvæmar mörgum til happs. „Framfarir í veð- urspám hafa verið mjög miklar,“ leggur Kristín áherslu á og vísar sérstaklega til líkanreikninga. „Við erum með miklu betri tól og tæki en áður þekktist til að vinna með.“ Veðurfarslegar heimildir frá fyrri öldum nýtast vel í nútímanum, ekki síst þegar verið er að meta loftslags- breytingar. „Þá skiptir mjög miklu máli að hafa eldri mælingar til þess að sjá hvort veðurfar hafi breyst, hvort það sé að hlýna, hvort úrkoma sé að aukast og svo framvegis,“ seg- ir Kristín. Þessar upplýsingar séu lykillinn að vitneskju um breyt- ingar. „Það er mjög mikilvægt að hafa samfelldar, langar tímaraðir.“ Í gögnum, sem ná aftur til ársins 1830, komi til dæmis fram að síðan hafi hlýnað um 0,77 gráður á öld og að hlýnunin hafi verið áköf undan- farna áratugi. Þegar hún er spurð um spána næstu daga stendur ekki á svarinu: „Þú verður að spyrja veð- urfræðingana á spádeildinni – ég horfi bara aftur á bak!“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Margar sagnir eru til af veður- glöggu fólki, sem sagt hefur fyrir um veðrið með því að líta til fjalla eða hafs. Spá þess hefur oft reynst býsna nákvæm og þekkingin hefur flust frá kynslóð til kynslóðar í ald- anna rás. Minnið getur samt verið gloppótt og þá er gott að hafa stað- reyndir til að bera sig saman við. Á þeim byggir Kristín Björg Ólafs- dóttir, sérfræðingur á sviði veður- farsrannsókna hjá Veðurstofu Ís- lands. Tilviljun réð því að Kristín fór út á þessa veðurbraut. „Ég er menntuð sem jarðfræðingur frá Háskóla Ís- lands og þegar kom að sérhæfingu fannst mér áhugaverðast að fara í fornveðurfarsrannsóknir; skoða veð- urfarið allt frá því fyrir þúsundum ára. Þegar ég svo fór að leita mér að vinnu 2016 lenti ég í þessu hjá Veð- urstofunni og það hefur verið mjög gaman.“ Kristín er tveggja barna móðir og hefur nóg að gera við heimilishaldið en hún gætir þess líka að hugsa vel um sjálfa sig. „Ég fer reglulega á crossfitæfingar á morgnana áður en ég fer í vinnuna,“ segir hún og bætir við að hún hafi gaman af því að vera úti í náttúrunni og ekki síst í fjall- göngum. „Ég hef líka tekið þátt í götuhlaupum og var svolítið í þeim þegar takamarkanirnar voru sem mestar vegna covid og hvergi mátti koma inn.“ Mælingar og veðursaga Veður er eilíft umræðuefni, ekki síst til sjávar og sveita, en „sérfræð- ingarnir“ leynast ekki síður á möl- inni. „Veðrið hefur áhrif á alla dags daglega og gaman er að skoða það út frá sögulegu samhengi og vera með mælingar á bak við sig,“ segir Kristín. Hún bætir við að þegar fólki finnist eitthvað mjög óvenju- legt í veðurfarinu megi gjarnan finna hliðstæðu í veðursögunni. „Veðurminnið okkar er lélegt og það sýnir nauðsyn þess að hafa gögnin til að við séum ekki alltaf að finna upp hjólið.“ Árni Thorlacius kaupmaður, út- gerðarmaður og bóndi í Stykkis- hólmi hóf veðurathuganir í nóv- ember 1845 og síðan hafa þær verið Horfir bara aftur á bak - Fornveðurfarsrannsóknir heilla Kristínu Björgu Ólafsdóttur Morgunblaðið/Eggert Á Veðurstofunni Kristín Björg Ólafsdóttir veðurfræðingur. FIMMTUDAGUR 17. MARS 76. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Hannes Þór Halldórsson, leikjahæsti markvörður í sögu íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur lagt hanskana á hilluna, 37 ára að aldri. Hannes lék 77 A- landsleiki á árunum 2011 til ársins 2021 en hann var í lykilhlutverki með íslenska liðinu á Evrópumótinu 2016 í Frakklandi og heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018. »63 Hanskarnir á hilluna hjá Hannesi ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.