Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2012, Page 100

Andvari - 01.01.2012, Page 100
98 GUÐRÚN KVARAN ANDVARI Áherslan á bókmenntirnar kemur ef til vill ekki á óvart í þessari ræðu sem haldin var í tilefni fimmtíu ára afmælis Hins íslenska bókmenntafélags en hún sýnir þó vel hug Jóns til íslenskrar tungu. I grein í Skírni 191117 rekur Björn M. Ólsen afskipti Jóns af Bókmennta- félaginu og getur um útgáfur á þess vegum fyrir atbeina Jóns. Hann við- urkennir að mörg af ritunum hafi ekki átt vinsældum að fagna hjá alþýðu manna, sem ekki hafi kunnað að meta þau, eins og t.d. Skýrslur um lands- hagi á Islandi, Tíðindi um stjórnarmálefni Islands og íslenskt fornbréfasafn, en Hafnardeildin hafi gefið út aðrar góðar bækur undir stjórn Jóns sem voru meira við alþýðu skap. Björn getur þeirra allra og áætlar að í forsetatíð Jóns hafi félagið gefið út rúmlega 1650 arkir eða um 26400 blaðsíður.18 Ræðu Jóns má því skoða sem hvatningu til félagsins að halda áfram bókaútgáfu og standa þannig vörð um íslenska tungu. Jón blandaði sér ekki, svo vitað sé, í íslensku stafsetningarumræðurnar á 19. öld en fylgdi stafsetningu Rasmusar Rasks sem hann hafði lært hjá Sveinbirni Egilssyni, ekki tillögum Fjölnismanna. Hann fyrnti stafsetningu sína í fyrstu óþarflega, skrifaði t.d. -ligur í stað -legur og enn í stað hinn í fyrstu þremur árgöngum Félagsritanna en hætti því síðan, en alla tíð ritaði hann bakfalls-é, (= é). Um þetta sagði Finnur: þar í var hugsun, (en í nútíðar-é engin); sömuleiðis broddaða stafi á undan ng (nk); það er réttast.19 Þótt Jón hafi ekki skrifað neitt um íslenska stafsetningu sýnir ósk Færeyinga um að Jón komi þar að stafsetningarmálum það traust sem borið var til Jóns sem málvísindamanns og fræðimanns. Styðst ég þar við grein eftir Zakaris Hansen í ritinu Málting.20 Þannig var að danska fornritafélaginu barst hand- rit skrifað með þeirri stafsetningu sem Jens Christian Svabo, færeyskur mál- vísindamaður, hafði búið til og byggðist á færeyskum framburði. Fyrir honum lá að varðveita það sem hægt væri af kvæðum á færeyskri tungu. Þegar Carl Christian Rafn, danskur fornfræðingur, hugðist gefa út Fœreyinga sögu í fær- eyskri þýðingu leitaði hann til Rasmusar Kristjáns Rasks sem gerði breytingar á tillögum Svabos. Þegar bókin var komin út töldu margir að nú væri færeysk stafsetning komin í fastar skorður en svo var þó alls ekki og talsverðar deilur spunnust fram og aftur. Einn þeirra sem blandaði sér í þær var N. M. Petersen prófessor í Kaupmannahöfn. Hann leit svo á að ritmál byggðist á samanburði á mállýskum, ekki á framburði einnar málýsku heldur á uppruna orðanna. Nú barst danska fornritafélaginu til útgáfu handrit með töfraþulum skrifað samkvæmt stafsetningu Svabos. Átti að prenta það í Annaler for nordisk old- kyndighed og historie 1846. Carl Christian Rafn tók við því. Hann þekkti vel deilurnar um færeyskt ritmál og sendi því Jóni Sigurðssyni þulurnar og bað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.